Morgunblaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lokað í dag Útsalan hefst á morgun klukkan 11.00 Barnafataverslun • Skólavörðustíg 20 • sími 561 5910 FRÉTTIR þess efnis að Fjármálaeftirlitið hefði tilkynnt embætti ríkislög- reglustjóra grun um að lög um fjármálafyrirtæki hefðu verið brotin við kaup á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar síðastliðið sumar, koma stjórn sjóðsins gjörsamlega í opna skjöldu. Þetta segir Ingólfur Flygenr- ing, varaformaður stjórnar SPH. Í frétt í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að samkvæmt heimildum blaðsins hefði lögreglan hafið rannsókn á þessu máli. Fram kom í fréttinni að grunur um brot á lögum um fjármálafyrirtæki beinist m.a. að því að virkur eignarhlutur hafi orðið til í sparisjóðnum og að upplýsingum hafi verið leynt fyrir FME ásamt því að gefnar hafi verið rangar upplýsingar í því sambandi. „Við höfum talið okkur fara að lögum og vorum því í góðri trú,“ segir Ing- ólfur. „Að öðru leyti verð ég að vísa á FME. Þetta er alfarið komið frá þeim. Við höfum reynt að fá upplýsingar frá stofnuninni en fáum engar.“ Hann segir að allar breytingar á stofnfjárhlutum í SPH hafi eðlilega far- ið í gegnum stjórnina, eins og lög um fjármálafyrirtæki kveði á um. „Og við höfum borið hverja einustu breytingu undir FME og engu gengið frá nema með þeirra vitneskju. Þetta kemur okkur því gjörsamlega í opna skjöldu.“ FME upplýst um viðskipti Íslandsbanka Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka keypti bankinn nokkra stofn- fjárhluti í SPH á árinu 2005 og miðlaði hluta þeirra til þriðja aðila. Segir bankinn að Fjármálaeftirlitið hafi verið upplýst um þessi viðskipti. Kemur stjórn SPH í opna skjöldu MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi athugasemd frá stjórn Sparisjóðs Hafnar- fjarðar: „Vegna fréttar sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins í morg- un, um rannsókn á viðskiptum með stofnfé í Sparisjóði Hafn- arfjarðar, vill stjórn sparisjóðs- ins koma eftirfarandi á fram- færi: Í júní s.l. tilkynnti Fjármála- eftirlitið stjórn sparisjóðsins, og öllum stofnfjáraðilum, að það hefði til skoðunar hvort virkur meirihluti hefði hugsanlega stofnast í sparisjóðnum. Sú rannsókn sem nú er hafin er væntanlega hluti af þeirri skoð- un. Stjórn sparisjóðsins getur ekki tjáð sig um nein efnisatriði þessarar rannsóknar enda hefur hún engar forsendur til þess.“ Athugasemd stjórnar SPH SEMJI stjórnarformaður félags sem skráð er í Kauphöll Íslands um kjör við forstjóra þess án þess að starfskjaranefnd félagsins komi þar að máli er það ekki í samræmi við leiðbeiningar um stjórnhætti fyrir- tækja. Í nefndinni eiga samkvæmt leiðbeiningunum að sitja að minnsta kosti tveir fulltrúar sem eru óháðir félaginu. Þetta kom fram í máli Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallar Íslands, í Kastljósi Sjón- varpsins í gærkvöldi. Í samtali við Morgunblaðið segir Þórður að mælst sé til þess í reglum Kauphallarinnar að farið sé eftir þessum leiðbeiningum. Hann segir að það grunnatriði sé í leiðbeining- unum að verði frávik frá þessum til- mælum sé það rökstutt í árs- skýrslum eða ársreikningum hvers vegna þau hafi orðið. Þórður var í þættinum spurður hvort þetta ætti við ef Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group, hefði samið beint við Hannes Smárason, forstjóra félags- ins, um kjör án þess að launanefnd kæmi þar nærri og svaraði Þórður því játandi. Skarphéðinn Berg segir í samtali við Morgunblaðið að staðið hafi verið að launasamningum við Hannes samkvæmt lögum. „Þessir samning- ar voru gerðir af stjórninni enda á ábyrgð hennar, nákvæmlega eins og lög segja til um,“ segir Skarphéðinn og leggur áherslu á að leiðbeinandi tilmæli séu einmitt leiðbeinandi. Þórður Friðjónsson leggur áherslu á að upplýsingar um kjör forstjóra FL Group komu fram í skráningarlýsingu félagsins og segir það mjög mikilvægt atriði að upplýs- ingar af þessu tagi liggi fyrir þannig að markaðurinn geti tekið mið af því. Aðspurður segist Þórður ekki vera að gera athugasemd við samn- inga FL Group og Hannesar Smára- sonar á þessu stigi málsins. Leiðbeiningar eru leiðbeiningar Stjórnarformaður FL Group segir að rétt hafi verið staðið að samningum UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til að gera athugasemdir við skipun forsætisráðherra á nýjum umboðsmanni barna, en tveir um- sækjenda kærðu skipunina til um- boðsmanns Alþingis. Sextán sóttu um stöðu umboðs- manns barna, þ.á m. fimm lögfræð- ingar og var Ingibjörg Rafnar ein þeirra. Hún var skipuð í stöðuna, en tveir umsækjendur, sem ekki voru löglærðir, sendu umboðsmanni Al- þingis kvörtun vegna skipunarinnar, þeir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, og Jón Björns- son, sálfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri félags- og menn- ingarsviðs Reykjavíkurborgar. Umboðsmaður Alþingis segir að með lögum um umboðsmann barna hafi löggjafinn kveðið skýrt á um þær menntunarkröfur sem gera eigi til þess sem gegni embættinu og að ým- iss konar háskólamenntun geti komið að góðum notum við rækslu starfans. Eftir sem áður telji hann að forsætis- ráðherra hafi almennt á grundvelli skipunarvalds síns heimild til að meta eftir aðstæðum hvaða menntun verði helst talin mæta þörfum starf- seminnar hverju sinni og þeim mark- miðum sem liggja henni til grund- vallar. „Ef tekið er mið af þeim rökum sem forsætisráðuneytið hefur fært fyrir þeirri ákvörðun að skipa lög- fræðing í embættið fæ ég ekki séð að ólögmæt markmið liggi henni til grundvallar,“ segir umboðsmaður. Þá segir hann að þær upplýsingar sem komið hafi fram í umsóknum og fylgigögnum þeirra hafi sem slíkar nægt ráðherra til að taka ákvörðun um skipun í embætti umboðsmanns barna á grundvelli þeirra sjónarmiða sem hann hafði ákveðið að byggja á, þ.e.a.s. að æskilegt væri að lögfræð- ingur yrði skipaður. Þegar litið sé til þeirra fimm umsókna frá lögfræðing- um og þess munar sem var á þeim hvað varði starfsreynslu og sérstak- lega reynslu af málefnum barna „tel ég mig ekki geta fullyrt að sá skammi tími sem ráðherra tók sér til að fjalla um fyrirliggjandi umsóknir hafi leitt til þess að undirbúningur ákvörðunar og þar með rannsókn málsins hafi ekki uppfyllt þær lágmarkskröfur sem leiða af rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga“, segir umboðsmað- ur ennfremur. Starfsviðtöl ekki skylda Hann fjallar einnig um þá kvörtun viðkomandi að umsækjendum hafi ekki gefist tækifæri til að gera grein fyrir sér í sérstöku viðtali en það sé óskráð regla í þessum efnum. Það sé ekki talið leiða af rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins að stjórnvöldum sé ávallt skylt að gefa umsækjendum tækifæri til þess að gera nánari grein fyrir sér í starfsviðtölum eða með því að afla frekari upplýsinga. Það ráðist af því „hvaða upplýsinga er talið nauðsynlegt að afla til að málið sé nægjanlega upplýst með tilliti til þeirra sjónarmiða sem veitingarvald- hafinn hefur ákveðið að byggja á við val sitt á milli umsækjenda“. Niðurstaða umboðsmanns Alþingis vegna kæru í kjölfar skipunar forsætisráðherra í embætti umboðsmanna barna Ekki gerðar athuga- semdir við skipunina Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is VIÐ liggur að vor sé í lofti og skarfarnir farnir að huga að sumrinu þótt enn sé hávetur og ekki komið að þorra. Þótt hitastigið geti blekkt er skammdegið enn samt við sig og sveiflast ekki í takt við umhleypinga. Þessir skarfar í Örfirisey leiða hugann þó tæpast að þessum atriðum, hugsa líklega um næstu máltíð. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þenkjandi skarfar í Örfirisey ÖSSUR Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segist vera að undirbúa frumvarp til laga sem skylda félög af tiltekinni stærð til að leggja starfslokasamninga stjórn- enda fyrir hluthafafund til sam- þykktar eða synjunar. Frumvarpið mun fela í sér breytingar á hluta- félagalögum og verður að sögn Öss- urar lagt fram á Alþingi er þing kem- ur saman nú í janúar. Meðflutn- ingsmenn verða aðrir þingmenn úr Samfylkingunni. Össur segir að síðustu daga hafi komið fram að tilteknir einstaklingar hafi fengið ríflega starfslokasamn- inga, jafnvel samninga sem svari til nærri einnar milljónar króna fyrir hvern unninn dag. „Ég tel að samn- ingar sem þessir geti í mörgum til- vikum verið í beinni andstöðu við hagsmuni einstakra hluthafa, s.s. smærri hluthafa, þótt það kunni hins vegar að henta tilteknum stjórnend- um t.d. til að tryggja að viðkomandi einstaklingur þegi yfir því sem stjórnin vill síður að komist í há- mæli.“ Össur segir að svipuð tillaga hafi komið fram í áliti nefndar viðskipta- ráðherra um íslenskt viðskiptaum- hverfi í september 2004. Þar er lagt til að stjórnum verði skylt að fá sam- þykki hluthafafundar á starfskjara- stefnu fyrir stjórnendur, þar á meðal varðandi kaupréttarsamninga, ár- angurstengdar greiðslur, hlunnindi, uppsagnarfrest og starfslokasamn- inga. Í álitinu er mælt með því að starfskjarastefnan verði leiðbeinandi fyrir stjórnir, en þeim verði skylt að greina frá því ef vikið er frá stefnunni og rökstyðja ástæður þess. Stefna varðandi kaupréttarsamninga skuli þó vera bindandi fyrir stjórnir félaga. Össur segir í samtali við Morgun- blaðið að tillögur sínar muni þó ganga lengra, því með frumvarpinu verði lagt til að stjórn fyrirtækis verði gert skylt að fara að samþykkt hluthafafundar. „Við, sem erum áhorfendur að átökum og glímu stór- kapítalsins, getum auðvitað fellt okk- ar siðferðilegu dóma og hrist höfuð af hneykslun. Í slíkum tilvikum eru hins vegar engir í færum með að fella dóma sem geta haft áhrif – nema hluthafarnir í viðkomandi fyrirtækj- um,“ segir Össur ennfremur á vef- síðu sinni um þessi mál. Össur Skarphéðinsson undirbýr frumvarp um starfslokasamninga Verði bornir undir hluthafafund
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.