Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 39
sér, enda fylgir stórt hjarta stórum hug. Á Ísafirði fæddist fyrsta barna- barn Magdalenu, Þorvarður sonur Ólínu. Nú eru barnabörnin orðin átta, en alltaf verða minnisstæðar ljúfar minningar tengdar fyrstu ár- um Dodda í faðmi fjölskyldunnar á Ísafirði. Þó amman Maddý hafi ætíð sýnt barnabörnum sínum um- hyggju og ástúð, mega glöggir sjá, að hún kann mun betur að meta fé- lagsskap þeirra eftir því sem aukn- ir vitsmunir og þroski koma í ljós. Og þá er ekki ónýtt fyrir uppvax- andi kynslóð að eiga kost á að bergja af óþrjótandi brunni skáld- skapar og sagna þeirra kynslóða sem á undan gengu. Að fá slíku að kynnast gefur meira en áralangt háskólanám getur veitt nokkrum Íslendingi. Vonandi fá barnabörnin að njóta þess enn um mörg ár. Þorvarður Kjerúlf, eiginmaður Magdalenu, lést 31. ágúst 1983 en þá voru þau hjón nýflutt aftur til Reykjavíkur. Andlát hans var henni þungbært, en veganestið úr foreldrahúsum sagði til sín. Hún tók nú bílpróf til að verða sjálf- bjarga í borginni og hún gerði gott betur. Löngunin til frekara náms hafði aldrei yfirgefið hana. Þann draum gerði hún að veruleika þeg- ar hún innritaðist í Háskóla Íslands og hóf nám í íslenskum fræðum. Þar var hún komin á heimavöll. Nú situr Magdalena, höfuð sinn- ar fjölskyldu, í höfuðborginni, þar sem börn og barnabörn leita skjóls og stuðnings í önnum nútímans. Út um glugga sér hún sama hafið og lék við fjöruborð æsku hennar í Vatnsdal. Sólarlagið er baðað mörgum litum, skærum og djúpum, hvort heldur er við Patreksfjörð eða Faxaflóa, líkt og farsæl ævi. Merk kona fagnar nú átta áratug- um. Til hamingju með daginn, kæra Magdalena, og hafðu þökk fyrir góð og traust kynni og kær- leik undangenginna ára. Sigurður Pétursson og Sigurjón Bjarnason. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 39 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Bengalkettlingar til sölu. Ljúfir, fjörugir, glitrandi, frumskógar- flottir, með ættbók, bólusettir og geldir. Verð frá 40.000 kr. Sjá www.natthagi.is, sími 698 4840, 483 4840, natthagi@centrum.is. Fatnaður Allar fatabreytingar Styttum buxur meðan beðið er. Skraddarinn á horninu, Vatnsstíg 11, s. 552 5540. Veitingastaðir Nýbýlavegi 20, s. 554 5022 Súpa og fjórir réttir. Verð 1.390 á mann. Tekið með, verð 1.250. Heimsendingarþjónusta Húsnæði í boði Efnispakki Harðviðarhús. Einbýlishús. Sumarhús. Gestahús. Bílskúrar. Klæðningarefni. Pallaefni. Þakkantar. Sjá nánar á heimasíðu: www.kvistas.is, sími 869 9540. Sumarhús Sumarhús — orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbú- in hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf í Hveragerði. Gott verð, áratuga reynsla. Teiknum eftir óskum kaupenda, sýningar- hús á staðnum. Einnig höfum við áhugaverðar lóðir til sölu. Símar: 660 8732, 660 8730, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarm. Byrjendaáfangi í Upledger höfuðbeina- og spjald- hryggjarmeðferð, CSTI, verður haldin 9.-12. febrúar næstkom- andi á Radisson SAS Hótel Sögu. Upplýsingar og skráning í síma 863 0610 og 863 0611 eða á www.upledger.is. Ropeyoga Ný námskeið að hefjast í Baðhús- inu, Brautarholti 20. Upplýsingar og skráning í síma 821 1399 og á www.kata.is . Reykstopp árið 2006 Sjálfstyrking - reykstopp - frelsi frá streitu og kvíða. Notuð er m.a. EFT (Emotional Freedom Techniques) og dáleiðsla (Hypnotherapy). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu- fræðingur, sími 694 5494, www.EFTiceland.com . Keramiknámskeið Fjögur pláss laus, er í Grafarvogi. Upplýsingar gefur Birna Sigrún í síma 567 6070. Til sölu Útsala Úrval af dömuskóm í stærðum 42-44. Herraskór í stærðum 47-50. www.storirskor.is Ásta skósali, Súðarvogi 7. Opið þriðjud., miðvikud. og fimmtud. 13-18. Tékkneskar og slóvanskar kristalsljósakrónur. Handslípaðar. Mikið úrval. Gott verð. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogur, s. 544 4331. Bohemia tékkneskir kristalsvas- ar, mikið úrval. Einnig kristalsglös í halastjörnunni, möttu rósinni og fleiri munstrum. Frábært verð. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331. Bókhald Bókhald. Get bætt við mig verk- efnum í bókhaldi og launaútreikn- ingi. Einnig framtöl einstaklinga. Sveinbjörn, s. 898 5434, netfang svbjarna@simnet.is. Viðskipti VILTU STUNDA VIÐSKIPTI VIÐ KÍNA? - SELJA ÞÍNA VÖRU Í KÍNA? - LÁTA FRAMLEIÐA Í KÍNA? - STOFNA FYRIRTÆKI Í KÍNA? Hef komið á fjölda farsælla við- skiptasambanda milli Íslands og Kína. Áhugasamir setji sig í sam- band við: halldor@mexis.is Þjónusta Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270. Ýmislegt Íþróttahaldarinn sívinsæli ný- kominn aftur í hvítu, húðlitu og svörtu BCD skálar á kr. 1.995, teygjubuxur í stíl á kr. 1.285. Létt fylltur og mjúkur í BC skál- um kr. 1.995, buxur í stíl kr. 995. Flottur með smá fyllingu og flott form í BC skálum á kr. 1.995, bux- ur í stíl kr. 995. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Veiði Veiðiferðir til Grænlands Stangveiði Hreindýraveiði Sauðnautaveiði Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar, sími 511 1515. www.gjtravel.is Bílar Vegna flutnings. Til sölu: Mitsubishi Pajero Sport '00, sjsk., 3.0L v6 vél. Subaru Legacy station '97, sjsk., 2.0L vél. Izusu Trooper '99, sjsk., 3.5L v6 vél (mynd). Allt úrvals bílar í góðu standi, allir á álfelgum. Tilboð óskast. Sími 893 3791. Toyota Landcruiser 90 GX, árg. '01, Commonrail, 7 manna + aukasæti, krókur, 2 góðir dekkja- gangar, NMT sími, þjónustubók. Verð kr. 2.750 þús. Toppbílar, Kletthálsi 2, sími 587 2000. MMC Pajero TDI 33" 2,8, 12/98, ek. 158 þús. km, sjálfsk., leður, toppl., álfelgur. Nýl. túrbína, yfirf. hedd. Nákvæm þjónustubók, gott bílalán. Ný dekk. Verð 1.990 þús- und. Uppl. í síma 690 2577. MMC Pajero 2.8 dísel turbo. Sk. 1998, 35" upphækkun, sjálf- skiptur, Ekinn 175 þ.km., rafm. rúður og speglar, hraðastillir, topplúga, dráttarbeisli, driflæs- ingar ofl. Uppl. í s. 5444333 og 8201070 M. Benz 230E, ekinn 195 þús. Vel með farinn. Sjálfsk., álfelgur, toppl., ABS, fjarlæsing, krókur, CD, hraðastillir, þjónustubók frá upphafi. Verð 550 þús. Sími 820 7709. KIA árg. '98, ek. 117 þús. km. KIA Clarus '98, bíll í toppstandi, leður, CD, rafm. í rúðum, sæti og spegl- um. Tilboð 330 þ. Upplýsingar í s. 866 7884. Iveco 50 C 13 sk. 11.2001. Ekinn aðeins 45 þ. km. Heildar- þyngd 5,2 tonn. Lyfta. Topp ástand og útlit. Kaldasel ehf., Dalvegur 16b, 201 Kópavogur, s. 544 4333 og 820 1070. Honda CRV '98. bíll í sérflokki. Ek. 105 þ. km, sjálfsk., álfelgur, dráttark., ný tímareim, þjónustu- bók, 2 eig., lakk gott, bílalán ca 600 þús. Verð 995.000. Upplýsingar í síma 690 2577. BMW árg. '05, ek. 38 þús. km. Dísel, ssk. BMW 320 dísel, sjálf- skiptur, eyðsla 6 lítrar á hund- raðið, svartur, 17" álfelgur, cd, sími, stuðnigur í sæti, bakkskynj- arar. Ásett verð 3.990 þús. Mögul. á allt að 80% láni. Sími 691 4441. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Varahlutir JEPPAPARTAR EHF., Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Patrol '91-95, Terr- ano II '99, Subaru Legacy '90-'04, Impreza '97-04, Kia Sportage '03 og fleiri japanskir jeppar. FRÉTTIR Í TILEFNI af 130 ára af- mæli Thorvaldsens- félagsins árið 2005 styrkti félagið stuðn- ingsmeðferð Vímulausr- ar æsku um 1.000.000 kr. Þetta er í annað sinn sem félagið styrkir stuðningsmeðferðina, sem er fyrir unglinga sem lokið hafa vímu- efnameðferð. Þetta er verkefni sem félagið hefur fylgst vel með og stutt myndarlega, segir í frétta- tilkynningu. Markmið stuðningsins er að hjálpa unglingum að halda sig frá vímuefnum og ná tökum á lífi sínu að nýju. Á myndinni eru, frá vinstri: Guð- rún Jónsdóttir, Ása Jónsdóttir, Jón- ína Bryndís Sigurðardóttir, Helga Kristinsdóttir, Sigríður Sig- urbergsdóttir, Lára Margrét Gísla- dóttir, Dagný Gísladóttir frá Thor- valdsensfélaginu, Jórunn Magnúsdóttir, Þórdís Sigurð- ardóttir og Elísa Wium, Vímulausri æsku. Thorvaldsensfélagið styrkir Vímulausa æsku Rangt nafn undir mynd RANGT nafn var í myndatexta í frétt í blaðinu í gær um golfsýn- inguna, sem verður á Hótel Nordica um næstu helgi. Fyrir miðju á myndinni var Jón Ásgeir Eyjólfs- son, forseti Golfsambands Íslands, en ekki Hörður Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri, eins og stóð. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Rangt nafn RANGT var farið með nafn Sig- urðar Arnalds, talsmanns Kára- hnjúkavirkjunar, í frétt á baksíðu blaðsins í gær. Er beðist velvirð- ingar á því. LEIÐRÉTT AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.