Morgunblaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 4 . TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Endalaus kauporka Útsölurnar taka við af jólavertíðinni | Daglegt líf Viðskipti | Afar gott ár að baki í Kauphöllinni  Miklar breytingar á Odda Íþróttir | Heimir Örn inn fyrir Baldvin  Blikar fá tvo efnilega frjálsíþróttamenn Málið | Engar málalengingar  Þegar hlutirnir takast Stærsta útsalan er hafin! Opið til 21 í kvöld! Jerúsalem. AP, AFP. | Ar- iel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, fékk „mik- ið“ heilablóðfall í gær að því er fram kom hjá læknum eftir að hann hafði verið fluttur á sjúkrahús í skyndingu vegna vanlíðunar. Var jafnvel talið, að tvísýnt væri um líf hans. Hefur Ehud Olmert aðstoðarforsætisráðherra tekið við skyldum Sharons til bráðabirgða. Sharon, sem fékk heilablóðfall fyrir tæp- lega þremur vikum, átti að gangast undir hjartaaðgerð í morgun en í gær fann hann fyrir miklum verk fyrir brjósti og leið mjög illa. Læknir á Hadassah-sjúkrahúsinu í Jerúsalem sagði svo í gærkvöldi, að um mikla blæðingu hefði verið að ræða og heilaskaða. Væri Sharon á skurðstofu þar sem reynt væri að létta þrýstingi í heila. Óvissa í stjórnmálunum Veikindi Sharons, sem er 77 ára að aldri, valda mikilli óvissu í Ísrael og geta haft veruleg áhrif á þróunina í stjórnmálum landsins á næstunni. Nýlega sagði hann sig úr Likud-flokknum og stofnaði nýjan flokk, sem spáð er stórsigri í þingkosningunum í Ísrael í marslok. Fylgdu þá Sharon margir frammámenn í Likud og einnig kunnir menn í Verkamannaflokknum, til dæmis Shimon Peres, fyrrverandi leiðtogi hans. Ágreiningurinn í ísraelskum stjórnmálum snýst ekki síst um afstöðuna til Palestínu- manna og hernumdu svæðanna og því geta veikindi Sharons haft mikil áhrif á stöðuna í þeim málum á næstunni. Sharon alvarlega veikur Ariel Sharon Viðskipti, Íþróttir og Málið í dag ÁKVÆÐI um að starfskjarastefna stjórna og stjórnenda fyrirtækja skuli lögð fyrir hluthafafund til sam- þykktar verða í nýju frumvarpi um hlutafélög og einkahlutafélög sem Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- og iðnaðarráðherra hyggst leggja fram í upphafi vorþings. Frumvarpið byggist á tillögum sem nefnd um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis lagði fram í ágúst 2004 en byggt var á tillögum nefndarinnar við setningu nýrra samkeppnislaga í fyrra og segir Val- gerður að þetta frumvarp taki til seinni hluta tillagna nefndarinnar, sem snúi að starfsháttum fyrir- tækja. Hún segir að undir hugtakið starfskjarastefnu falli ráðningar- kjör, starfslokasamningar, kaup- réttarsamningar og fleira í þeim dúr. Starfsloka- samningar á borð við þá sem mikið hafi verið í um- ræðunni undan- farna daga falli hiklaust undir ákvæði frum- varpsins, að sögn ráðherra. Þá séu einnig í frumvarpinu ákvæði sem varða rétt minnihluta í félögum. „Til dæmis að handhafar 10% hlutafjár geti farið fram á rann- sókn og höfðað skaðabótamál, reyndar á eigin kostnað, og fleira í þeim dúr. Þetta er allt í því skyni að bæta stjórnarhætti fyrirtækja,“ seg- ir Valgerður. Eins og áður sagði byggist frum- varpið á tillögum nefndar viðskipta- ráðherra en í þeim tillögum var meðal annars kveðið á um að hlut- hafafundir samþykki kjör stjórn- enda. Valgerður segir að alltaf hafi staðið til að leggja frumvarpið fram nú á vorþingi og tillögur viðskipta- lífsnefndarinnar hafi legið frammi í rúmt ár en atburðir og umræða und- anfarinna daga um starfslokasamn- inga forstjóra FL Group hafi valdið því að fjölmiðlar og fleiri hafi farið að spyrja út í hvar tillögurnar væru staddar. Samfylking boðar frumvarp Í pistli á heimasíðu sinni í gær segir Össur Skarphéðinsson, þing- maður Samfylkingarinnar, að hann ásamt fleiri þingmönnum flokksins hafi lagt drög að frumvarpi til laga um breytingar á hlutafélagalögum. Í frumvarpi þeirra séu ákvæði um að félög af ákveðinni stærð verði skyld- uð til að leggja starfslokasamninga stjórnenda fyrir hluthafafund til samþykktar, umræðu eða synjunar. Ákvæði um stjórnir og stjórnendur í nýju frumvarpi Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Valgerður Sverrisdóttir Starfskjör skulu lögð fyrir hluthafafund  Starfslokasamningar | 4 Tallmansville. AP, AFP. | Mikil sorg og reiði ríktu í gær í kolanámabænum Tallmansville í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum en í heilar þrjár klukkustundir höfðu bæjarbúar staðið í þeirri trú, að tekist hefði að bjarga 12 af 13 mönnum, sem lok- uðust inni í námu eftir sprengingu. Eftir að fólk hafði fagnað gleði- fréttinni kom í ljós, að sannleikurinn var þveröfugur við það, sem spurst hafði út. Aðeins einn af mönnunum 13 fannst á lífi, hinir voru látnir. Ekki er alveg ljóst hvernig á mis- skilningnum stóð en talsmaður námafyrirtækisins telur, að einhver eða einhverjir hafi hlerað fjarskipti milli björgunarmiðstöðvarinnar og björgunarmanna niðri í námunni og misskilið það, sem þeim fór á milli. Sorg og reiði í kolanámabæ  Gleði breyttist/16 LANDSVIRKJUN áformar að bora 9–10 til- raunaholur eftir jarðgufu næstu þrjú árin á háhitasvæðum á Norðausturlandi, þ.e. í Bjarn- arflagi, við Kröflu, í Gjástykki og á Þeista- reykjum. Allt eru þetta álitleg svæði, að mati Landsvirkjunar. Þrjár holur verða boraðar strax næsta sumar. Orkuveita Reykjavíkur hefur staðið fyrir umfangsmikilli jarðhitaleit á Hellisheiði og bygging virkjunar þar er á lokastigi. Orkuveit- an hefur áform um virkjanir á Hellisheiði fram til ársins 2020. Þá er Hitaveita Suðurnesja að byggja gufuaflsvirkjun á Reykjanesi og er að bora þar eina holu til viðbótar þeim sem fyrir eru. Að sögn talsmanna fyrirtækjanna þriggja er næg eftirspurn eftir rafmagni til stóriðju. Huga þarf að rannsóknarborunum með góð- um fyrirvara því ferlið tekur langan tíma. Þá er um kostnaðarsamt verk að ræða, því hver rannsóknarhola kostar á bilinu 200–250 millj- ónir króna. | 6 Morgunblaðið/RAX Unnið er af miklum krafti við borun eftir jarðgufu á Hellisheiði fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Bor Jarðborana, Sleipnir, er notaður við verkið. Áforma boranir á Norðausturlandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.