Réttur


Réttur - 01.10.1975, Síða 38

Réttur - 01.10.1975, Síða 38
Berlinguer Togliatti deyr 1964, en í „minnisblöðum"7) sínum, sem flokkurinn leit á sem einskonar „erfðaskrá" hans, leggur hann ráðin á um framtíðarstefnuna, sjálfstæða og djarfa. Við dauða sinn er Togliatti, einnig af afturhaldinu, metinn sem einn mesti stjórnmálamaður italíu. 1968 hefur flokkur hans við kosningarnar 8.557.404 atkvæði. Ljóst er orðið að framrás hans verður ekki stöðvuð. Það var Luigi Longo, hetjan úr spönsku borgara- styrjöldinni, sem tók við sem aðalritari flokksins við dauða Togliattis. Undir sameiginlegri forustu þeirra eftir strið hafði flokknum tekist að skapa sterka, vígreifa forustu í verkalýðssamtökunum og vaxandi einingu milli hinna þriggja verkalýðssam- banda, sem nú loks eru meir og meir að samein- ast. Með góðu marxistísku uppeldi í flokknum, hefur ekki aðeins tekist að ala upp gott mannval til forustu í baráttunni jafnt á vinnustöðvum sem í kosningum, heldur og tekist að tryggja að flokk- urinn haldi sér, þegar hann nær vaxandi ítökum, algerlega hreinum af þeirri megnu spillingu, sem grafið hefur um sig i öllu stjórnkerfi Italíu og gert stjórnarflokkinn, „kristilegu demókratana", svo gerspilltan að óþef leggur af honum langt út fyrir landið. BERLINGUER OG KOSNINGASIGURINN MIKLI Á flokksþinginu 1970 tók Enrico Berlinguer við af Longo sem aðalritari flokksins. Longo var þá orðinn 70 ára“* og var kosinn formaður flokksins, sem þar er fyrst og fremst heiðurssæti. Berlinguer er nú 53 ára, fæddur á Sardiníu eins og Gramsci, kominn af velefnuðu fólki og er hinn djarfasti í sóknarstefnu sinni, en um leið gætinn og laus við bráðlæti. Undir forustu hans vann flokkurinn mesta sigur sinn 15. júní 1975 I bæjar- og sveitarstjórna- kosningunum um allt fastland Italiu. Kosningasigur Kommúnistaflokksins skaut vest- rænu auðvaldi skelk i bringu. Flokkurinn fékk 33.4% allra atkvæða, en „kristilegu demókratarnir" (DC) hrapa niður I 35.3%, sá flokkur er eitt sinn hafði nær helming allra kjósenda á ítaliu. Bak við kommúnistaflokkinn (PCÍ) standa nú 11.264.417 kjósendur á Italiu, þriðji hver kjósandi. Á norður- Italíu óx flokkurinn úr 26.5% 1972 í 33.6%, en DC hrapaði úr 39,3% I 35,5%. Á mið-ltalíu fer PCI úr 34,4% 1972 i 39,5%, en DC fellur úr 33,7 i 30,8%. Og þar sem ítalski Sósíalistaflokkurinn. sem í öllum þorra kjördæmanna vinnur með PCI hefur 1975 fengið 12% atkvæða, þá hafa þeir saman meirihluta i ýmsum tiltölulega sjálfstæðum fylkjum Italíu og i flestum þýðingarmestu borgun- um, sem nú hafa fengið kommúnista fyrir borgar- stjóra, svo sem Milano, Torino, Florenz, Feneyjum, Neapel og I Bologna hafa kommúnistar lengi stjórnað með miklum ágætum. Almennt er reiknað með að Róm falli næst í hendur kommúnistum og bandamönnum þeirra. — Og Nato-broddunum rennur þegar kalt vatn milli skinns og hörunds við tilhugsunina um að næst verði svo PCI stjórnarflokkur á Italíu, — ekki vegna þess að Italía færi þá úr Nato, því PCI hefur sagt að Italía gæti verið í Nato, þó þeir færu í stjórn, en einmitt það líst auðvaldi Bandaríkjanna ekki á. Það óttast að Nato verði þeim lítils virði, ef slikum stjórnum færi að fjölga í Nato-Evrópu! „SöGULEGA SAMKOMULAGIГ En flokksforustan varast að láta sigrana stíga sér til höfuðs. Hún gerir sér Ijóst að vel getur verið að Kommúnistaflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn, sem nú hafa samanlagt 45% kjósenda á Italíu á bak við sig, nái meirihluta, t.d. 51% kjósenda, í næstu þingkosningum og PCI verði stærsti flokkur 246

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.