Réttur - 01.10.1975, Qupperneq 25
Þar var að finna frásögn um aðfarirnar í
sjö fangabúðum eða húsum, sem pólitískir
fangar voru pyntaðir í.
I fangabúðunum „Tedjas Verdes" var m.a.
beitt eftirfarandi pyntingaraðferðum:
„Páfagauksrólan," það er: fangarnir eru
hengdir upp á þverstöng og rafmagni hleypt
á þá. Fangarnir eru píndir til að eta og
drekka eigin saur og þvag. Rafmagnsstraum-
ur er settur á alla þá staði líkamans, sem
eitthvert op er á. Og þannig mætti lengi
telja.
I fangabúðum, er settar voru upp í Calle
Londres 42, þar sem áður voru höfuðstöðvar
sósialistaflokksins, voru pyntingarnar slíkar
að vegna kvalaópanna, sem heyrðust til hús-
anna í kring, var þessi þriggja hæða bygging
kölluð „hús ógnanna".
I Fuerte Borgano, sem er stöð sjóhersins
í Talcahuano er m.a. beitt þeim pyntingum
að stinga föngunum nöktum, fjötruðum á
höndum og fótum, á höfuðið niður í stór
föt, fyllt af saur og vatni, — einnig þeirri
aðferð að binda fangann naktann aftan í
jeppa-bíl og draga hann eftir æfingastöð sjó-
liðanna allt að 100 metrum. Kvenföngum er
nauðgað, bæði við yfirheyrslur og í fanga-
klefunum. Mörg vitni báru að hafa séð sjó-
liðana standa í biðröð við klefa kvenfang-
anna til að komast að.
í öllum þessum „búðum" voru fangarnir
yfirleitt fjötraðir allan tímann, fengu yfirleitt
ekkert eða örlítið að borða og lítið að drekka
þá daga eða jafnvel vikur sem þeir voru
þarna áður en þeir voru fluttir annað eða
drepnir. Einkum voru fangarnir sveltir fyrstu
dagana, sumstaðar fengu þeir einn brauðbita
og súpu á dag, er á leið.
Þessi skýrsla öll kemur út í Rómaborg um
þessar mundir, en þýska vikuritið „Spiegel"
Plakat er krefst frelsis fyrir Corvalan
hefur þegar birt útdrátt úr henni, sem hér
er stuðst við.
IV.
„Alþjóðanefnd til rannsóknar á glæpum
herforingjastjórnarinnar í Chile" kom saman
í Mexico 18.—21. febrúar 1975. Forseti
Mexico, Luiz Echeverria Alvarez, opnaði ráð-
stefnuna með ræðu. Nefndin hefur birt
skýrslu sína og ávörp til umheimsins.3)
Þar kemur m.a. fram að enn þá eru um
8000 pólitískir fangar í klónum á fasista-
stjórninni og á hverjum mánuði hverfa um
60 af þeim. Nærri má geta hvers konar
meðferð þessir menn sæta.
Meðal þeirra eru margir stjórnmálaleið-
233