Réttur


Réttur - 01.10.1975, Side 39

Réttur - 01.10.1975, Side 39
Italíu. En forustan er raunsæ, man eftir Chile, — og veit að sú hætta vofir alltaf yfir að auðmanna- stéttin og Nato grípi til ofbeldisverka: Þurrki út þingræðið og lýðræðið, — sem þeir lofa hástöfum meðan þeir geta notað það, — en hafa áður sýnt sig I að eyðileggja, ef ekki er kosið að þeirra skapi. Þessvegna hefur Berlinguer skorað á „kristilegu demókratana" (DC) að gera við PCI „sögulegt samkomulag": að þessir tveir stærstu flokkar stjórni Italíu saman. DC hefur enn allmikið verka- mannafylgi og auk þess er í flokknum vinstri arm- ur, sem vill samstarf við PCI, af því þeir sjá að stjórnleysi þlasir við, ef slíkt samstarf kemst ekki á. Átökin innan DC eru oft svo hörð, að óvíst er að flokkurinn héldist sem ein heild, ef forusta hans gengi ekki til samstarfs við kommúnista eftir stór- sigur þeirra í þingkosningum. Italski kommúnistaflokkurinn fer sér því hægt. Hann sér fram á sigur sinn og róttæka þróun með vaxandi áhrifum alþýðu, ef hann aðeins getur hindrað að fasisminn komist aftur á. Hann leggur áherslu á að stjórna þeim stórþorgum og sjálf- stæðu fylkjum Mið-ltalíu, sem hann nú ræður með bandamönnum sínum, þannig að þjóðin sannfærist um að eina leiðin út úr efnahagslegum ógöngum og spillingu á Italíu sé að kommúnistarnir verði voldugasti flokkur landsins, er megni að marka heilbrigða og stórhuga stefnu ítalskri alþýðu í hag, fyrst og fremst að útrýma atvinnuleysinu og stinga á spillingarkýlunum. Svo undarlegt er ástandið á Italiu, að einn kommúnisti orðaði það svo: Fólkið er orðið þreytt á upplausninni, óreiðunni, atvinnuleysinu, spilling- unni, sem hægri flokkurinn (DC) veldur, — og kýs því kommúnista til að koma á reglu I þjóðfélaginu. FLOKKURINN Kommúnistaflokkurinn er nú að taka i æ rikara mæli hina stjórnmálalegu og siðferðilegu forustu fyrir ítölsku þjóðinni. Valdaflokkur burgeisastéttar- innar, DC, stendur eftir 30 ára völd úrræðalaus frammi fyrir efnahagsvandanum og siðferðilega 247

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.