Réttur - 01.10.1975, Síða 61
Útifundurinn á Lækjartorgi 27. nóv
að kúga íslendinga í fiskveiðideilunni: Það
er sami auðhringurinn, Unilever, sem ræður
ferðinni í báðum löndum, — á aðaldreifing-
arkerfið í Bretlandi og helming þýska úthafs-
flotans. Svo skiptast enska og þýska stjórnin
á að semja við Islendinga — eða sýna hnef-
ann. Seinast var það þýska stjórnin, sem setti
löndunarbann á íslenska fiskinn og beitti
neitunarrétti í EB gegn umsömdum tolla-
lækkunum. Nú eru það Bretar, sem sýna
hnefann. — Og það eru í Bretlandi — eins
og oft áður fyrst og fremst bresku kommún-
istarnir, sem standa með okkur — móti yfir-
gangi bresks valds.
Svo lítilþæg er íslensk yfirstét að hún kall-
ar það „sigur", er hún hefur knúið uppgjöf-
ina fyrir Unilever-valdinu þýska fram á Al-
þingi. — Sömu orð hafði hún um svívirðing-
arsamninginn 1961, uppgjöfina fyrir bresk-
um yfirgangi.
Það er ljóst að víðfeðmustu mótmæli fjöl-
mennustu þjóðarsamtaka hafa álíka áhrif á
þessa ríkisstjórn og að skvetta vatni á gæs.
Hún skilur aðeins hörkuna. Hún óttast, þeg-
ar sjómenn sigla öllum flotanum í höfn. Og
hún skelfur er verkalýðurinn stöðvar allt at-
vinnulíf. Það má alþýða landsins muna, þeg-
ar átökin um lífskjörin hefjast fyrir alvöru.
269