Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ E inar Sigurðsson út- gerðarmaður frá Vest- mannaeyjum hefði orðið hundrað ára þriðjudaginn 7. febr- úar. Einar var einn helsti forystumað- ur Íslendinga í útflutningi sjávaraf- urða um áratuga skeið. Hann var kunnur að áræði og framtakssemi og rak á eigin vegum eða var þátt- takandi í útgerð báta og togara og fiskvinnslu víða um land, allt frá Seyðisfirði eystra til Flateyrar vestra. Hann beitti sér á fleiri svið- um þjóðlífsins, iðulega af framsýni og þrótti og sjást þess merki víða. Ellefu börn á fimmtán árum Einar Sigurðsson fæddist á Heiði í Vestmannaeyjum 7. febrúar árið 1906. Foreldrar hans voru hjónin Guðríður Jónsdóttir og Sigurður Sigurfinnsson bóndi, hreppstjóri og einn af upphafsmönnum vélbátaút- gerðar í Eyjum. Einar Sigurðsson var tvígiftur. Fyrri kona hans hét Þóra Eyjólfs- dóttir og áttu þau einn fósturson, Einar Þór. Þau skildu. Einar kvænt- ist síðar Svövu Ágústsdóttur úr Reykjavík. Þau áttu ellefu börn á fimmtán árum og komust tíu þeirra á legg, átta stúlkur og tveir drengir, en eitt barnið lést í æsku. Lærði Möllersæfingar sex ára Snemma varð ljóst í hvað stefndi, því Einar skar sig þegar úr á fæð- ingardeildinni, vó 22 merkur ný- fæddur og mun snemma hafa viljað mat sinn og engar refjar. Ekki var Einar hár í loftinu þegar lagður var grunnur að ævilangri íþróttaiðkun. Þó að efalaust hafi hann verið hærri en jafnaldrarnir. Hann byrjaði sex ára gamall að læra sund í sjónum við Eyjar, en þá var engin sundlaug í bænum. Kennarinn var ungur stúdent, Ásgeir Ásgeirs- son, sem síðar varð forseti. Einar iðkaði sund alla tíð og fór í sundhöll- ina á hverjum morgni sem hann var í Reykjavík. Þá gerði Einar alltaf Möllersæfingar, en þær lærði hann sex ára hjá Guðmundi Sigurjónssyni í þinghúsinu í Eyjum. Ekki fór hjá því að Einar beitti sér á þessum vettvangi sem öðrum og var hann lengi formaður Knattspyrnufélags Vestmannaeyja. Fyrstu skrefin í viðskiptum Einar lauk verslunarprófi frá Verzlunarskóla Íslands vorið 1924 og hóf eigin atvinnurekstur þegar um haustið, átján ára gamall. Hann opnaði Verzlunina Boston 20. nóv- ember og segist Einar hafa haldið upp á þann dag síðan sem tímamót í lífi sínu. Og metnaðurinn kom snemma fram í rekstrinum, eins og frá segir í ævisögu Einars, sem skráð var af Þórbergi Þórðarsyni: „Verslanir voru opnar frá klukkan 9 á morgnana til klukkan 7 á kvöldin og laugardaga líka. Þetta fannst mér ekki nóg. Ég sældist til að opna hálf- tíma fyrr á morgnana og loka hálf- tíma seinna á kvöldin. Fólkinu þótti þetta gott. Karlarnir komu snemma í morgunmund, skelþunnir eftir kvöldið áður og nóttina og fengu sér pilsner, og neftóbaksmaður fékk sér á baukinn, og Siggi Munda, með taumana niður munnvikin, var búinn með tóbakstöluna sína og bað mig um einn pakka af mellemskro frá Brödrene Braun. Og Oddný í Gröf, tuttugu barna móðir, hafði orðið sein fyrir að fá sér á könnuna og kom með þeim fyrstu til að ná sér í kaffi- pakka og rótarbréf.“ Þórbergur skráði ævisögu Einars í þremur bindum og var hún að hluta til byggð á dagbókum Einars. Yfir- skrift ævisögunnar var Einar ríki, en það viðurnefni var honum gefið og hafði hann gaman af, þó að til annars hafi verið ætlast af þeim sem gáfu. Og Einar sagðist raunar aldrei hafa átt neina peninga, alltaf verið búinn að eyða þeim áður en hann eignaðist vonina í þeim. Hann var maður framkvæmda. Hraðfrysting sjávarafurða Einari nægði ekki búðarrekstur- inn. Hann stofnaði Vöruhús Vest- mannaeyja árið 1927 og varð síðan einn af brautryðjendum í hraðfryst- ingu sjávarafurða hér á landi fyrir erlendan markað. Tilraunir með hraðfrystingu á fiski hófust í Vöru- húsinu í Vestmannaeyjum í febrúar árið 1937 og um vorið 1939 var byrj- að að flaka og frysta fisk þar í stórum stíl. Í árslok keypti Einar Garðs og Godthåbseignirnar, sem höfðu staðið auðar frá um 1930. Það segir sitt um framkvæmda- huginn að Einar gekk frá afsali á eignunum 22. desember árið 1939, 10. febrúar 1940 voru vélar Hrað- frystistöðvar Vestmannaeyja settar í gang í nýjum húsakynnum og 14. febrúar hófst flökun og frysting. Markaði það upphaf hraðfrystingar í Eyjum og var Hraðfrystistöðin í áratugi eitt stærsta og öflugasta frystihús landsins. Samhliða öllum þessum umsvifum sínum ræktaði hann stærsta túnið í Eyjum og rak þar búskap og var lengi í stjórn Búnaðarfélags Vest- mannaeyja. Þannig er honum lýst í sögu SH: „Sannleikurinn er sá að í athafnaþrá sinni var Einar ekki ein- hamur. Hann þurfti minni svefn en aðrir menn og á kvöldin og nóttunni vann hann oft dagsverk sem aðrir hefðu talið sig fullsæmda af. Var hann þó óvenjuleg hamhleypa í dag- legum störfum.“ Beitti sér fyrir stofnun SH Einar og Ólafur Þórðarson, sem hafði rekið frystihús í Siglufirði, voru aðalhvatamenn að stofnun SH eða Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna árið 1942. Ólafur varð síðar forstjóri Jökla, skipafélags sem var í eigu frystihúsanna og flutti frystan fisk á erlenda markaði. SH varð fljótt stærsta útflutn- ingsfyrirtæki Íslendinga og hefur verið það æ síðan. Einar og Elías Þorsteinsson voru einkum í forystu fyrir SH fyrstu áratugina ásamt fjölmörgum frystihúsamönnum víðs- vegar að af landinu. Ráðist var í markaðssetningu í Bandaríkjunum og réð stjórn SH ungan verkfræð- ing, Jón Gunnarsson, til starfa fyrir Coldwater sem var dótturfyrirtæki SH í Bandaríkjunum og var tákn- rænt að hann skyldi ráðinn 17. júní 1944. Markaðssóknin tókst vel og er Coldwater stærsta sölufyrirtæki á frystum fiski í Bandaríkjunum. Einar var stjórnarformaður Coldwater um áratuga skeið og sat sömuleiðis í stjórn Sölumiðstöðvar- innar lengst af sem varaformaður, um tíma sem formaður. Einar varði miklum tíma í þessa uppbyggingu og skynjaði það sem eitt mikilvæg- asta verkefni Íslendinga eftir stríð að þróa frystiiðnaðinn hratt og ná fótfestu með íslensk fyrirtæki við sölu afurðanna erlendis. Ýmis fyrirtæki voru stofnuð í tengslum við SH, s.s. Umbúðamið- stöðin, Jöklar og Tryggingamið- stöðin. Félögin eru öll starfandi enn í dag og standa traustum fótum. Fyrirtæki Einars voru stórir hlut- hafar í þessum fyrirtækjum, en eignaraðild var annars dreifð. Til forystu kallaður Einar tók virkan þátt í starfi SÍF, Sölusambandi íslenskra fiskfram- leiðenda, sem annast hefur útflutn- ing á saltfiski fyrir Íslendinga um áratuga skeið. Þá tók hann þátt í mörgum öðrum félögum innan sjáv- arútvegsins, s.s. LÍÚ og Fiskifélag- inu. Alls staðar var hann ásamt öðr- um til forystu kallaður. „Eins og títt er um menn, sem standa í stórræðum, stóð oft styrr um Einar Sigurðsson, enda sópaði að honum hvar sem hann fór. Eng- inn frýði honum samt áræðis og framtakssemi …“ segir í minningar- orðum Más Sigurðssonar í Ægi. Einar hafði gaman af félagsmál- um og gilti einu hvort það var á vett- vangi atvinnulífs eða stjórnmála. Hann þótti góður ræðumaður, lá hátt rómur á fundum og var rökfast- ur í deilum. Það var sjaldnast logn- molla í kringum hann og starfs- þrekið var mikið. Hann átti gott með að laða til samstarfs unga og upp- rennandi menn; margir þeirra urðu snemma skipstjórar og síðar lands- þekktir aflamenn. Stærsti togari Íslendinga Umsvifin voru orðin það mikil ut- an Vestmannaeyja árið 1950 að Ein- ar flutti til Reykjavíkur. Þá rak hann mörg og fjölbreytileg fyr- irtæki. Má þar nefna Hraðfrysti- stöðina í Reykjavík og útgerð- arfélagið Ísfell, sem gerði m.a. út Sigurð, eitt mesta aflaskip Íslend- inga. Sigurður var smíðaður í Bremer- haven árið 1960 og var þá ásamt systurskipum sínum stærsti togari Íslendinga. Framan af var útgerð skipsins brösótt, um tíma var þessu nýja skipi lagt við hafnarbakkann, en svo rættist úr og það varð afla- hæst ár eftir ár. Í lok sjöunda ára- tugarins tók Einar þá ákvörðun að breyta Sigurði í loðnuskip. „Þetta þótti mörgum undarleg ráðstöfun,“ segir Guðmundur H. Garðarsson, fyrrverandi þingmaður, sem vann lengi með Einari hjá SH. „Einar sýndi með þessu hversu djarfur hann var í hugsun og hversu framsýnir hann og samstarfsmenn hans voru.“ Skemmst er frá því að segja að togarinn varð aflahæstur hverja vertíðina á fætur annarri. Er hann enn gerður út frá Eyjum, kom- inn á fimmtugsaldur, og er eitt besta skip flotans. Fáir komið jafn mikið við sögu Einar rak einnig Hraðfrystistöð Keflavíkur þar sem fiskur var fryst- ur, saltaður og hertur, og um tíma útgerð og frystihús á Flateyri og á Höfnum. „Einar rak svo mörg frystihús og var í tengslum við svo mörg útgerðarfyrirtæki smá og stór að ég held að fáir hafi komið jafn mikið við sögu í íslenskum sjávar- útvegi,“ segir Guðmundur. „En það er leitun að mönnum sem hafa verið jafn lítillátir gagnvart starfi sínu úti á vettvangi. Allir vissu hvað hann var athafnasamur, en hann var ekk- ert að halda því á lofti. Það spurð- ist.“ Að sögn Guðmundar var stofnun SH liður í því að treysta grundvöll fyrirtækja víða um land sem byggðu afkomu sína á sjávarútvegi. „Mér fannst hann þrautseigur og úrræða- góður í þeirri baráttu. Það kom aldr- ei til greina að gefast upp. Einn stærsti kostur Einars var að kenna aldrei öðrum um ef illa gekk. Hann leit alltaf fyrst á sjálfan sig og svo á okkur hina. Og niðurstaðan var allt- af á sömu lund: Hvernig getum við gert þetta betur – en áfram skal haldið hvað sem tautar og raular.“ Betri aðbúnaður starfsmanna „Ég get sagt þér að hann var í orðsins fyllstu merkingu einstakur húsbóndi,“ segir Stefán Runólfsson, sem vann hjá Einari í rúman áratug, sem verkstjóri hjá Hraðfrystistöð- inni í Vestmannaeyjum og einnig framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv- ar Keflavíkur um tveggja ára skeið. „Af öllum þeim mönnum sem ég hef kynnst á lífsleiðinni var Einar sá hugmyndaríkasti. Og hann hafði 100 ár liðin frá fæðingu Einars Sigurðssonar útgerðarmanns Áfram skal haldið hvað sem tautar og raular Þórbergur Þórðarson skráir ævisögu Einars Sigurðssonar. Fjölskyldumynd frá 1974: Efri röð: Sólveig, Svava, Ágúst, Einar, Sigurður, Ólöf og Helga. Fremst: Elísabet, Elín, Svava, Auður og Guðríður. Einar skrifaði fasta þætti um sjávarútveg í Morgunblaðið. Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.