Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 23 UMRÆÐAN                                                 !"# ##$! %%&%' ()* + , !!-!-$ . !!-!-$ /# '0  )1* ,2-3* * 45! " 6"#  ) !- 7,+ ,8 !- 95! !- 45! 3 *5! 45! " *5! ,--:!- :5-       !"# ##$! %%&%' ()* + , !!-!-$ . !!-!-$ /# '0  )1* ,2-3* * 45! " 6"#  ) !- 7,+ ,8 !- 95! !- 45! 3 *5! 45! " *5! ,--:!- :5-       .*  !"# ##$! ' & ' /# 0   )1*  ) !-  )+*#+ !- 7,+ !- . !- ()* + ;++*1< 45! 3 *5! 45! " *5!   !   .*  !"# 9 = > ##$!  &%' /# 0    )1* +25 - 9 48 !- ,8 !-  ) !- ?& @A  +*#+ !! +- B-!-$  +*#+!! >.2. !!-!- 7,+ !- . !- "C:$ , $! ()* + 45! 3 *5! 45! " *5!   "    !"# ##$! %%&%' ()* + , !!-!-$ . !!-!-$ /# %0  ) !- 7,+ !- 95! !- 45! 3 *5! 45! " *5! ,--:!- :5-  #  !  !    !"# /# 0   )1* 45! 3 *5! ()* +  ) !- +*#+ !- 7,+ !- . !- # $  %     !"# * , # +- B"# # C "D #0 , 1 7 1 7 E1 4.71F.=@  B"# * 414 +-  C" *!! - !!1B 1, !! +- B -!-$  G5! !- 7,+ !- / :5- -!-$ :5  +-  ,              SVO LENGI má þæfa ull að breytist í silki, svo mætti halda ef miðað er við hvernig sjálfstæð- ismenn böðlast á hugtakinu skatta- lækkanir. Sjálfstæðismenn hafa boðað skattalækkanir í takt við minnkandi útgjöld ríkissjóðs en reyndin er öll önnur, hækkaðir skattar og aukin ríkisútgjöld. Það eru staðreyndir sem ekki ætti að eyða tíma í að deila um Efnahags- og þróunarsam- vinnustofnun Evrópu, OECD, hefur reiknað út að skatthlutfall hafi hér farið úr 31,8% af þjóðarframleiðslu á árinu 1995 í 40,3% árið 2003. Við skoðun ríkisreiknings kemur fram að útgjöld ríkisins hafa aukist um 120 milljarða á föstu verðlagi frá árinu 1995. Þessi upphæð svarar til nálega tvöfalds söluverðmætis Sím- ans. Til þess að eiga fyrir þessum útgjöldum hefur ríkisstjórnin hækkað álögur á almenning. Prófessor sagði frá staðreyndum Stefán Ólafsson prófessor greindi frá þeim staðreyndum í blaðagrein að skattar hefðu hækkað og legðust með meiri þunga á þá sem hafa lág- ar tekjur. Þetta eru staðreyndir sem tekur ekki nema nokkrar mín- útur að ganga úr skugga um að séu réttar. Það er óskiljanlegt að verða vitni að því að hver þingmaður Sjálfstæðisflokksins á fætur öðrum neiti jafnaugljósum staðreyndum og að skattar hafi hækkað í stjórnartíð flokksins. Ekki er nóg með að menn reyni að teygja og toga staðreyndir heldur leggja þeir einnig til atlögu við persónu prófessorsins sem sagði frá skattahækkun ríkisstjórn- arinnar. Dómsmálaráðherra bjó til einhverja mjög svo einkennilega pólitíska samsæriskenningu þar sem nýmælið var að ekki væri að finna neinn „baug“ heldur einhvern þríhyrning. Þessi hættulegi þríhyrningur að mati Björns Bjarnasonar er Háskóli Íslands, Öryrkjabandalagið og stjórnarandstaðan. Ég vonast til þess að dómsmálaráðherra fari að ná áttum því að þetta er afar óeðli- leg umræða, algerlega út í hött og í raun er óskiljanlegt að stjórnarliðar komist upp með að afneita stað- reyndum. Ég er á því að fjölmiðlar eigi að upplýsa almenning skilyrðislaust um raunverulega stöðu mála. Ríkissjónvarpið setti upp spjall- þátt þar sem prófessorinn sem greindi frá staðreyndum var látinn svara útúrsnúningum þingmanns Sjálfstæðisflokksins sem dró trúverð- ugleika prófessorsins og skattahækkanirnar í efa og sneri út úr staðreyndum. Í sjálfu sér er þetta óskilj- anlegt en jafnframt lýsandi fyrir það í hvaða far umræðan í þjóðfélaginu getur far- ið ef umræðuefnið er viðkvæmt fyrir stjórn- arflokkana, s.s. um leynilegt bókhald stjórnmálaflokkanna. Fjármálaráðuneytið bætti síðan gráu ofan á svart með því að dreifa villandi dæmum sem voru sett upp til þess að villa um fyrir upp- lýstri umræðu um skattahækkanir. Í dæmunum var bor- in saman skattbyrði á sömu krónutölu árin 1994 og 2006. Hvergi var þess getið að 120 þúsund króna laun árið 1994 eru ósambærileg við 120 þúsund króna laun árið 2006. Miklu meiri verðmæti feng- ust fyrir 120 þúsund kallinn 1994 en 2006. Til ársins 2005 hafa laun tvö- faldast. Ef eitthvert vit á að vera í samanburðinum ætti að bera saman hversu hátt hlutfall launþegi greiðir árið 1994 af launum sínum í skatt og að sama skapi hversu hátt hlut- fall af 240 þúsund króna launum fer í skatt árið 2005. Í útreikningum fjármálaráðherra kemur fram að samkvæmt öllum þessum dæmum, sem fjármálaráðu- neytið setur upp, hafi skattbyrðin þyngst ef borin eru saman 120 þús- und króna laun árið 1994 og 240 þúsund króna laun árið 2006 en það eru sambærileg laun miðað við þró- un launavísitölu eins og að framan greinir. Stjórnvöld hafa viðurkennt að misskipting hafi aukist en ekki veit ég hve langan tíma það á að taka fyrir stjórnvöld að viðurkenna þá augljósu staðreynd að skattar hafa hækkað. Stjórnarstefna umliðinna ára hefur einkennst af miðstýrðri misskiptingu og almenningur blæð- ir. Svo lengi má þæfa ull að breytist í silki Sigurjón Þórðarson fjallar um auknar álögur á almenning ’Stjórnarstefna umlið-inna ára hefur einkennst af miðstýrðri misskipt- ingu og almenningur blæðir.‘ Sigurjón Þórðarson Höfundur er alþingismaður. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.