Réttur


Réttur - 01.10.1975, Page 13

Réttur - 01.10.1975, Page 13
Þegar Melkorka fékk málið Frásagnir af sósíalistísku kvennablöðunum og- tímaritunum „Nýju konunni” og „Melkorku” August Bebel lýkur hinni ágætu bók sinni „Konan og sósíalisminn“, með þessum orðum: „Framtiðin tilheyrir sósí- alismanum, það þýðir fyrst og fremst verkamanninum og konunni.“ I. „NÝJA KONAN” Árið 1932 færðist harka mikil í frelsis- og stéttabaráttu verkamanna undir forusm Kommúnistaflokks íslands (K.F.I.), lífsbar- áttu alþýðu gegn atvinnuleysi og eymd auð- valdsskipulagsins. Þá kvaddi og konan í al- þýðustétt sér hljóðs, sú, sem ætíð fékk harð- ast að kenna á þeim kröppu kjörum og rétt- indaleysi, er auðvaldið þá áskapaði vinnandi fólki. Það var í desember 1932 að lítið tímarit „Nýja konan" hóf göngu sína, flytjandi frá- sagnir af lífi og baráttu verkakvenna og kvenna af alþýðustétt. Útgefandi var Kvenna- nefnd K.F.I.11 Ritstjóri var Hallfríður Jónas- dóttir. Hallfríður var fædd 8. október 1903 I Hraunsmúla I Hnappadalssýslu. Foreldrar hennar voru Jónas bóndi Gunnlaugsson, er andaðist er Friða var tveggja ára, og kona hans Elín Árnadóttir. Árið 1919 flytst Fríða til Reykjavíkur með móður sinni og stjúpa, Jóni Magnússyni, er búa síðan á Brekku- stíg 14 B. Hallfriður er 29 ára að aldri, er hún byrjar að ritstýra „Nýju konunni". Hafði hún ung gengið í Jafnaðarmannafélagið i Reykjavik og gerðist síðan einn brautryðjandi kommúnistisku hreyfingarinnar: stofnandi „Spörtu" 1926 og siðan Kommúnista- flokksins 1930. Síðan verður hún og fulltrúi á stofnþingi Sósíalistaflokksins 1938. Kom hún víða við sögu í þeim róttæku kvennasamtökum, er stofn- uð voru i Reykjavík, var einn af stofnendum Mæðrafélagsins 1936 og í stjórn þess alla tíð. Var hún varaformaður þess félags 1945—1953, en þá var Katrín Pálsdóttir formaður þess, en er hún andaðist tók Hallfríður við formennskunni og stjórnaði því til dauðadags. Eitt af höfuðbaráttu- málum þess félags var orlof húsmæðra og bar fé- lagið mál það fram til sigurs, lögin um orlof hús- 221

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.