Morgunblaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 51
hljómsveit Björgvins Halldórssonar, hljóm-
sveitin Papar, Brynhildur „Piaf“ Guðjóns-
dóttir, Helgi Björns, Leone Tinganelli og
Delizie Italiane. Hemmi Gunn og Logi Ólafs-
son veislustjórar. Forsala á Súfistanum og á:
thorri@ftp.is
Skemmtanir
Kiwanishúsið | Félagsvist alla fimmtud. í
Kiwanishúsinu Mosfellsbæ, í landi Leirvogs-
tungu við Vesturlandsveg. Spilaverðlaun,
kaffi. S. 566 7495, húsið opnað kl. 20.
Fyrirlestrar og fundir
Félag stjúpfjölskyldna | Fræðslufundur kl.
17.15 í Hringsjá, Hátúni 10d. Yfirskrift:
Hvernig er að tilheyra stjúpfjölskyldu? Björk
Erlendsdóttir félagsráðgjafi flytur erindi um
rannsókn sína á upplifun og reynslu stjúp-
barna og Júlía Sæmundsdóttir háskólanemi
lýsir reynslu sinni. Aðgangur ókeypis.
Garðyrkjufélag Íslands | Á fræðslufundi
Garðyrkjufélagsins heldur Jóhann Pálsson
grasafræðingur, erindi sem hann nefnir
„Harðgerar runnarósir“. Fundurinn er í sal
Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi 1 kl. 20.
Jóhann fjallar um rósir sem vaxa á Íslandi.
Gigtarfélag Íslands | Margrét S. Jónsdóttir,
félagsráðgjafi og forstöðumaður þjónustu-
miðstöðvar TR, heldur erindi, febrúar kl.
19.30, í Ármúla 5, 2. hæð. Erindið nefnist:
Viltu vita rétt þinn til almannatrygginga?
Nánari upplýsingar á www.gigt.is.
Kraftur | Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks
sem greinist með krabbamein og aðstand-
endur, heldur félagsfund í húsi Krabba-
meinsfélagsins í Skógarhlíð 8, 4. hæð, 7.
febrúar kl. 20.00. Jóhann Ingi Gunnarsson,
sálfræðingur, flytur fyrirlestur og bókin
„Með lífið að láni" verður til sölu á kr. 2.000.
Listaháskólinn | Jonathan Bell, landslags-
arkitekt og kennari við Buckinghamshire
Chilterns University College, Englandi, held-
ur fyrirlestur um landslagshönnun og sam-
starf við aðra hönnuði við Hotel Puerta Am-
erica verkefnið í Madrid í stofu 113 í
Listaháskólanum, Skipholti 1, kl. 17 í dag.
Sögufélag | Nafnfræðifélagið efnir til
fræðslufundar 4. febrúar kl. 13.30 í húsi
Sögufélagsins í Fischersundi. Tryggvi Gísla-
son, fyrrv. skólameistari, talar um norsk ör-
nefni á Íslandi og undarleg örnefni í Eyja-
firði, örnefni sem borist hafa með norskum
landnámsmönnum til Íslands.
Útivist og íþróttir
Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykja-
vík | Klukkutíma gönguferð 1. laugardag
hvers mánaðar. Næsta ganga verður farin
frá Fella og Hólakirkju 4. feb. nk. kl. 10.30.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 51
DAGBÓK
Það stendur til að búa til tværnýjar stofnanir um íslenskamenningu byggðar á eldri
stofnunum, eins og kom fram í
stefnuyfirlýsingum stjórnmála-
flokkanna um íslenska tungu og
þýðingar í Lesbók síðustu tvo laug-
ardaga. Stofnun íslenskra fræða –
Árnastofnun verður til við samein-
ingu Stofnunar Árna Magnússonar
á Íslandi, Orðabókar Háskóla Ís-
lands, Íslenskrar málstöðvar, Ör-
nefnastofnunar Íslands og Stofn-
unar Sigurðar Nordals. Og
Bókmenntamiðstöð myndi sameina
Menningarsjóð, Bókmenntakynn-
ingarsjóð og Þýðingarsjóð. Ýmsar
spurningar vakna við sameiningu
þessara stofnana og sjóða sem
gegna að mörgu leyti gjörólíku
hlutverki. Þjónar það best yfirlýst-
um markmiðum þessarar samein-
ingar að sameina? Mun formbreyt-
ingin skila einhverju? Eða eru
önnur ráð haldbetri?
Stofnun íslenskra fræða – Árna-stofnun á að hefja starfsemi í
haust. Tilgangur sameiningarinnar
er „að efla rannsóknarstarf og
miðlun á sviði íslenskra fræða auk
þess að efla fræðilega ráðgjöf til
styrktar og eflingar íslenskri
menningu“ eins og sagði í lýsingu
sjálfstæðisflokksins á stofnuninni.
Þá er gert ráð fyrir að „marg-
víslegt hagræði“ verði af því að
sameina vissa þætti í starfsemi
stofnananna fimm, einkum á sviði
stjórnunar, tækni og þjónustu.
Stofnanirnar fimm hafa allar
unnið mikið starf hver um sig en
starfssvið þeirra eru mjög ólík, allt
frá varðveislu og rannsókn á forn-
ritum til málfarsráðgjafar, söfn-
unar íslenskra örnefna og um-
sjónar með íslenskukennslu við
erlenda háskóla svo eitthvað sé
nefnt. Þegar stofnanir með svo ólík
starfssvið eru sameinaðar vaknar
óneitanlega spurningin um það
hvernig takist að samþætta þau.
Gera má ráð fyrir að þessar stofn-
anir geti haft nokkurt gagn af því
að starfa nánar saman en þær hafa
sumar hverjar gert hingað til. En
hættan við sameiningu er hins veg-
ar sú að hlutverki einnar eða fleiri
þessara stofnana verði minna eða
verr sinnt en hingað til. Sennilega
mun það velta talsvert á áherslum
forstöðumanns stofnunarinnar
hverju sinni. Sú staða er ný en
menntamálaráðherra mun skipa í
hana til fimm ára í senn. Störf for-
stöðumanna þeirra stofnana, sem
sameinast í Stofnun íslenskra fræða
– Árnastofnun, verða lögð niður en
þeim sem hafa gegnt þeim boðin
rannsóknarstörf við hina nýju
stofnun. Á sama hátt má búast við
því að eitthvert stjórnunarlegt og
tæknilegt hagræði verði af því að
sameina starfsemi stofnananna
fimm en það getur þó varla verið
mikið miðað við að yfirbygging
þessara stofnana er að því er virðist
afar lítil og tæknibúnaður varla
annar en venjulegar tölvur nema í
tilfelli Árnastofnunar.
Raunverulegur ávinningur af
sameiningu þessara stofnana virð-
ist því ekki liggja í augum uppi,
hann virðist að minnsta kosti ekki
vera áberandi mikill þó að það
hljómi kannski skynsamlega al-
mennt séð að hafa eina stofnun
fremur en fimm.
Það sem mun einna helst verða til
þess að „efla rannsóknarstarf og
miðlun á sviði íslenskra fræða auk
þess að efla fræðilega ráðgjöf til
styrktar og eflingar íslenskri
menningu“ er að tvær nýjar rann-
sóknarstöður bætast við þær sem
fyrir eru í gömlu stofnununum. Það
er þó smámál miðað við að það á að
reisa nýtt hús utan um starfsemina
en ríkisstjórnin hefur þegar ákveð-
ið að verja eitt þúsund milljónum í
byggingu þess. Nýja húsinu er ætl-
að að leysa húsnæðisvanda sem
einkum Árnastofnun er í og einnig
Örnefnastofnun, sem mun vera á
hrakhólum, en við hana starfa þrír.
Þegar öllu er á botninn hvolft
mun starfsemi Stofnunar íslenskra
fræða – Árnastofnunar verða mjög
svipuð þeirri sem er í stofnununum
sem hún er búin til úr, umfangið
verður ekki mikið meira, áherslur
verða hugsanlega einhverjar aðrar,
rekstrarkostnaður verður hugs-
anlega eilítið minni og húsnæðið
mun vafalaust verða til bóta fyrir
starfsmenn og þeim til yndisauka
er ganga um Melana.
Spurningin sem eftir stendur er
því þessi: Er þetta í raun besta að-
ferðin til þess að „efla rannsókn-
arstarf og miðlun á sviði íslenskra
fræða auk þess að efla fræðilega
ráðgjöf til styrktar og eflingar ís-
lenskri menningu“? Hefur skipu-
lagið staðið starfi þessara stofnana
fyrir þrifum? Þarf hugsanlega
meira til en formbreytingu? Er ætl-
unin að gera meira?
Samkvæmt upplýsingum fráSjálfstæðisflokki sem birtust í
Lesbók síðastliðinn laugardag er
nú unnið að því að kanna möguleika
á heildarlöggjöf um stuðning rík-
isins við bókmenntir, meðal annars
með það fyrir augum að gera stuðn-
ingskerfi bókmenntanna gagn-
særra og áhrifameira. „Stefnt er að
því stofnuð verði bókmennta-
miðstöð sem m.a. tæki við verk-
efnum núverandi Bókmenntakynn-
ingarsjóðs,“ sagði þar en sameina á
þrjá sjóði í bókmenntamiðstöðinni,
Menningarsjóð, Bókmenntakynn-
ingarsjóð og Þýðingarsjóð. „Með
þessu væri verið að efla þýðingar
og útgáfu vandaðra rita á íslenskt
tungumál og að stuðla að þýðingum
á íslenskum verkum á erlend
tungumál og kynna á erlendum
vettvangi,“ segir í yfirlýsingu
flokksins og enn fremur: „Mik-
ilvægt er að breytt fyrirkomulag
verður annars vegar að tryggja
aukinn stuðning við þýðingar ís-
lenskra bókmennta og kynningar
þeirra og hins vegar aukinn stuðn-
ing við útgáfu verka sem verða
mega til eflingar íslenskri menn-
ingu.“
Markmiðin með þessari breyt-
ingu eru mikið fagnaðarefni. Það
er nauðsynlegt að efla þýðingar á
og af íslensku og hlúa að útgáfu
bóka sem án stuðnings frá hinu op-
inbera myndu annars varla komast
á prent.
En spurningin er aftur þessi:
Skiptir skipulagið á starfsemi þess-
ara sjóða höfuðmáli? Mun samein-
ingin skila raunverulegum ávinn-
ingi? Allir þessir sjóðir hafa unnið
gríðarlega gott starf þrátt fyrir að
hafa úr litlu að moða. Mun skipu-
lagsbreytingin skila sér í auknum
fjármunum sem hægt er að leggja
til þess starfs sem styðja á við? Ef
svo, þá er þetta mjög skynsamleg
breyting. Ef ekki, skiptir hún engu
máli.
Tvær nýjar menningarstofnanir
’Spurningin sem eftirstendur er því þessi: Er
þetta í raun besta aðferð-
in til þess að „efla rann-
sóknarstarf og miðlun á
sviði íslenskra fræða auk
þess að efla fræðilega
ráðgjöf til styrktar og efl-
ingar íslenskri menn-
ingu“?‘
throstur@mbl.is
AF LISTUM
Þröstur Helgason
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað og
jóga kl. 9. Boccia og spænska kl. 10.
Sheena með myndlist kl. 13. Vídeó-
stund kl. 13.15, ýmsar myndir og
þættir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður
kl. 9–16.30. Boccia kl. 9.30. Helgi-
stund kl. 10.30. Leikfimi kl. 11. Mynd-
list kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Tungubrjótar
upplestur/framsögn á mánud., fé-
lagsvist á þriðjud., leikfimi á mánud.,
söngur á fimmtud., postulín á
föstud. o.s. frv. Til boða myndlist-
arnámskeið á þriðjud. kl. 9–12.
Þorrablótið hefst kl. 17 á föstudag.
Uppl. 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópur kl.
10–11. Mæting fyrir framan Bessann
og kaffisopi þar eftir göngu. Allir
eldri borgarar velkomnir. Nánari
uppl. gefur Guðrún í síma 565 1831.
FEBÁ, Álftanesi | Útskurð-
arnámskeið í smíðastofu Grunnskól-
ans fimmtudaga kl. 15.30–18.30.
Leiðbeinandi Friðgeir H. Guðmunds-
son. Upplýsingar gefur Guðrún í
síma 565 1831.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13. Námskeið í fram-
sögn og upplestri hefst 7. febrúar,
leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson.
Skráning og uppl. í síma 588 2111.
Félag kennara á eftirlaunum | Brids
í Kennarahúsi kl. 14–16. EKKÓ-kórinn
í KHÍ kl. 17–19.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.05
og kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.15 ramma-
vefnaður, kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 10.50 rólegar æfingar, kl.
13 bókband, kl. 20 gömlu dansarnir,
kl. 21 línudans.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Handavinnustofan opin frá kl. 9–16,
leiðbeinandi á staðnum. Jóga kl. 10,
laus pláss. Brids kl. 13.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Glerbræðsla kl. 9 í Kirkjuhvoli.
Vatnsleikfimi kl. 9.45 og karla-
leikfimi kl. 13.15 í Mýri. Handa-
vinnuhorn kl. 13 í Garðabergi.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
helgistund, umsjón Ragnhildur Ás-
geirsdóttir djákni. Kl. 12.30 vinnu-
stofur opnar, m.a. myndlist og fjöl-
breytt föndurgerð. Kl. 14 kemur í
heimsókn Herdís Jónsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur á Heilsugæslustöð í
Efra Breiðholti, og veitir ráðgjöf og
stuðning, allir velkomnir. Veitingar í
Kaffi Berg.
Glæsibær | Þorrablót SÁÁ verður
haldið í Glæsibæ laugardaginn 4.
febrúar. Lúdó sextett leikur fyrir
dansi, fjölbreytt skemmtiatriði,
veislustjóri séra Gunnar Sig-
urjónsson. Húsið opnað kl. 19. Borð-
hald hefst kl. 20. Félagsstarf SÁÁ.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun, hjúkrunarfræðingur
á staðnum, kaffi, spjall, dagblöðin,
hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leik-
fimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14 fé-
lagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Pútt kl. 10. Leikfimi kl. 11.20. Gler-
bræðsla kl. 13. Bingó kl. 13.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá
Halldóru kl. 9–16. Boccia kl. 10–11. Fé-
lagsvist kl. 13.30, aukavinningar í
fyrstu vist mánaðarins, kaffi og gott
meðlæti. Böðun fyrir hádegi.
Hæðargarður 31 | Fjölbreytt hand-
verk í Listasmiðju alla daga. Brids á
föstudögum, „Skapandi skrif“ á
mánud., framsögn á þriðjud., tölvu-
námskeið á laugard. o.s.frv. Kynntu
þér dagskrána eða hringdu í síma
568 3132 og fáðu hana semda.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi
í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 á
morgun.
Laugardalshópurinn Blik, Laug-
ardalshöll | Leikfimi eldri borgara í
Laugardalshöll kl. 11.
Norðurbrún 1, | Leirnámskeið kl. 9–
12, smíði kl. 9, opin vinnustofa kl. 9–
16.30, séra Þórhildur Ólafs, prestur í
Áskirkju, verður með helgistund kl.
10.30. Leir kl. 13–16.30.
SÁÁ félagsstarf | Félagsstarf SÁÁ
stendur fyrir danskennslu í sam-
starfi við Dansskóla Auðar Haralds
fimmtudaginn 2. febr. í íþróttahúsi
Setbergsskóla í Hafnarfirði.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið,
Hátún 12. Skák í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Helgistund 2. febr-
úar kl. 10.30 í umsjón séra Jakobs
Ágústs Hjálmarssonar dóm-
kirkjuprests. Kór félagsstarfs aldr-
aðra syngur undir stjórn Árna Ísleifs.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9. Bókband og pennasaumur kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10,
almenn handmennt kl. 13. Gler-
skurður kl. 13. Brids, frjálst, kl. 13.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12. Léttur hádeg-
isverður á eftir. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 15. Ræðumaður: Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri. Ein-
söngur: Óskar Pétursson.
Áskirkja | Foreldrum er boðið til
samveru með börn sín í safn-
aðarheimili kirkjunnar í dag, milli kl.
10 og 12. Samvera milli kl. 17 og 18 í
dag. Furðufatadagur (allir koma með
skrítin föt).
Digraneskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10 á neðri hæð. Leikfimi ÍAK kl. 11.
Bænastund kl. 12. Barnastarf 6–9
ára kl. 17–18 á neðri hæð. Unglinga-
starf kl. 19.30–21.30 á neðri hæð.
www.digraneskirkja.is
Dómkirkjan | Alla fimmtudaga frá kl.
14–16 er opið hús í safnaðarheim-
ilinu, Lækjargötu 14a.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar- og
bænastund í hádeginu á fimmtudög-
um, kl. 12.15.
Garðasókn | Kyrrða- og fyrirbæna-
stund kl. 22. Tekið er við bæn-
arefnum af prestum og djákna. Kaffi
í lok stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmis konar fyr-
irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn
10–12 ára á fimmtudögum í Húsa-
skóla kl. 17.30–18.30.
Hafnarfjarðarkirkja | 7–9 ára starf
kl. 17–18. Margt skemmtilegt er gert
saman, vonumst til að sjá sem
flesta.
Háteigskirkja | Taize-messa öll
fimmtudagskvöld. Kirkjan opnuð
klukkan 19 og messan hefst klukkan
20. Hljóð stund í nærveru Guðs.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Bridsaðstoð í Setrinu, Háteigskirkju
á föstudögum kl. 13–16. Kaffi kl. 15.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
vera eldri borgara kl. 15. Hugleiðing,
syngjum saman og fáum okkur kaffi
og meðlæti. Eldurinn kl. 21. Lofgjörð,
vitnisburðir og kröftug bæn.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM
Holtavegi 28, fimmtudaginn 2. feb.
kl. 20. „Landsvirkjun – Góðir
straumar í 40 ár“. Friðrik Soph-
usson forstjóri sér um efnið. Sr.
Kjartan Jónsson hefur hugleiðingu.
Kaffi. Allir karlmenn eru velkomnir.
Langholtskirkja | Opið hús kl. 10–12
fyrir foreldra ungra barna í umsjón
Lóu Maju Stefánsdóttur. Fræðsla:
Kynning á þjónustu nýju heilsu-
gæslustöðvarinnar í hverfinu. Jón-
ína Jónasdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur/ljósmóðir. Kaffisopi og
söngstund fyrir börnin.
Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðar-
stund í hádegi. Að bænastund lok-
inni, kl. 12.30, er léttur málsverður í
boði í safnaðarheimilinu. Kl. 13 helgi-
stund í umsjá sóknarprests í fé-
lagsmiðstöðinni að Dalbraut 18–20.
Kl. 17 Adrenalín gegn rasisma.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bág-
stöddum. Einnig tekið við bæn-
arefnum. Kaffisopi að lokinni athöfn-
inni. Fundur í Æskulýðsfélagi
Selfosskirkju kl. 19.30, í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
40 dögum eftir fæðingu Jesú komu María
og Jósef í musterið í Jerúsalem og færðu
Drottni fórnir samkvæmt lögmálinu.
Kertavígsla þennan dag er tákn um trú
vora á Jesúm Krist, ljós heimsins.
Hátíðarmessa með helgigöngu verður
haldin kl. 18 sem „ljósamessa“: Slökkt er
á öllum rafmagnsljósum og kirkjugestir
eru með logandi kerti í hendi alla mess-
una.
Að messu lokinni er veitt Blasíusar-
blessun, til verndar gegn hálsmeinum og
öðrum sjúkdómum.
Kyndilmessa í Landakoti
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is