Réttur - 01.10.1988, Page 44
KRISTIINA BJÖRKLUND:
Alþjóðleg samstaða
Alþjóðleg sainstaða er ekki tómur frasi á Kúbu. Á hverju ári er þúsundum
skólabarna og háskólastúdenta frá þróunarlöndunum boðið til Kúbu til þess að
stunda nám, sem nýtist þeim í heimalandinu.
Auk þess ferðast þúsundir Kúbumanna
til útlanda til þess að vinna í löndum, þar
sem þekking þeirra kemur að gagni. Kúbu-
menn sendu til dæmis stóran hóp bygg-
ingarverkamanna til Grenada mcðan
stjórn Bishops var þar við völd. Kúba var
einnig fyrsta ríkið til þess að senda sveitir
lækna og kennara til Nicaragua eftir sigur
sandinistabyltingarinnar.
í lok október 1988 varð Nicaragua fyrir
miklu áfalli, þegar fellibylurinn „Jó-
hanna“ skall á landinu og drap 122 auk
þess sem 300.000 manns misstu heimili
sín.
Kúbumenn voru reyndar komnir áður
en fellibylurinn skall á. Þeir hjálpuðu.
Nicaraguamönnum aö flytja fólk á brott
frá hættusvæðunum. Daginn eftir aö
ósköpin voru afstaöin, birtust kúbanskar
flutningavélar með matvæli, lyf, teppi og
tjöld. Og meö í förinni var sveit lækna.
Talsmaður kúbanska sendiráðsins í
Managua sagði: „Þetta er hluti loftbrúar
sem mun halda áfram eins lengi og nauö-
syn ber til“. í bænum Bluefields við At-
lantshafsströndina eyðilögðust um 6000
hús, eða um 95% af öllum húsum í
bænum. Kúbanir eru með áætlanir um að
byggja 1000 ný hús á næstu tveimur árum.
Efnið, verkamennirnir, verkfærin og jafn-
vel maturinn handa verkamönnunum
kemur allt frá Kúbu. Þessi áætlun tekur
einnig lil byggingar heilsugæslustöðvar,
dagheimilis og endurbyggingar Moraviu-
kirkju í Bluefields.
Á þennan hátt sýnir Kúba enn einu
sinni gott fordæmi um uppbyggilega að-
stoð eins ríkis við annað, og undirstrikar,
að aiþjóðleg samstaða eru ekki orðin
tóm.
188