Réttur


Réttur - 01.10.1975, Síða 23

Réttur - 01.10.1975, Síða 23
Bandarík j ast j órn — verndari fasismans Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur nú meir og meir tekiS aS sér þaS hlutverk aS koma fasistum til valda í hinum ýmsu löndum og tryggja þá síSan í sessi, hvaS sem á gengur. VerkfæriS viS aS steypa lýSræSisstjórnum er CIA — meS vitund Bandaríkjaforseta. Þetta er nú sannaS og játaS af ráSherrum frammi fyrir þing- nefnd, var raunar ýmsum Ijóst áSur. En Íslendingum er nauSsyn aS horfast í augu viS þessa ógn af fullu raunsæi. /. Fasistinn Franco lét taka fimm stjórnar- andstæðinga af lífi — án sannanna voru þeir dæmdir til dauða. Flestar ríkisstjórnir Evrópu mótmæltu, hin íslenska einna aumast. En Bandaríkjastjórn gerði meira en að þegja. Hún gerði samninga við Franco um herstöðvar sér til handa á Spáni. — Hún borgar vafalaust vel — og er auðvitað að gera það til að vernda „lýðræðið”. Blóðferill Francos, sem hófst með morði á skáldinu mikla Frederico Garcia Lorca^ og fleiri lýðveldissinnum er nú á enda, þar sem hann sjálfur hefur nú loks drepist. En hættan er að herforingjar hans, skjól- stæðingar Bandaríkjastjórnar, hefji nýja morðöldu á Spáni til að hindra að lýðræði verði komið þar á. II. Þáttur Bandaríkjastjórnar í undirbúningi valdaráns herforingjanna í Chile hefur nú sannast til fulls með afhjúpunum á starfsemi CIA þar, en þessi leyniþjónusta vinnur ill- verkin erlendis með vitund forsetans. Jafnframt er nú endanlega sannað hvernig herinn myrti Salvadore Allende forseta. Það gerðist nokkru eftir klukkan 2 þann 11. sept- ember 1973 er herdeild undir forustu höfuðs- mannsins Roberto Garrido réðst til inngöngu í viðhafnarsal forsetahallarinnar. Það var höfuðsmaðurinn sjálfur, er skaut forsetann til bana. Blaðamaðurinn Robinson Rojas Sand- 231

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.