Réttur


Réttur - 01.10.1975, Blaðsíða 41

Réttur - 01.10.1975, Blaðsíða 41
Þá gefur þetta útgáfufyrirtæki út óhemju fjölda af bókum um flestöll svið mannlegs lífs, aðeins höfundanöfnin á ritunum i bókaskrá fyrirtækisins eru yfir 300. Alls er bókum fyrirtækisins I skránni skipt niður I 28 svið eða ólíka efnisflokka, þar af eru t.d. um hugmyndafræði sósíalismans 103 rit. En það er ekki aðeins með fjölmiðlum út á við að flokkurinn býr fólkið undir að stjórna landinu. Einnig er allri verkaskiptingu miðstjórnarinnar hag- að með það fyrir augum að hinir ábyrgu forustu- menn þekki hin ýmsu svið þjóðfélagsins sem og flokksstarfsins. Seytján starfshópar starfa nú i miðstjórninni.") Þar að auki hefur miðstjórnin þrjár sérstakar stofnanir, er einbeita sér að eftirfarandi málum: Miðstöð fyrir rannsókn efnahagsmála og undir- búningur að stefnumótun á því sviði, forseti Giorgio Amendola. Miðstöð til rannsóknar og framtaks á því sviði að endurbæta ríkisvaldið; forseti: Pietro Ingrao. Stofnun vegna stefnu i alþjóðamálum; forseti G!an Carlo Pajetta. Þá hefur miðstjórnin ennfremur fimm sérstakar fastar nefndir fyrir sérstök starfssvið. Skal tveggja þeirra getið hér: Fyrsta nefnd sér um utanríkismál, samband við aðra verklýðsflokka utan lands og innan sem og þjóðfrelsisflokka. Forseti hennar er Tullio Vecchietti. önnur nefnd sér um þingið og aðrar lýðræðis- stofnanir. Forseti hennar er Umberto Terracini. Þannig mætti lengi rekja hve víðfeðma og vel skipulögð öll starfsemi miðstjórnarinnar er. Formaður þingflokks fulltrúadeildar er Aless- andro Natta, en formaður þingflokks öldungadeild- ar er Edoardo Perna. Miðstjórnin sjálf er skipuð 170 mönnum og kýs 33 manna framkvæmdanefnd, en 9 manna stjórn („sekretariat") annast dagleg störf. Þá er uppeldisstarfsemin heldur ekki vanrækt og er hún mótuð mjög sjálfstætt og í anda um- burðarlyndis við aðra sósíalista og tryggðar við hugsjón sósíalismans: Auk alls þess skólunarstarfs, sem fram fer á vegum flokksins um land allt, eru tvær höfuðstöðv- ar sitt með hvoru móti I Róm: önnur er Gramsci-stofnunin, — l'lstítuto Gramsci, rannsóknar- og vísindastofnun I fræðum marxismans og sögu og kenningum flokksins og verklýðshreyfingarinnar. Stofnunin er sjálfstæð Hluti flokksskólans stofnun. Margir of kunnustu prófessorum Italíu I sögu, þjóðfélagsfræðum o. fl. sitja i stjórn henn- ar. Kommúnistar eru fjölmennir I slíkum stofnunum. Meðal þeirra er t.d. Giuliano Procacci, einn viður- kenndasti prófessor I italskri sögu. (Nýlega kom saga Italíu eftir hann út i Pelikan-kilju á ensku). Við Gramsci-stofnunina starfa 12 fastráðnir fræði- og vísindamenn. Leshringa-, fyrirlestra- og hvers- konar önnur fræðslu- og rannsóknarstarfsemi et rekin þar. Hið stóra bókasafn stofnunarinnar geym- ir fjölda bóka og blaða, sem erfitt er annars að fá. Gagnrýnar, skilgreinandi umræður um ýms vanda- mál sósíaliskrar heimshreyfingar fara þar fram og það er tekið á þeim málum af víðsýni og djörfung, en ekki kreddufestu. Hin stofnunin er aðal-flokksskólinn, nokkru utan við Róm: Istituto Studi Comunisti. I fögru umhverfi, við ágætar aðstæður, I sölum prýddum listaverkum úr baráttusögu flokksins, þjóðfrelsis- og verklýðs- hreyfingarinnar, fer hér fram sumar og vetur hvers- konar kennsla I hinum ýmsu marxistisku fræðum og um hin fjölbreytilegustu verksvið flokksins, allt frá vikna leshringum og upp til einskonar háskóla- náms. Þannig mætti lengi rekja söguna um starfsemi flokksins og skipulag og er þó hér aðeins rætt um lítinn hluta af miðstjórnarstarfi, en ekkert um hið almenna flokksstarf. Og skal nú staðar numið i bráðina. FORUSTA Kommúnistaflokkur Italíu gerir siður en svo nokkra kröfu til forustuhlutverks í heimshreyfingu 249
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.