Réttur


Réttur - 01.10.1975, Qupperneq 60

Réttur - 01.10.1975, Qupperneq 60
henni. Vestur-þýski flotinn fór út, — líklega í von um undanhaldssamninga. En breski togaraflotinn lagði í þriðja þorskastríðið. Þeim finnst fimm alda rán gefa „rétt” til rán- yrkju áfram. Enska og vestur-þýska stórveldið hafa ekkert lært og engu gleymt — eftir fimm alda rányrkju. Eitt sinn var Eystrasalt auðugt af síld og fiski, — nú dautt. Fiskauðgi Norð- ursjávar var fyrir tveim öldum undirstaða að auðlegð Hollands og Englands. Nú er sú auð- legð i „andarslitrum”. Islandsmiðin þótm eitt sinn ótæmandi: Hvalnum fyrir vestfjörðum var útrýmt eftir aldamót. Síldin fór sömu leið síðar. Nú er þorskstofninn í hætm. En ensku og þýsku auðfélögin í útgerðinni vilja fá að ræna meðan nokkur branda er til. Og í krafti tjóðurbandsins, „bræðrabandsins" í Nato, skal svínbeygja íslenska ríkisstjórn til „samninga" — eða beita valdi ella. Auðlegð íslandsmiða er undirstaða góðrar lífsafkomu Islendinga: Afköst hvers íslensks sjómanns á þeim voru hin mestu í heimi, t.d. 125 smálestir fiskjar á mann á ári, þegar vesmr-þjóðverjar voru næstir með 25 smá- lestir (ca. 1950—1960). Olli því þrennt: hörð sókn íslenskra sjómanna, háþróuð framleiðslutækni og góð mið, — hið síðast- nefnda undirstaðan. Hin víðtækusm samtök hafa myndað þjóð- fylkingu til verndar landhelginni og gegn undansláttarsamningum: Alþýðusambandið, Sjómannasambandið, Farmanna- og fiski- mannasambandið, stjórnarandstöðuflokkarnir o. fl. o. fl. — Það reynir brátt á þolrif þess- ara samtaka, er stjórnarflokkarnir taka að knýja fram vestur-þýska samninginn, — og síðar ef svik verða undirbúin í stríðinu við Breta sem fyrrum. Það er vert að muna að það er samskonar útgerðarauðvald undir forusm bresk-hol- lenska auðhringsins Unilever, sem ræður að- förinni að Islendingum nú sem fyrrum. Það er ljóst að í landhelgismálinu stendur þjóðin saman, landhelgisgæslan berst af hörku í þriðja þorskastríðinu, — en ríkis- stjórnin mun sitja á svikráðum sem fyrr. 24.11. BRESK INNRÁS Breski flotinn — Nato-„bandamaðurinn" hefur nú ráðist á Island í þriðja sinn á 17 árum. Auðvitað er ríkisstjórnin eins og aum- ingi og þorir ekki að grípa til þeirra ráðstaf- ana, er dygðu. — Hættulegri framtíðarhagsmunum þjóðar- inna en breski innrásarherinn er Nato-for- usta stjórnarflokkanna. Undirgefni hennar undir Nato-veldin er svo takmarkalaus að hún knýr í gegn þeim til þægðar hvern land- ráðasamninginn á fætur öðrum, fyrst þann þýska nú 28. nóvember þrátt fyrir eindregin mótmæli stærstu samtaka þjóðarinnar og voldugra funda. Hún einblínir í öllu þessu á hagsmuni innflutningsverslunarinnar og svífst einskis til að tryggja þá. Takist ekki að hindra þessa ríkisstjórn verslunarauðvaldsins í þeim landráðum að láta erlend auðfélög eyðileggja fiskimiðin, þá þarf alþýðan a.m.k. að sjá um að það verði verslunarauðvaldið og flokkar þess, sem borga brúsann, en verkalýðurinn hviki hvergi frá þeim kröfum að rétta hlut sinn til fulls á kostnað svikullar yfirstéttar landsins — hvað sem það kostar. UPPGJÖF — ,,SIGUR“! Þýski uppgjafarsamningurinn var sam- þykktur 28. nóv. á Alþingi með 42 atkv. allra stjórnarþingmanna gegn 18 atkv. stjórnarandstöðunnar. Það er orðin augljós verkaskiptingin í því 268
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.