Morgunblaðið - 07.02.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 37. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Kliðfögur
og örugg
Meðan jafn vel tekst til þarf vart
að hafa áhyggjur af Óperunni | 22
Féll óvænt
fyrir hörpu
Amman segir að Tanja Björk hafi
hörpuhendur | Daglegt líf
Íþróttir í dag
Tap gegn Svíum yrði afdrifaríkt
Reading nálgast met Liverpool
Holmes bætti met Goosen
GERA má ráð fyrir að kringum
44 þúsund flugsæti verði í boði í
viku hverri í áætlunarflugi flug-
félaga til og frá landinu í sumar.
Tvö erlend flugfélög hefja flug
til Íslands í sumar, British Aiways
sem flýgur milli Gatwick á Eng-
landi og Keflavíkur, og SAS
Braathens, sem flýgur milli Osló-
ar og Keflavíkur. Þá er ótalið
framboð ferðaskrifstofa í leigu-
flugi á sólarstrendur og aðra
áfangastaði.
Sætaframboð Icelandair er
langmest, en félagið heldur í sum-
ar uppi ferðum til 22 borga er-
lendis og fer um 140 ferðir í viku.
Sætaframboðið er hátt í 30 þús-
und sæti á viku og er svipað og í
fyrrasumar. Iceland Express flýg-
ur í sumar til átta áfangastaða er-
lendis og eykur framboðið um
40%. Verða alls boðin 255 þúsund
flugsæti frá maí til september sem
þýðir tæplega 13 þúsund á viku.
Samanlagt framboð BA og SAS
Braathens verður kringum tvö
þúsund sæti á viku og heildar-
framboð flugfélaganna fjögurra
verður því kringum 44 þúsund
sæti. | 8
Bjóða 44 þúsund flugsæti á viku
TERJE Rød-Larsen, sendimaður Sameinuðu
þjóðanna, sagði í gær að ástandið í Mið-Aust-
urlöndum væri orðið válegra en það hefur
verið í nokkra áratugi og varaði við því að það
gæti versnað til muna.
„Að mörgu leyti má líkja þessum heims-
hluta núna við púðurtunnu með logandi
sprengiþráð,“ sagði Rød-Larsen, sem hafði
milligöngu um friðarsamninga Ísraela og Pal-
estínumanna árið 1993 og var síðar gerður að
sérlegum sendimanni Sameinuðu þjóðanna í
Mið-Austurlöndum. „Ég tel að ástandið sé
erfiðara, flóknara og hættulegra en það hefur
verið í nokkra áratugi,“ hafði norska ríkisút-
varpið eftir Rød-Larsen. Hann skírskotaði
meðal annars til átaka Ísraela og Palestínu-
manna, deilunnar um kjarnorkuáætlun Írans
og spennu milli stjórnvalda í Líbanon og Sýr-
landi.
„Allt þetta vekur spurningar um grund-
vallargildi og skoðanir sem gætu orðið til
þess að ástandið verði enn verra en það hefur
verið síðustu daga,“ sagði Rød-Larsen um
mótmæli sem breiðst hafa út í Mið-Austur-
löndum vegna umdeildra skopteikninga af
Múhameð spámanni sem birtust fyrst í
danska dagblaðinu Jyllands-Posten.
Óttast hryðjuverk
Ekkert lát var á mótmælum gegn Dönum
og fleiri Evrópuþjóðum víða í löndum músl-
íma í gær. Að minnsta kosti fimm manns létu
lífið í mótmælum í Afganistan og um 400
námsmenn köstuðu grjóti og bensínsprengj-
um á sendiráð Danmerkur í Teheran, höf-
uðborg Írans. Nokkrum þeirra tókst að klifra
inn í bygginguna og kveikja í skjölum inni í
sendiráðinu áður en lögreglan fjarlægði þá,
að sögn fréttastofunnar AFP í gærkvöldi.
Þórir Jökull Þorsteinsson, sendiráðsprest-
ur í Kaupmannahöfn, segir að mikill óhugur
sé í Dönum eftir að hafa séð myndir í sjón-
varpi af æstum múg ráðast á sendiráð Dan-
merkur. Fólk hafi t.a.m. varann á sér þegar
það fari í jarðlestir í Kaupmannahöfn af ótta
við hugsanleg hryðjuverk. „Danir taka nú
þann pól í hæðina að það sé ekki lengur
spurning um hvort, heldur hvenær hryðju-
verk verða framin.“
Reuters
Stuðningsmenn íslamskrar hreyfingar í Alsír kveikja í fána Danmerkur í Algeirsborg til að mótmæla skopmyndum af Múhameð spámanni.
Válegasta ástand í Mið-
Austurlöndum í áratugi
Rød-Larsen líkir
heimshlutanum við
púðurtunnu með
logandi sprengiþráð
Íslendingar í Danmörku | 4
Fimm biðu bana | 16
Eftir Boga Þór Arason og Andra Karl
LAGERINN ehf., fyrirtæki í
eigu Jákups á Dul Jacobsen,
sem gjarnan er kenndur við
Rúmfatalagerinn, hefur fest
kaup á 9,9% hlut í bandaríska
fyrirtækinu Pier 1 Imports sem
rekur húsgagnaverslanir undir
vörumerkjunum Pier 1 og The
Pier. Þetta kemur fram í til-
kynningu til bandaríska fjár-
málaeftirlitsins, SEC, frá í
gær.
Heildarverðmæti viðskiptanna er um 93 millj-
ónir Bandaríkjadala, sem jafngildir tæplega 5,9
milljörðum íslenskra króna en samkvæmt tilkynn-
ingunni eru þau fjármögnuð annars vegar með
framvirkum skiptasamningi við Kaupþing banka
og hins vegar með láni frá Landsbanka Íslands.
Í tilkynningunni kemur fram að Jákup muni
ekki hafa í huga að hafa áhrif á rekstur fyrirtæk-
isins heldur séu viðskiptin gerð í fjárfestingar-
skyni, a.m.k. um sinn.
Pier 1 var stofnað í Kaliforníu árið 1962 og rek-
ur nú um 1.200 verslanir í Bandaríkjunum, Kan-
ada, Mexíkó og Bretlandi. Velta fyrirtækisins á
síðasta ári var tæplega 2 milljarðar Bandríkja-
dala, um 118 milljarðar króna.
Linens ’n’ Things selt
Jákup hefur fleiri járn í eldinum vestra en ekki
er svo ýkja langt síðan greint var frá því í Morg-
unblaðinu að hann hefði keypt hlut í Linens ’n’
Things verslunarkeðjunni. Þar mun hann eiga um
13,6% hlut en markaðsvirði hlutarins er um 172
milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar um 10,9
milljörðum króna.
Samkvæmt upplýsingum frá talsmanni Jákups
hefur hluthafafundur ákveðið að taka yfirtöku-
tilboði í félagið og mun hann því selja hlut sinn þar
bráðlega.
Eignast 5,9
milljarða hlut
í húsgagna-
verslanakeðju
Jákup Jacobsen
Peking. AFP. | Þjófar stálu alls 4.000 ræsislokum í
Peking til að selja þau í brotajárn á síðasta ári
þrátt fyrir tilraunir yfirvalda til að stemma stigu
við slíkum þjófnaði.
Yfirvöld hafa þó náð talsverðum árangri í bar-
áttunni við þjófana því að 24.000 ræsislokum var
stolið árið áður. Göturnar og gangstéttirnar geta
þó enn verið hættulegar vegna þessa vandamáls,
að sögn kínversku fréttastofunnar Xinhua í gær.
Þjófarnir fá sem samsvarar dagslaunum far-
andverkamanns fyrir hvert lok. Stefnt er að því að
nota aðeins lok sem ekki er hægt að endurvinna.
Ásælast ræsislok
♦♦♦