Morgunblaðið - 05.01.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 29
NÚ þegar útsölur eru hafnar er ekki vitlaust að skipu-
leggja verslunarferðina áður en lagt er af stað svo fata-
skápurinn fyllist ekki af fötum sem voru sniðug í búðinni
en munu aldrei verða notuð.
Það er þess virði að horfa aðeins til framtíðar og hugsa
um hverju þú vilt klæðast sem eftir lifir vetrar og inn í vor-
ið. Þar sem það er heilmikið eftir af vetrinum eru öll hlý og
þægileg klæði skynsamleg kaup. Föt sem maður kaupir
ekki vanalega, eins og úr kindaskinni eða kasmír, er þess
virði að fjárfesta í, því þau munu endast í mörg ár.
Á vefsíðunni www.telegraph.co.uk eru nokkur
ráð um hverju á að vera vakandi fyrir á útsöl-
unum:
Púffermar, túlípana- og A-línupils munu öll
verða áberandi næsta vor og eru þess virði að
eyða peningum í. Leitaðu líka að öllu með hreinu sixtís-
sniði.
Einblíndu á áhugaverð og flott efni sem eru létt og
þunn, með fíngerðum blúndum og hekli. Þó minimal-
isminn í tísku sé að snúa aftur eru slaufur, fellingar,
pífur og blúndur ennþá áberandi fyrir næsta sum-
ar.
Horfðu eftir kvenlegum pilsum með slaufum
og borðum eða blússum í barokkstíl.
Jakkar, karlmannlegar skyrtur og hang-
andi buxur eru líka það sem koma skal með
vorinu.
Þrátt fyrir vinsældir svarta litarins
undanfarið segja hönnuðir að hvítur sé
litur vorsins. Góðir litir til að fjárfesta í
eru húðlitaður, mildur og rykugur
bleikur, súkkulaðibrúnn og aðrir
hlýir og hlutlausir litir. Það eru
líka nokkuð af grípandi litum með
popp-áhrifum.
Svo sparið tíma og pening á útsölunum með því
að vita hvað þið viljið áður en lagt er af stað.
TÍSKA
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Birkiaska
Hvít og hlý peysa er
alltaf í tísku. Úr Noa
Noa, var áður á
9.990 kr., út-
söluverð er
5.990 kr.
Morgunblaðið/Þorkell
Brúnt og létt pils með a-
sniði úr Monsoon gengur
enn í sumartískunni. Fór úr
5.650 kr. í 2.825 kr. á útsölu.
Blússa með pífum og
púffermum og köfl-
óttar hnébuxur
sóma sér vel á öll-
um næsta vor. Úr
Whistles í
Kringlunni,
30% afsláttur á
útsölu.
Antíkbleikur kjóll úr Noa Noa
verður flottur í útiveislunum
í sumar. Var á 11.490 kr
er nú á 6.890 kr.
Gerðu
góð kaup
á útsölum
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR