Morgunblaðið - 05.01.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 05.01.2006, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Miðborg | Slippurinn í Reykjavík verður vettvangur hátíðarhalda á þrettándanum. Verður þar skyggnst inn í sérkenni og stemmningu þessa sögulega svæðis í hjarta borgarinnar, en það tekur brátt stakkaskiptum þegar nýtt skipulag vegna Mýrargöt- ureits tekur gildi. Markmið hátíðarinnar er að varpa ljósi á leyndardóma svæðisins og hvetja fólk til að upplifa Slippinn í sinni nýverandi mynd. Af því tilefni verður lifandi myndum blandað við hljóðflaum og litróf Slippsins. Raf- væddir tónar Músikhvats munu líða um svæðið og rithöfundarnir Sig- urbjörg Þrastardóttir og Gunnar Hersveinn heiðra Slippinn með hug- leiðingum sínum. Þá verður frumsýnt vídeóverk bandaríska listamannsins Lee Walton, Making Changes, Reykjavik, Iceland, auk þess sem kveikt verður Slippabál. Dagskráin fer fram í Slippnum og versluninni Guerilla-Store, sem er til húsa í Slippfélagshúsinu við Mýr- argötu, en að henni standa hug- myndatilraunastofan Úrbanistan í samstarfi við Guerilla-Store og ýmsa velunnara og heimamenn í Slippnum. Ásýnd miðbæja gjörbreytist Ásta Olga Magnúsdóttir, annar að- standenda Úrbanistan, segir Slippinn og lík athafnasvæði hörfa óðum úr miðborgum víða um heim. Sjálf er hún alin upp í Vesturbænum, aðeins steinsnar frá Slippnum. „Þessi iðn- aðarsvæði sem hafa verið í mið- bænum eru smám saman að hverfa, ekki bara hér, heldur úti um allt, t.d. í Kaupmannahöfn. Það er margt sem hverfur með því, t.d. form og litir og stemmning á hafnarsvæðum og þá gjörbreytist ásýndin og stemmningin í þessum hverfum,“ segir Ásta Olga og bætir við að breytingarnar séu ekki endilega slæmar, en mjög vand- meðfarnar. „Það er viss tregi í manni og líka viss tilhlökkun og það skiptir máli hvernig þessar breytingar ger- ast. Það er ekki sama hvernig er breytt. Við erum ekki á móti breyt- ingunum, en viljum vera mjög vak- andi og hafa samræðu um hvaða hug- sjónir liggja að baki nýju umhverfi.“ Ásta Olga og félagi hennar í Úr- banistan, Anna María Bogadóttir, hafa lengi velt fyrir sér gildismati menningarlandslags og umhverf- isgæða. „Það fara t.d. fram húsakann- anir þegar verið er að endur- skipuleggja, en það verður ýmislegt eftir, sem er erfitt að leggja mat á hvers virði er,“ segir Ásta Olga. „Svo skiptir líka miklu máli að vera með- vitaður um svæðið eins og það er núna, að það getur átt sinn þátt í að blása nýju lífi í svæðið í framtíðinni. Það er ákveðinn persónuleiki og stemmning hérna og margir sem hafa oft sagt að ef hverfi hafi engan kar- akter séu þau ekkert rosalega spenn- andi. Það er ekki auðvelt að búa til karakter og skapa sál í hverfi eða húsi. Það er ekki auðvelt að skipu- leggja það ofan frá, heldur verður það að koma frá fólkinu.“ Minningum safnað Ásta Olga og Anna María tóku meðal annars þátt í sýningunni „Hvernig borg má bjóða þér?“ sem var sett upp í september í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Framlag þeirra var þá tilraunastofan Úrban- istan, þar sem var m.a. að finna kort af Reykjavík þar sem fólk gat sett inn punkta þar sem það fengi mesta orku og innblástur og hvar það hitti fólk. Þá var hægt að setja inn á kortið uppáhalds göngutúra fólks og fleira. Þetta kort má nú finna á netinu á www.urbanistan.org/borgartilraun1, en á því má segja að einhver huglæg gildi borgarinnar séu kortlögð. Á meðan á hátíðinni stendur og næstu tvo daga eftir hana, verður hugmyndum og minningum um Slippinn sem og sögum og hlutum úr Slippnum safnað saman og komið fyr- ir í svonefndu tímahylki í þar til gerð- um Slippabanka. Verður þar að sögn aðstandenda hátíðarinnar um að ræða huglæg verðmæti sem hægt verður að leysa út í framtíðinni. Minningum um Slippinn safnað saman á sérstakri Slipphátíð á þrettándanum Skoða þarf menningarlands- lag sem víkur Morgunblaðið/Árni Sæberg Hugmyndasmiðir Anna María Bogadóttir og Ásta Olga Magnúsdóttir starfrækja hugmyndatilraunastofuna Úr- banistan þar sem þær velta fyrir sér borgarumhverfi og hugmyndafræði í skipulagi. Gamalt umhverfi Slippurinn gamli víkur brátt fyrir nýju skipulagi. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is TENGLAR .............................................. www.urbanistan.org www.guerilla-store.com HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI ÞRETTÁNDAGLEÐI Íþrótta- félagsins Þórs verður haldin á morg- un, föstudaginn 6. janúar, á íþrótta- svæði Þórs við Skarðshlíð og hefst hún klukkan 19. Að þessu sinni verður Þrett- ándagleðin með breyttu sniði, þar sem hún fer að hluta til innandyra í Fótboltaskemmunni á félagssvæð- inu. Þór hefur fengið fjöllistamann- inn Örn Inga til þess að hafa umsjón með Þrettándagleðinni að þessu sinni og það mun eflaust gefa hátíð- inni nýjan og ferskan blæ. Auk hinna hefðbundnu skemmti- atriða s.s. álfakóngur og -drottning, tröll, jólasveinar, púkar sem verða á svæðinu mun söngvarinn Jónsi mæta á hátíðina og taka lagið með börnunum. Í lokin mun síðan verða haldin mikilfengleg flugeldasýning. Þrettándagleði ÞAU voru bara kát og hress, krakk- arnir í 7. bekk Síðuskóla þar sem þau gengu fylktu liði frá skólanum sínum í sundkennslu, en hana sækja þau í Glerárlaug við Glerárskóla. Eflaust hefur mörgum reynst erfitt að vakna fyrir alla aldir í gærmorg- un, þegar skólar hófu starfsemi sína á ný. Oft vill það verða svo í jólaleyfum skólanema að sólar- hringnum er snúið dálítið við, vak- að fram eftir nóttu og sofið fram á dag. Þessir krakkar virtust samt bara hin ánægðustu með að hittast á ný í skólanum og taka upp dag- legar venjur. Þá er gott að taka hressandi sundsprett og skola af sér jólaletina og flugeldarykið. Morgunblaðið/Rúnar Þór Skola af sér jólaletina! ÍBÚUM á Eyjafjarðarsvæðinu fjölgaði um 186 manns, sem er 0,8%, þeir voru 23.176 í lok árs 2004 en voru 23.362 í byrjun des- ember á nýliðnu ári samkvæmt upplýsingum sem Hagstofan tek- ur saman. Þetta er þó nokkuð undir landsmeðaltali, sem er 2,1%. Mest munar um fjölgun íbúa á Akureyri um 277 íbúa eða 1,7% sem er hlutfallslega sama fjölgun og á höfuðborgarsvæðinu. Hlut- fallslega er þó fjölgunin langmest í Grímsey eða um 11% en þar fjölgaði íbúum úr 92 í 102. Íbúum fjölgar auk þess um 20 í Svalbarðsstrandarhreppi eða um 5.5% og eru þeir nú 382 og í Hörg- árbyggð um 8, eða 2% og eru íbú- ar þar nú 399 talsins. Á öðrum stöðum í Eyjafirði fækkaði fólki, hlutfallslega mest í Grýtubakka- hreppi þar sem nú eru 366 íbúar en þeir voru 388, fækkaði um 22 í sveitarfélaginu á milli ára eða 5,7%. Á Siglufirði fækkaði um 42 eða um 3%, á Ólafsfirði fækkaði um 34 eða um 3,5%, í Dalvíkurbyggð fækkaði um 6 manns eða 0,3%, í Arnarneshreppi fækkaði um 8 eða 4,3% og í Eyjafjarðarsveit fækk- aði úr 995 í 978 eða um 17 manns sem eru 1,7%. Eyjafjarðarsvæðið Íbúum fjölgaði um 0,8% JÓLATRJÁM bæjarbúa verður að venju safnað saman að loknum jól- um og þau nýtt til endurvinnslu. Markmiðið er að minnka magn sorps sem fer til urðunar og end- urnýta jólatrén, um leið og bæj- arbúum er gert hægara um vik að losa sig við trén. Jólatré sem lokið hafa hlutverki sínu verða kurluð og afurðin m.a. notuð til jarðvegs- gerðar. Gefst bæjarbúum kostur á að setja trén í sérstaka gáma sem verða við Kaupang, Hagkaup, Sunnuhlíð og verslunina Síðu, dagana 6. til 13. janúar. Gámarnir eru eingöngu ætlaðir fyrir jólatré. Þar að auki má koma með trén á gámastöðina við Rétt- arhvamm þegar þar er opið. Þá verða starfsmenn Framkvæmda- miðstöðvar bæjarins á ferðinni í hverfum bæjarins í næstu viku, frá mánudegi til föstudags og safna jólatrjám sem sett hafa verið út að götu við lóðarmörk. Ekki verður safnað trjám frá fyrirtækjum og stofnunum en forsvarsmönnum þeirra er bent á að nýta sér söfn- unargáma og gámastöðina við Rétt- arhvamm. Þá verður tekið á móti afgangs- trjám frá söluaðilum jólatrjáa á sorphaugasvæðinu á Glerárdal. Trén þurfa að vera án umbúða og þau þarf að vigta áður en þau fara til úrvinnslu á jarðgerðarsvæðinu, seg- ir í frétt á vef Akureyrarbæjar. Jólatrén endurnýtt HA haldi stöðu sinni | Vörður, fé- lag ungra sjálfstæðismanna á Ak- ureyri, hefur sent frá sér ályktun, þar sem skorað er á Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra, að leita leiða til að tryggja rekstrargrundvöll Háskól- ans á Akureyri svo skólinn haldi sterkri stöðu sinni. Í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar kom fram að tekjur á hvern háskólanema eru um 30% lægri við Háskólann á Akureyri en við Háskóla Íslands. Þetta er að mati Varðar óásættanlegt og þarf að leiðrétta. Háskólinn á Akureyri hef- ur sýnt að hann á betra skilið. Tekið er undir orð Þorsteins Gunn- arssonar rektors um að staða mála sé óásættanleg, auka þarf möguleika skólans til að afla sértekna, framlag til rannsókna þarf að hækka og húsaleigukostnað vegna Borga þarf að bæta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.