Morgunblaðið - 02.02.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 25
DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR
„DÓSAMATUR er sniðugur, hann
er ekkert fallegur í dósinni en er yf-
irleitt mjög góður á bragðið. Oft
fæst líka spennandi matur í dósum,
ég kaupi stundum dósamat í útlönd-
um og kem með heim. Uppi í hillu á
ég t.d. niðursoðnar svínalappir frá
Spáni sem ég ætla borða við gott
tækifæri,“ segir Kristján Valur
Jónsson matgæðingur. Hann segist
yfirleitt ekki gera nein stórinnkaup
en kaupi talsvert af dósamat og
öðru tilbúnu fæði í Europris og
ferskvöru í Nóatúni. Kristján segir
sig vera árstíðamann í matargerð
og því sé dósamatur mikið á borðum
hjá honum núna. „Ég borða mat
sem passar við árstíðirnar, t.d er ég
ekki mikið fyrir að borða ferskt sal-
at á veturna heldur er dósamatur,
eins og baunir og makríll, meiri
vetrarmatur.“
Aðspurður hvað heilli hann svona
við Europris segir Kristján að þetta
sé matvörubúð fyrir karlmenn. „Í
búðinni eru sniðugar og þægilegar
matvörur annars vegar og svo getur
maður keypt framlengingarsnúru í
næstu hillu hins vegar, t.d. við hlið-
ina á makrílsdósunum eru laxanet.“
Kristján telur sig frekar hagsýn-
an í innkaupum. „Ég kaupi ekki
vörur bara vegna þess að þær heita
einhverju fínu nafni eða eru með
upprunavottorði. Ég er mikill aðdá-
andi iðnbyltingarinnar í mat og er
svolítið í andófi við þessa nátt-
úrudýrkun sem er í mat núna. Stað-
reyndin er sú að iðnbyltingin hefur
brauðfætt heiminn.“
Íslensk matarmenning snobbuð
Kristján segist ekki elda mikið
enda séu þau bara tvö í heimili.
„Þegar ég elda bý ég til einhvers
konar kjötrétti, kássur og annað
slíkt en þegar það er skyndimatur
held ég mikið upp á frosnar pítsur
sem fást í Europris.“ Kristján segir
það vissa eldamennsku að hita upp
frosna pítsu og sérstaklega ef hann
bætir einhverju á hana. Konan
hans, Erla Óskarsdóttir, er ágæt-
lega sátt við þessa eldamennsku en
Kristján segir hana vera meira fyrir
ferskvörur og hollustu en dósamat.
„Ég kaupi oftar inn og elda meira
en hún en mér finnst mjög gaman
þegar hún eldar og kemur mér á
óvart. Ég hef mjög gaman af fram-
andi og spennandi mat svo lengi
sem hann er ekki alltaf aust-
urlenskur. Mér finnst martarmenn-
ingin á Íslandi ágæt en samanborin
við þýska matarmenningu er hún
svolítið snobbuð. Fólk á voðalega
erfitt með að sætta sig við hefð-
bundinn íslenskan mat og þá er ég
ekki að tala um súrmat heldur
venjulegan mat eins og kjötbollur í
brúnni sósu með kartöflumús, þetta
þykir ekkert fínt. Þjóðverjar halda
mikið upp á heimilismat en Íslend-
ingar gleyma honum og elda alltaf
rosalega framandi og nýstárlegan
mat.“
Bjúgu herramannsmatur
Kristján segir saltfisk vera í
miklu uppáhaldi hjá sér. „Ég elda
hann ekki oft en ég hef verið mikill
saltfiskkarl í gegnum tíðina og býð
mér stundum í heimsóknir þar sem
hann er á borðum. Ég bjó lengi í
Þýskalandi og þar af leiðandi er ég
líka áhugamaður um kjöt og finnst
pylsur og íslensk bjúgu mjög góður
en vanmetinn matur. Að fá sér
bjúgu einu sinni í mánuði er ægilega
gott,“ segir Kristján en vinnu-
félagar hans hjá hugbúnaðarfyr-
irtækinu CCP hf. hafa ekki farið
varhluta af þeim áhuga Kristjáns.
„Við búum svo vel í vinnunni að
vera með frábæran kokk sem er af
gamla skólanum. Stundum eldar
hann eftir mínum óskum og ekki
alltaf við mikla hrifningu starfs-
félaganna, t.d. hef ég staðið fyrir
reglulegum bjúgnaveislum í
vinnunni.“
Kristján ætlar að gefa lesendum
uppskrift að sniðugum partírétti.
„Þessa ostasúpuuppskrift fékk ég
hjá þýskum vini mínum sem var
skriðdrekakennari í austur-þýska
hernum. Ég hef boðið upp á súpuna
í partíum og þykir hún lostæti, sér-
staklega á veturna því hún er þung
og saðsöm. Uppskriftin er fyrir 8–
10 manns,“ segir Kristján að lokum.
HVAÐ ER Í MATINN? | Finnst dósamatur sniðugur og spennandi
Iðnbyltingin hefur
brauðfætt heiminn
Morgunblaðið/ÞÖK
Kristján Valur Jónsson birgir sig gjarnan upp af dósamat í Europris.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Ostasúpa
1 kg svínahakk
4 stórir laukar
3–4 púrrulaukar
1 stór dós af sveppum
300 g smurostur án bragðefna
(góðostur)
300 g smurostur með
blaðlauk
1,5 l kjötsoð, t.d. úr
súputeningum
Brúnið hakkið. Saxið lauk og
púrru og bætið saman við ásamt
soðinu. Bætið við sveppunum
ásamt safanum úr dósinni.
Eftir u.þ.b. 20 mínútna suðu,
kryddið með salti, pipar og
múskati.
Að síðustu er ostinum hrært
saman við og dill eða steinselja
sett út í að lokum.
Hafa má öðruvísi smurosta í
uppskriftina, t.d. beikon- eða hvít-
lauksost. Einnig er upplagt að
drýgja hana með gömlum osta-
afgöngum úr ísskápnum.
Þetta er síðan borið fram með
þéttu brauði, t.d. Dinkelberger.
Uppskriftin er nokkuð stór svo
að sjálfsagt er að helminga hana
fyrir smærri samsæti.
Sniðugur partíréttur