Réttur


Réttur - 01.10.1975, Page 32

Réttur - 01.10.1975, Page 32
fram umræður um þessa sameiningu á 2. heimsþingi Alþjóðásambands kommúnista („Komintern") í Moskvu 19- júlí til 7. ágúst 1920. Þar var Sylvia Pankhurst einn af full- trúunum og ásamt Wtlliam Gallacher] var hún aðalmálsvari „einangrunarstefnunnar", sem sætti þar harðri en skilningsríkri gagn- rýni, sérstaklega af hálfu Leníns. Lenín hafði áður fengið bréf frá Sylviu, þar sem hún bað hann um álit hans á þing- starfi. Svaraði hann henni ýtarlega. Bréf hans til hennar 28. ágúst 1919*' er sex prentaðar síður að lengd. Sýnir hann þar að vanda mikla stjórnvisku, virðir mikils hinn brenn- andi áhuga og einlæga vilja „vinstri komm- únistanna", en reynir eftir mætti að sann- færa þá um nauðsyn þess að starfa í verka- lýðsfélögum, taka þátt í kosningum og jafn- vel vera sem heild í Verkamannaflokknum, með fullum rétti til gagnrýni. Bók Leníns „Vinstri róttækni. Barnasjúk- dómar kommiínismans”, kom út í apríl 1920 og þar ræðir hann einmitt þessi vandamál. Níundi kafli bókarinnar er einmitt um „Vinstri kommúnismann í Bretlandi" og ræð- ir hann þar mikið um Sylvíu Pankhurst og William Gallacher og afstöðu þeirra.r,) Það, sem Lenín segir þar, á enn brýnt erindi til margra ungra, eldheitra sósíalista og ekki síð- ur til ýmissa, sem eldri eru og telja sig reynd- ari. Þar segir m.a. um hugsunarhátt þeirra Gallachers og Sylvíu: „Þessnm hugsunarhcetti ber mjög að fagna og hann er mikils virði, við verðum að læra að meta hann og hlynna að honum-, því ef hann vantar, þá er vonlaust að gera ráð fyrir sigri verklýðsbyltingar í Bretlandi eða hvaða öðru landi sem vœri. Það verður að meta og styðja á allan hátt menn, sem geta leitt fram í dagsljósið þennan hugsunarhátt fjöld- ans og eru færir um að vekja slíkan hugsun- arhátt (sem oft blundar ómeðvitaður í leyn- nm) hjá fjöldanum. En samtímis verðum við að segja þeim opinskátt og af hreinskilni að hugarástand EITT SAMAN er ófullnægjandi til forustu í mikilli byltingarbaráttu og að málstaður byltingarinnar getur auðveldlega beðið tjcm af hinum og þessum mistökum, sem fólk er helgar sig málstað byltingarinnar er tilbúið að fremja eða hefur framið." (bls. 87). Lenín vísar í sorgleik þýsku byltingarinn- ar í janúar 1919 og fleira. Allt er þetta lær- dómsríkt einnig fyrir sósíalista á Islandi þann dag í dag, hvar í flokki eða samtökum sem þeir telja sig. Það, sem Lenín lagði höfuðáhersluna á í þessum skrifum og viðræðum við „vinstri"- kommúnistana, var að það væri hlutverk „hvers þess kommúnista, sem ekki ætlar að- eins að vera stéttvís, sannfærður og þekking- arríkur útbreiðslumaður hugmynda, heldur raunverulegur leiðtogi fjöldans í byltingu," að samtvinna „dýpstu hollustu við hugsjónir kommúnismans og hæfni til í framkvæmd að gera allar nauðsynlegar málamiðlanir, sigla milli skers og báru, fara krákustigu, halda undan o. s. frv"* til þess að knýja fram nauð- synlega pólitíska þróun og láta fjöldann læra. Lenín tókst að sannfæra William Gallach- er um rétta bardagaaðferð og hann varð síðar einn af tryggustu og bestu foringjum breskra kommúnista. En Sylvía lét ekki sannfærast. Hún var með í stofnun Kommúnistaflokks Stóra-Bretlands, en hún byrjaði strax að skipuleggja baráttu innan hans gegn því að taka þátt í þingkosningum. Breska ríkisstjórnin byrjaði strax ofsóknir gegn hinum unga flokki, sem að vísu taldi aðeins 2—3000 félaga og átti í miklum erfiðleikum fjárhagslega, en var fullur áhuga og baráttuvilja. Strax í október 1920 voru ýmsir af forustumönnum flokksins fangels- aðir og síðan dæmdir, mestmegnis fyrir skrif 240

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.