Réttur


Réttur - 01.10.1988, Blaðsíða 47

Réttur - 01.10.1988, Blaðsíða 47
Það er erfitt að gera sér grein fyrir, hvílíkt áfall það er einyrkja bónda með sjö börn í ömegð, að inissa starfsþrek sitt og finna líkama sinn visna skref fyrir skref. Hjá J átvarði var aldrei uppgjöf að finna. Hann barðist við sjúkdóm sinn með einstæðri hetjudáð. Hefi ég heyrt haft eftir læknum að sú barátta nálgaðist að vera brot á líffræðilegu lögmáli. Eftir því sem líkaminn visnaði og kraft- ana þraut, einbeitti hann sér æ meir að ritstörfum. Snemma fór hann að reifa skoðanir sín- ar á fundum og í blaðagreinum. Ritferil sinn hóf hann i handskrifuðu blaði ung- mennafélagsins og ræðumennsku á fund- um sama félags. Strax þá kom í ljós vald hans á íslensku máli. Staðgóö þekking og rökföst fram- setning. Á yngri árum þótti mörgum hann helst til óvæginn. En brandur hans var svo beittur og lögin markviss að mjög varð úr höggi að draga svo ekki sviði. Með auknum þroska mildaðist stíllinn en sljóvgaðist þó aldrei. Það var viðtekin venja samstarfsmanna hans, jafnt sam- herja sem andstæðinga, að fela honum að semja öll bréf, ávörp og orðsendingar. Hann virtist umhugsunarlaust leysa slík verkefni þótt öðrum fyndist ærinn vandi. Slíkt var vald hans á máli og efni. Eftir að hann gat ekki lengur haldið á penna, las hann fyrir en aðrir skrifuðu. Þegar höndin hætti að hlýða skipun tók hann að pikka á ritvél með priki, sem hann hafði i munninum. Nafn sitt skrifaði hann ávallt þannig að stýra penna með munninum. Síðustu árin hafði hann tekið tölvu í þjónustu sína. Við þessi skilyrði skrifaði hann fjórar bækur ásamt fjölda greina og annarra verkefna. Bækurnar eru: Umleikinn ölduföldum, útgefin 1979, Sigríður stórráða, 1985, Saga Torfa Bjarnasonar og Ólafs- dalsskóla, 1986 og Hefur liðugt tungutak, 1987. Þá hefur hann ritstýrt útgáfu marka- skrár Austur-Barðastrandarsýslu þrisvar sinnum. Þessi afköst virðast ærin heilbrigðum hvað þá lömuðum manni, nánast ofur- mannleg. Mörg þessara verka kröfðust söfnunar og könnunar heimilda, en hann gat hvorki handleikið bók né blað. Þar kemur til ómetanlegur þáttur konu hans, sent auk þess að annast hann sem sjúkling, aðstoðaði hann við að fletta 191

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.