Réttur - 01.10.1988, Blaðsíða 45
JENS GUÐMUNDSSON:
Játvarður Jökull
Júlíusson
Minningargrein um góðan dreng
og baráttuhetju
Játvarður Jökull Julíusson rithöfundur og fyrrverandi bóndi er látinn. Ein-
stæðri hetjusögu og merkri starfsævi er lokið.
Játvarður var fæddur á Miðjanesi í Reykhólasveit ó.nóvember 1914. Hann lést
á Dvalarheimili aldraðra á Reykhólum 15. október síðastliðinn.
Játvarður átti til þróttmikilla og greindra
Breiðfirðinga að telja. Móðir hans, Helga
Jónsdóttir, Guðmundssonar bónda á
Miðjanesi, var greind mannkostakona,
atorkumikil og áhugasöm. Þannig mynd
hefur hún mótað í mínum huga eftir um-
ræöu samtíðarmanna. Persónuleg kynni
af henni hafði ég ekki.
Júlíus Ólafsson, Jónssonar garðyrkju-
manns, var harðgreindur, víðlesinn og
víðförull, sérstæður og eftirminnilegur
persónuleiki.
Júlíus var langdvölum fjarri heimili
sínu. M.a. kennari á ýmsum stöðum og
auk þess stundaði hann fleiri störf utan
heimilis. Það kom því í hlut Helgu að
annast búið og heimiliö við þau frum-
stæðu verkskilyrði er þá tíðkuðust. Þar
við bættist að systir Játvarðar, nokkru
yngri en hann, var astmasjúklingur er
þurfti sérstaka umönnun. Játvarður
þekkti því frá blautu barnsbeini harðræði
lífsbaráttunnar hjá alþýðu þessa lands á
fyrri hluta þessarar aldar. En jafnframt
kynntist hann hugsjónum og baráttuvilja
aldamótakynslóðarinnar. Þetta hygg ég
að öðru fremur hafi mótað lífsstíl hans og
þroskaferil.
Á Miðjanesi var oftast tvíbýli á upp-
vaxtarárum JáÞarðar. Ábúendaskipti
voru tíð. Sumir þeirra manna létu félags-
og landsmál mjög til sín taka. Það er því
augljóst að strax á barnsaldri hefur Ját-
varður komist í snertingu við pólitíska
umræðu.
Hann hefur í blaðaviðtali gert grein
fyrir sínum pólitísku þenkingum á ung-
lingsárunum. Fyrst aðhylltist hann Fram-
sóknarflokkinn, en fljótlega fannst hon-
um sá flokkur hverfa um of frá sinni upp-
haflegu stefnu og þá skipaði hann sér í
raðir sósíalista og fylgdi þeirri stefnu æ
síðan. Mér hefur alltaf virst sósíalismi
Játvarðar mótast meir af hjartans einlægni
189