Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 45 MENNING HJÖRTU kvenna myndu ábyggi- lega slá örar við vitneskjuna eina um að á meðal vor færi maður með eld réttlætiskenndar logandi svo heitt í brjósti sem hann gjörir hjá Zorró í þessari sögu. Og það væri óneitanlega meira fjör ef dul- arfullur grímuklæddur maður ætti það til að birtast óvænt á ögur- stundu og bjarga lítilmagnanum frá ofríki yfirvaldsins. Mætti jafnvel sjá fyrir sér skikkjuprýdda hetju hrifsa penna úr hendi jakkafata- klæddra burgeisa við samningsborð og koma í veg fyrir samþjöppun auðvaldsins. Eða hvernig ætli Zorró myndi bera sig að í dag? Og hvar ætti hann helst erindi? En það er erfitt að sjá ofdekraðan nú- tímamann fyrir sér í hlutverki Zorró af því að í vestrænni velmeg- un virðist öllum vera svo nákvæm- lega sama um það þó einhver ann- ar hafi það skítt. Kannski á Zorró best heima í fortíðinni, í goðsögn- inni. Hvar sem hann á heima í tíma og rúmi þá sprettur hann fram bráðlifandi í þessari sögu suður- amerísku skáldkonunnar Isabel All- ende, sem var falið það verkefni að skrifa um það hvernig hinn ungi Diego de la Vega varð Zorró. Þótt léttleiki ævintýrsins svífi vissulega yfir frásögninni og yfirnáttúrlegir hlutir eigi sér stundum stað, þá er þetta allt saman þónokkuð sann- færandi. Allt frá því hvernig leiðir foreldra Zorró lágu saman í Kali- forníu á síðari hluta átjándu aldar, fram til þess dags sem hann er orðinn fullmótuð alþýðuhetja. Per- sóna hans ber þess óneitanlega merki að í æðum hans rennur blanda af blóði stríðandi fylkinga. Frá móður sinni fær hann villt blóð indíánakonunnar bláfátæku en frá föðurnum kemur ráðsett blóð evr- ópska að- alsmannsins, hershöfðingjans og nýlendubúans. Sagan gerist á tímum Napóle- ons og bylting- arinnar og les- andinn fyllist vissulega réttlæt- iskennd fyrir hönd hinna kúguðu og það er aldrei of oft minnt á þá skammarlegu meðferð sem indíánar fengu í henni Ameríku á þessum tíma. En þetta er þó fyrst og fremst skemmtileg saga, dulítið rómantísk og kattl- iðuga hetjan Zorro er svarthvít. Höfundur bókarinnar gerir óspart grín að hégómleik hans. Þessi goð- sagnakenndi bjargvættur birtist hér í mannlegum breyskleika sín- um, hann er af holdi og blóði. Per- sónulýsingar Allende eru kunn- uglegar, þarna koma til dæmis fram á völlinn margar sterkar kon- ur sem eru einstaklega klókar og gjósa líkt og eldfjöll ef svo ber undir. Og vald ástarinnar er slíkt að það breytir framgangi mann- kynssögunnar. Húmor og erótík eru vel fléttuð inn í frásögnina, sem er einnig kunnuglegt úr fyrri bókum höfundar. Frásagnargleðin ræður ríkjum og stundum tekst henni að skapa mjög myndræna stemningu þar sem hún dvelur við smáatriði í náttúru eða umhverfi og hún er vissulega á heimavelli þegar hún lýsir einhverju villtu og óheftu. Semsagt suðræn og seiðandi hetju- saga sem er teprulaus, þar sem lögð er áhersla á að lífið er ein heild og að okkur koma örlög ann- arra manna við og við megum aldr- ei láta ranglæti gagnvart öðrum viðgangast. Vissulega er alveg hægt að láta klisjurnar í sögunni fara í taugarnar á sér, en það er líka alveg hægt að líta fram hjá þeim og hverfa á vit ævintýrsins og njóta. BÆKUR Skáldsaga Isabel Allende Íslensk þýðing Kolbrún Sveinsdóttir 336 bls., Mál og menning, 2005 Zorró, sagan á bak við goðsögnina Isabel Allende Kristín Heiða Kristinsdóttir Þá riðu hetjur um héruð STÆRSTA ástin á sjötíu ára pip- arsveinsævi danska ævintýrakóngs- ins H. C. Andersens var líklega sópr- ansöngkona. Jenny Lind (1820–87), „sænski næturgalinn“ sem svo var kölluð, náði óvefengjanlegri heims- frægð á aðeins níu ára óperuferli sín- um á 5. áratug aldarinnar. En þótt til- finningar Andersens væru óendurgoldnar, héldust þau nánir vinir meðan bæði lifðu, og haft er fyr- ir satt að ævintýri Andersens um kín- verska söngfuglinn (síðar tónsett af m.a. Stravinskíj) hafi hann skrifað til hennar. Boðskapur þess er sem kunnugt er hvað hið óspjallaða og náttúrulega tekur ávallt öllu sýnd- argervi fram, enda var á sínum tíma til þess tekið hvað Jenny megnaði öðrum fremur að tjá beint frá hjarta til hjarta. Það innræti kom einnig fram í fjárstuðningi hennar við tón- listarmenn, þ. á m. Schumann-hjónin. Manngöfgandi list söngkonunnar þótti með afbrigðum tær og ómeng- uð. Eða eins og H. C. orðaði það í ljóð- mælabók hennar: „Selv Du ei din bedste Ynde kjender, / sjælens Reen- hed, ubevidst udtalt;“[...] Og kannski á sá grunnsannleikur ekki sízt við okkar tíma, meðan skrumið er í meiri hámælum en lengi hefur þekkzt. Hið nýliðna tveggja alda afmæli æv- intýraskáldsins (f. 1805) gaf þess utan tilefni til ýmissa uppákomna lands- yðra þar sem minnzt var sambands þeirra Jennyar, og má segja að angi hafi færzt norður hingað með þokka- lega vel sóttum tónleikum Sólrúnar Bragadóttur og landa Linds, Thom- asar Landers, í Salnum á þriðjudags- kvöld þegar sýni voru reifuð af við- fangsvali sænsku heimssöngkonunnar. Dagskráin skiptist í 12 ljóðasöngva fyrir hlé og 6 óperuaríur eftir. Sungu þau Sólrún í fyrri hluta tvo dúetta eft- ir Mendelssohn (Gruß og Ich wollt’ meine Lieb’ ergöße sich), og í seinni dúett Luciu og Enricos úr Lucia di Lammermoor Donizettis. Pössuðu raddir þeirra merkilega vel saman, jafnvel þótt Sólrún hefði nokkurn styrkvinning á dýnamískum tindum. Skiptust þau annars jafnt á sviðsljós- inu, og meðal hápunkta ljóðasöngva þótti mér hjá Sólrúnu standa upp úr seljaköllin til búsmalans í Norsk fjällsaang (þjl. í úts. Ahlström, Thrane & Bjerregaard) er minnt gátu jafnvel á Auvergnesöngva Canteloubes, en hjá Lander þrótt- stælt meðferð hans á Der Soldat og Der Spielmann Schumanns við And- ersen-texta. Af þrem óperuaríum Sólrúnar eftir hlé skaraði Je suis seule úr Les Hug- uenots eftir Meyerbeer fram úr, þökk sé mikilli styrkvídd og fjölbreyttum tjábrigðum. Í alfrægustu aríu kvölds- ins, Casta diva úr Normu Bellinis þar sem óperusöngkonur þurfa enn í dag að sæta viðmiðun við Maríu Callas í hlutverki keltnesku hofgyðjunnar, tókst henni einnig furðuvel upp. Minna þótti mér hins vegar um túlk- un Landers í óþarflega raddekktri meðferð hans á Ah, per sempre io ti (I Puritani/Bellini) og La sua lampada vitale (I Masnadieri/Vivaldi), þar sem að vísu þróttmikill söngur hamlaðist verulega af ósannfærandi holri og einsleitri raddbeitingu. Annars átti sú einsleitni, einkum þegar fram í sótti, jafnt við báða söngvara. Því áður en lauk var ég satt að segja farinn að þreytast á full- mörgum orkurokum á kostnað skýrra tónskila og fíngerðari blæ- brigða. Það gildir greinilega jafnt um óperu- sem ljóðasöng – einkum á löngum tónleikum sem þessum (hátt í 3 klst. með hléi) – að eitthvað þarf meira til að viðhalda athygli hlustand- ans en kraftur og háir tónar. Sænski næturgalinn Morgunblaðið/ÞÖK Sólrún Bragadóttir, Thomas Lander og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Salurinn „Skáldið og næturgalinn“. Söngverk úr viðfangsvali Jennyar Lind. Sólrún Braga- dóttir sópran, Thomas Lander barýton og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó. Þriðjudaginn 31. janúar kl. 20. Einsöngstónleikar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.