Morgunblaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 18
                                                        !  " # $  %%  & '' ( ) * +  $ ,  ) - &. -/  0  $ 1     2 3  4  3 5 (      ) !  6 3    7       89 ) 9 % ):  ; ! 3 < =  > !   ;   % $  ? 9( @   &   AB MÁLIÐ ER Í MIÐJUN NI Á MOG GANUM Í DAG Akureyri | Það er eiginlega nokkurs konar vorstemmning í höfuðborg hins bjarta norðurs, eins og Akureyri er stundum kölluð á hátíðarstundum. Blóm springa út sem á vordegi og menn keppast við að spúla plön og dunda við verk sem annars er hefðbundið að sinna þegar lengra er komið fram á árið. Á Akureyrarflugvelli gengur lífið líka sinn vanagang í blíðviðrinu, en þar á bæ eru menn bara nokkuð hressir, enda stöðug aukning í fluginu. Morgunblaðið/Margrét Þóra Er sumarið alveg að koma? Vorstemmning Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds- dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu Selma ráðin | Selma Dögg Sigurjóns- dóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar til eins árs í fjarveru Mar- grétar Víkingsdóttur sem er í fæðing- arorlofi. Selma Dögg var valin úr hópi þrettán umsækjenda. Selma er Akureyr- ingur, hún útskrifaðist sem viðskiptafræð- ingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2003 og er auk þess með mastersgráðu í stjórnun frá Oxford Brooks University í Englandi. Selma Dögg hefur þegar tekið til starfa á fjármála- og stjórnsýslusviði. Risatjald í Borgarnesi | Bæjarráð Borg- arbyggðar hefur vísað ósk Hlauparans ehf., um leyfi til að reisa 4.000 fermetra tjald í Borgarnesi, til umhverfis- og skipulags- nefndar. Í bréfi sem Hlauparinn ehf. sendi bæjarráði kemur fram að óskað er eftir lóð undir tjaldið og eru nefndir sem hugs- anlegir staðir Seleyri, við golfvöllinn eða á Ölduhrygg ofan Borgar. Í tjaldinu hyggst félagið reka 600–1.000 metra langa go-kartbraut, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. Í bréfinu kemur fram að félagið eigi tjaldið nú þegar klárt til uppsetningar. Er óskað eftir um 12 þúsund fermetra svæði en meira svæði gefi möguleika á frekari af- þreyingu. Þá segir að auk akstursbraut- arinnar eigi að bjóða upp á sýningarhald og aðrar uppákomur á svæðinu og hafa fjöl- breytta afþreyingu fyrir ferða- sem og heimamenn. Reykjavík | Tollskóli ríkisins var sett- ur föstudaginn 13. janúar sl. Tollskól- inn er starfræktur við embætti toll- stjórans í Reykjavík. Skólinn veitir tollvörðum og starfsfólki í tollend- urskoðun grunn- og sérmenntun í ýmsum greinum á sviði tollheimtu og tollgæslu. Nemendur koma frá tollstjóranum í Reykjavík og sýslumanninum á Kefla- víkurflugvelli. Allir sýslumenn á land- inu eiga kost á að senda nemendur í inntökupróf fyrir tollskólann. Mikil vinna hefur farið fram á síð- ustu mánuðum við að endurskoða námskrá og kennslufyrirkomulag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Nemendur í skólanum eru 12 talsins. Ellefu nemendur eru á tollvarðabraut og einn nemandi er á tollendurskoð- unarbraut. Margvísleg sí- og endur- menntun tollstarfsmanna fer einnig fram á vegum skólans auk þess sem haldin eru ýmis námskeið á hans veg- um ætluð utanaðkomandi aðilum sem fást við inn- og útflutning. Tólf nemendur í Tollskólanum Rúnar Kristjánssoná Skagaströnd lasvísu um „pillow talk“ eða koddahjal á þessum stað og rifjaðist upp fyrir honum kvik- myndin Pillow Talk með Rock Hudson og Doris Day: Þó prýðilegt sé Pillow Talk ef pent er hagað orðum, rifust niðŕ í rauðleitt kok Rock og Doris forðum! Pálmi Jónsson las Mína stund og var ánægður með vísur Rúnars sem þar birtust. Pálmi orti: Rúnar yrkir enn sem fyrr, alls ómyrkum huga. Andinn styrkur aldrei kyrr illsku virkin buga. Ei má gylla, eitrað loft, orsök hillinganna. Réttir illir reynast oft, raunafylling manna. Davíð Hjálmar Har- aldsson yrkir limru: Grýttur og hrjúfur er Hengill. Í hálku þar upp gekk í spreng ill um mosa og grjót Munnhvata-Ljót og þar varð hún orðljótur engill. Enn af koddahjali pebl@mbl.is Reykjanesbær | Liðlega 65% þeirra sem af- stöðu tóku í skoðanakönnun Tíðindanna um fylgi væntanlegra fram- boðslista við komandi bæjarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ segjast myndu kjósa Sjálfstæð- isflokkinn, ef kosið væri í dag. Rúmlega 29% segj- ast styðja sameiginlegt framboð Samfylkingar- innar, Framsóknar- flokksins og óháðra. Í könnuninni kom einnig fram ánægja með störf Árna Sigfússonar bæjarstjóra. Héraðsfréttablaðið Tíðindin á Suðurnesj- um fékk IMG Gallup til að gera skoðana- könnun um fylgi væntanlegra framboða í Reykjanesbæ og birtir niðurstöðurnar í blaðinu í dag. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft hreinan meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar frá síðustu kosningum og samkvæmt könnuninni myndi flokkurinn bæta við sig ef kosið væri nú. 65,4% þeirra sem afstöðu tóku kváðust styðja flokkinn. Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn eru í minnihluta í bæjarstjórn og undirbúa sameiginlegt framboð sem óháðir kjósendur munu eiga aðild að. 29,3% þeirra sem af- stöðu tóku segjast styðja það framboð og 5,3% aðra flokka eða framboð. Ánægðir með störf bæjarstjórans Jafnframt voru viðhorf íbúa Reykjanes- bæjar til starfa Árna Sigfússonar bæjar- stjóra könnuð. Niðurstaðan varð sú að 67,3% þátttakenda kváðust mjög ánægð eða frekar ánægð með störf bæjarstjórans, tæp- lega 20% sögðust hvorki ánægð né óánægð en liðlega 13% voru frekar óánægð eða mjög óánægð með störf Árna. Könnunin var gerð 13. til 23. janúar. 746 íbúar Reykjanesbæjar voru í úrtaki og svar- hlutfall var 71,3%. Sjálfstæðis- flokkur fengi 65% atkvæða Árni Sigfússon Skoðanakönnun Ánægja | Vörður, félag ungra sjálfstæð- ismanna á Akureyri, lýsir yfir ánægju sinni með þau tíðindi að Iceland Express hafi í hyggju að hefja beint flug milli Ak- ureyrar og Kaupmannahafnar nú í sumar. Jafnframt fagnar félagið tilkomu skipa- félagsins Byrs, sem mun veita reglu- bundna þjónustu milli Akureyrar og hafna víðs vegar í Evrópu. Mun félagið hafa já- kvæð áhrif á fyrirtæki á Norðurlandi sem standa í útflutningi og leiða til minni um- ferðar á stórum bílum á þjóðvegi 1. ♦♦♦ HÉÐAN OG ÞAÐAN Háskólasetur opnar dyr | Háskólasetur Vestfjarða tók nú um áramótin í notkun nýtt húsnæði í Vestrahúsinu að Suðurgötu 12 á Ísafirði. Nú eru Háskólasetrið, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Þróun- arsetur Vestfjarða undir einu þaki og starf- semin að komast í þá mynd sem væntingar stóðu til. Formleg opnun hússins verður á laug- ardagi og hefst opnunardagskrá klukkan 14. Að lokinni formlegri dagskrá verður síð- an opið hús og verða léttar veitingar í boði. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Skúli Ólafsson og Már Jónsson munu halda erindi í húsnæði Háskólasetursins kl. 17, sama dag, í tilefni af fjögurra alda af- mæli Brynjólfs biskups Sveinssonar. Erindi þeirra eru haldin í tengslum við sýningu sem nú stendur yfir í Safnahúsinu á Ísa- firði, Prestastefnudómar Brynjólfs biskups og íslenskt samfélag á 17. öld.      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.