Morgunblaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 55
Sími - 551 9000 Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is
„...falleg og skemmtileg
fjölskyldumynd...“
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 B.i. 16 ára
Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og
Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper.
Mögnuð
hrollvekja
sem fær
hárin til
að rísa!
M YKKUR HENTAR DÖJ, Kvikmyndir.com
VJV, Topp5.is
H.J. MBL
Sprenghlægilegt
framhald.
Steve Martin fer enn
og aftur á kostum!
Ó.Ö.H. / DV
A.G. / BLAÐIÐ
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sýnd kl. 6
F
U
N
Sýnd kl. 6, 8 og 10
STÓRKOSTLEG SAGA UM ÁSTIR OG
ÁTÖK BYGGÐ Á HINNI ÓGLEYMANLEGU
METSÖLUBÓK EFTIR ARTHUR GOLDEN
BESTA TÓNLISTIN,
JOHN WILLIAMS
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Rolling Stone
Topp5.is
Sýnd kl. 5, 8 og 10.15
JOHN WILLIAMS
GOLDEN GLOBE
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Þegar þokan skellur á…
er enginn óhultur!
Kvikmyndir.is
Rolling Stone
FUN WITH DICK AND JANE kl. 6, 8 og 10
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
MEMOIRS OF A GEISHA kl. 6 og 9
BROTHERS GRIMM kl. 5.30 B.I. 12 ÁRA
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
THE
FOG
„... ástarsaga eins og
þær gerast bestar -
hreinskilin, margbrotin
og tilfinningarík...“
L.I.B. - Topp5.is
Golden Globe verðlaun
N ý t t í b í ó
VINSÆLASTA MYNDIN
á Íslandi í dag!
VINSÆLASTA MYNDIN
á Íslandi í dag! 6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 55
Laugavegi 54,
sími 552 5201
1.000 kr. dagur
* Peysur
* Buxur
* Toppar
* Bolir
Póstsendum
* Gallabuxur
* Jakkar
* Pils
Nú er hægt að
gera ótrúleg kaup
ÞÆR fregnir heyrast nú úr herbúðum Kimono-manna
að þeir séu einn af öðrum að tínast til landsins frá Berlín
þar sem sveitin hefur alið manninn undanfarna mánuði.
Eftir vel heppnaða tónleikaför um Þýskaland, sem farin
var í nóvember og desember á síðasta ári, er förinni nú
heitið til Englands, Írlands, Austurríkis, Sviss og Þýska-
lands en túrinn, sem stendur út febrúar, hefst í Lund-
únum þriðjudaginn 7. febrúar.
Áður en það ævintýri hefst allt hefur sveitin ákveðið
að safna kröftum á Íslandi og af því tilefni verður blásið
til tvennra tónleika í Reykjavík. Þeir fyrri verða í Þjóð-
leikhúskjallaranum í kvöld en þeir seinni í Hellinum
(TÞM) á föstudaginn. Síðari tónleikarnir eru opnir öllum
aldurshópum en að sögn Gylfa Blöndal í Kimono hefur
það ávallt verið sveitinni mikilvægt að bjóða upp á slíka
tónleika, enda er tónlistaráhugafólk í öllum aldurs-
hópum.
Þeir sem ekki eru með heimilisfang TÞM á hreinu, þá
er hún á Hólmaslóð 2 vestur á Granda. (Leiðarvísi er til
dæmis að finna á www.tonaslod.is.)
Útgáfa í Evrópu
Það er annars að frétta af Kimono að seinasta plata
sveitarinnar, Arctic Death Ship, kemur út í Evrópu 10.
febrúar og er tónleikaförin liður í að kynna hana. Plötu-
fyrirtækið Bad Taste UK gefur út en það er Rough
Trade sem dreifir. Þá heyrðust fregnir af því að Kimono-
liðar hefðu lent í lagaflækju af verstu sort í Berlín í
haust, þegar lögfræðingur þýskrar hljómsveitar með
sama nafn hótaði að hefja málsókn ef hin íslenska
Kimono breytti ekki um nafn. Eftir mikið lagaþras hefur
hin þýska hins vegar ákveðið að breyta sínu nafni því það
þótti sannað að hin íslenska Kimono hefði heitið þessu
nafni mun lengur. Allt er gott sem endar vel.
Tónlist | Kimono heldur tvenna tónleika í Reykjavík
Hitað upp fyrir Evróputúr
Kimono fer í Evróputónleikaferðalag í mánuðinum.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Fimmtudag 2. feb. kl. 22. Þjóðleikhúskjallarinn, sér-
stakir gestir Jakobínarína. Miðaverð 750 kr.
Föstudag 3. feb. kl. 20. Hellirinn (TÞM), sérstakir gestir
I adapt. Miðaverð 500 kr.
ÞÆTTIRNIR um Latabæ fengu
fyrstu verðlaun fyrir talsetningu á
þýsku í síðustu viku. Latibær er
sýndur í Þýskalandi á sjónvarpsstöð-
inni Super RTL og sá stöðin um tal-
setninguna í samvinnu við framleið-
endur þáttanna hér heima.
Verðlaunin voru afhent á sérstakri
hátíð í Potsdam í Þýskalandi sl. föstu-
dag. Í Þýskalandi er rík hefð fyrir tal-
setningu erlends sjónvarpsefnis og
hafa Þjóðverjar náð mikilli færni í
faginu.
Sjónvarpsþættirnir um Latabæ
voru teknir til sýninga á Super RTL í
Þýskalandi í ágúst 2005. Í ár voru 42
sjónvarpsseríur og kvikmyndir til-
nefndar og voru veitt verðlaun í alls
sjö flokkum. Á meðal þeirra mynda
sem tilnefndar voru í sama flokki og
Latibær var stórmyndin Madagascar
sem DreamWorks framleiddi.
Glanni glæpur, Solla stirða og Íþróttaálfurinn tala góða þýsku.
Latibær verðlaunaður
í Þýskalandi
DICK og Jane Harper (Jim Carrey
og Téa Leoni) eru útivinnandi for-
eldrar sem lifa í amerískum vísitölu-
fjölskyldudraumi. Jane er reyndar
ekki mjög ánægð í sínu starfi en sér
fram á að geta hætt að vinna, þar
sem Dick er nýbúinn að fá stöðu-
hækkun hjá tölvufyrirtækinu sem
hann vinnur hjá, Globodyne. Starfs-
ferill hans fær þó sviplegan endi því
fyrsta daginn í starfinu sem varafor-
stjóri almannatengsla er Dick sendur
í sjónvarpsviðtal (sem er sennilega
eina fyndna atriði myndarinnar) þar
sem hann þarf óundirbúinn og í
beinni útsendingu að svara til saka
fyrir vafasama viðskiptahætti fyr-
irtækisins. Fyrirtækið fer á hausinn
og Dick missir vinnuna, og sama dag
segir Jane sínu starfi lausu. Þetta er
með öðrum orðum slæmur dagur hjá
Harper-fjölskyldunni og liggur leiðin
aðeins niður á við eftir það. Varasjóð-
urinn og spariféið voru bundin í
Globodyne-hlutabréfum sem nú eru
verðlaus og brátt standa Harper-
hjónin andspænis gjaldþroti. Þau
velta fyrir sér hvað skuli til bragðs
taka og lýsir Dick því yfir að þau
hjónin hafi fram til þessa spilað eftir
leikreglunum og trúað á ameríska
drauminn. Það hafi hins vegar ekki
dugað til og því sé tími til kominn að
breyta um leikáætlun. Þau gerast
glæpamenn, ekkert sérstaklega
harðsnúnir þó, enda miðast glæpir
hjónanna fyrst og fremst að því að
viðhalda millistéttarlífsstíl sínum.
Þau ræna kaffibollum og köku-
sneiðum í Starbucks og annars konar
lífsnauðsynjum, s.s. flatskjássjón-
varpi. Hér er með öðrum orðum á
ferðinni gamanleikur sem tekur til
umfjöllunar Enron-tímabilið með
sínum stóru fjármálahneykslum og
sprungnu verðbréfabólum. Það er
því leiðinlegt að horfa upp á hvernig
myndinni mistekst að standa undir
væntingum eftir að hafa farið ágæt-
lega af stað. Hér er annars vegar um
að kenna kraftlausu og hroðvirkn-
islegu handriti þar sem gagnrýn-
isbroddurinn tapast fljótlega. Hins
vegar má segja að myndin líði fyrir
ofvaxið egó aðalleikarans, Jims Carr-
eys. Carrey getur verið kraftmikill
leikari, en hann fetar vandmeðfarið
einstigi milli þeirra sniðugu skrípa-
láta sem eru hans einkenni og þess
að verða eins og skopstæling á sjálf-
um sér. Í Skemmtum okkur með
Dick og Jane leiðist Carrey út í að
„leika“ Carrey, án þess þó að ná að
hressa upp á gamlar tuggur. Að lok-
um týnist frásögnin í skugga sjálf-
hverfra og hálffurðulegra atriða þar
sem Carrey sleppir fram af sér beisl-
inu.
Gamanleikur á tímum Enron
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Borgarbíó,
Laugarásbíó
Leikstjórn: Dean Parisot. Aðalhlutverk:
Jim Carrey, Téa Leoni, Richard Jenkins
og Alec Baldwin. Bandaríkin, 90 mínútur.
Skemmtum okkur með Dick og Jane (Fun
With Dick and Jane) Heiða Jóhannsdóttir
„Carrey getur verið kraftmikill
leikari, en hann fetar vandmeðfarið
einstigi milli þeirra sniðugu skrípa-
láta sem eru hans einkenni og þess
að verða eins og skopstæling á
sjálfum sér,“ segir í dómi.