Réttur - 01.10.1975, Side 52
Dubcek við gröf bróður síns.
yðar. Ég sendi þetta bréf eftir ýmsum leiðum og
ég læt félaga Husák vita að ég hafi skrifað yður."
DUBCEK SVARAR HUSAK
13. apríl sl. gerðist það að Olaf Palme, for-
maður sænskra sósíaldemókrata, lýsti samúð sinni
með afstöðu Dubceks í bréfi hans. — 16. apríl
ógnaði svo Gustav Husák, formaður kommúnista-
flokks Tékkóslóvakíu Alexander Dubcek með fang-
elsi eða útlegð vegna bréfs hans, sem hér hafa
verið birtir kaflar úr. Þessum árásum hefur nú
Dubcek svarað í sumar með nýju bréfi til Husáks
og kemst m.a. svo að orði:
„Ég hef vaxið upp i byltingarhreyfingunni frá
barnæsku. Þegar þér voruð borgaralegur málflutn-
ingsmaður, hjálpaði fjölskylda mín við að koma á
sósialisma i Sovétrikjunum. Á sama tíma og þér
voruð í Úkraínu í opinberri sendinefnd hins fasist-
iska slovakiska rikis starfaði fjölskylda min i leyni-
hreyfingunni. Þegar þér voruð, að þvi að sagt er,
að undirbúa þjóðaruppreisn Slóvaka (hér á Dubcek
við uppreisn Slóvaka gegn Þjóðverjum 1944, aths.
ritstj.), barðist fjölskylda mín í henni og bróðir
minn lét þar lifið.“
Dubcek lætur sem sé engan bilbug á sér finna.
Þess skal getið að Olaf Palme svaraði Husák full-
um hálsi 19. apríl í ræðu. Það var þá að hann líkti
honum við Thieu.
SKÝRINGAR:
I ,,Rétti“ 1968 var innrásin I Tékkóslóvakiu 21.
ágúst rædd og skilgreind. Svipuð beiting ríkis-
valds Sovétríkjanna, þ.e.a.s. leynilögreglu og
dómstóla, fór fram gegn Kommúnistaflokki Sov-
étríkjanna I málaferlunum 1936—38.
-> Um Jósef Smrkovský sjá ,,Rétt“ 1974, bls. 26-28.
:,1 Talið er að I fyrri heimsstyrjöldinni hafi 10 milj-
ónir manpa verið drepnar, 20 miljónir gerðar ör-
kumla og verðmæti að upphæð 338 miljarðar
dollara verið eyðilögð. I heimsstyrjöldinni síðari
er talið að 54 miljónir manna hafi verið drepnar,
90 miljónir manna særðar, 28 miljónir gerðar
örkumla, en verðmætaeyðileggingin nemi 4000
miljörðum dollara. „Tækninni" hafði þá farið
mikið framl! — En stríðsgróði þýsku einokunar-
hringanna I síðara stríðinu nam 60—70 miljörð-
um marka, en hinna bandarisku 123 miljörðum
dollara. — Það skal ekki reynt að giska á arð-
ránið og manndrápin I nýlendunum, aðeins minnt
á sem eitt „litið" dæmi um „föðurlega umhyggju"
nýlendudrottnanna, að þegar Leopold I. Belgíu-
konungur lét skattheimtumenn sina krefja um
háan nefskatt af íbúunum, þá lagði hann svo
fyrir að höggva skyldi hægri hönd af öllum þeim
bændum, er eigi gætu borgað og koma með
hendurnar I körfum sem sönnun fyrir að rukkun
hefði farið fram. Það þurfti ógrynni karfa undir
hendurnar. Þetta var I Kongó.
„Lærdómar af kreppunni" er samþykkt hinnar
„nýskipuðu" miðstjórnar flokksins, gerð I des-
ember 1970. Heitir á þýsku „Die Lehren aus der
krisenhaften Entwicklung in Partei und Gesell-
chaft nach dem XIII. Parteitag der KPT." (Með-
al annars i „Informationsbulletin" nr. 3—4 1971.
Vín). — Stefnuskrá Dubcek-miðstjórnarinnar frá
5. apríl 1968 er og að finna í sama „Inform-
ationsbulletin, Beilage zu Nr. 23—24: Aktions-
program der KPT."
5) Þetta bréf Dubceks í heild er að finna i „Listy"
blaði tékkóslóvakíska andstöðuhópsins. Það
fæst almennt á þýsku, en útgáfa á sænsku er til
af bréfinu: heimilisfang: Box 12 021 750 12 Upp-
sala 12. — Útgefandi „Listy" er Jiri Pelikan,
heimilisfang: „Listy," Via Torre Argentina
21,00186 Roma, Italía.
°) Aragon er einn af frægustu rithöfundum Frakka,
kommúnisti, lengst af í miðstjórn flokksins.
') Hér á Smrkovský auðvitað við þann þjóðareigin-
leik, kenndan við þann góða soldát Svæk, sem
Tékkum er oft eignaður.
260