Morgunblaðið - 07.02.2006, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 07.02.2006, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Tölvu- og iðnmenntaður einstaklingur Margmiðlunarfræðingur og hljóðfærasmiður með reynslu af vefumsjón og námskeið í net- stjórnun óskar eftir atvinnu. Upplýsingar í síma 699 7131 eða runars@btnet.is. Tæknimaður Óskum eftir tæknimanni á verkstæði hjá Tölvu- virkni. Umsóknir sendist á info@tolvuvirkni.is. Öllum umsóknum verður svarað. Sölustarf Tímaritaútgáfan Fróði ehf. óskar eftir að ráða kraftmikla og drífandi sölu- menn til starfa í auglýsingadeild Fróða ehf. Umsóknir ásamt ferilskrá sendast til Tímarita- útgáfunnar Fróða ehf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, eða á netfangið gbald@frodi.is undir fyrirsögninni - Sölustarf. Umsóknum skal skila í síðasta lagi föstudaginn 10. febrúar nk. Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu óbóleikara með skyldur á englahorn frá og með 1. september 2006 Skylduverkefni: W.A. Mozart: Óbókonsert (m/cadensu) R. Strauss: Óbókonsert Umsóknir, ásamt ferilskrá, skulu hafa borist hljómsveitinni fyrir 31. mars 2006. Hæfnispróf fer fram 3. maí 2006. Þættir úr hljómsveitarverkum verða sendir umsækjendum með tveggja vikna fyrirvara. Laun skv. kjarasamningi starfsmannafélags SÍ og fjármálaráðherra. Umsóknir og hæfnispróf gilda í eitt ár (sbr. reglur um ráðningu hljóðfæraleikara, 9. gr.) Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Háskólabíó v. Hagatorg, pósthólf 52, 127 Reykjavík. Sími 545 2500 - Fax 562 4475. Netfang: kristin@sinfonia.is http://www.sinfonia.is. Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Bjarkarbraut 5, 01-0301, Dalvík (215-4691), þingl. eig. LMS ehf, gerð- arbeiðendur LMS ehf., Ræsir hf. og Tollstjóraembættið, föstudaginn 10. febrúar 2006 kl. 10:00. Grund II, landspilda, reitur B, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Sturla Snæbjörnsson, gerðarbeiðandi Draumakaffi ehf., föstudaginn 10. febrúar 2006 kl. 10:0. Grund II, landspilda, reitur F, eignarhl. Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Sturla Snæbjörnsson, gerðarbeiðandi Draumakaffi ehf., föstudaginn 10. febrúar 2006 kl. 10:00. Hjallalundur 11, íb. 03-0301, Akureyri (214-7456), þingl. eig. Sólrún Helgadóttir, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstudaginn 10. febrúar 2006 kl. 10:00. Norðurgata 17a, 01-0201, Akureyri (214-9480), þingl. eig. Þuríður María Hauksdóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Íbúða- lánasjóður, Kreditkort hf. og Tryggingamiðstöðin hf., föstudaginn 10. febrúar 2006 kl. 10:00. Oddagata 1, íb. 01-0101, Akureyri (214-9629), þingl. eig. Sigurbjörn Viðar Júlíusson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudag- inn 10. febrúar 2006 kl. 10:00. Rauðamýri 11, Akureyri (214-9912), þingl. eig. Sólrún Helga Birgis- dóttir, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstudaginn 10. febrúar 2006 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 6. febrúar 2006. Eyþór Þorbergsson, ftr. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Strandgötu 52, Eskifirði, miðvikudaginn 8. febrúar 2006 kl. 10:00, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Nesgata 18, Neskaupstað (216-9572), þingl. eig. Sveinn Þór Gíslason, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Skólabraut 12, Stöðvarfirði (217-8397), þingl. eig. Erling Ómar Er- lingsson, gerðarbeiðendur Austurbyggð, Glerharður ehf., Íbúða- lánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf. Skólavegur 49, Fáskrúðsfirði, ásamt vélum, tækjum og búnaði, þingl. eig. Unnsteinn Rúnar Kárason, gerðarbeiðandi Byggðastofnun. Strandgata 10, Eskifirði (217-0375), þingl. eig. Staðarhraun ehf., gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Rekstrarvörur ehf. Sýslumaðurinn á Eskifirði, 4. febrúar 2006. Styrkir Styrkur til tónlistarnáms Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar veit- ir á þessu ári íslenskum söngvurum styrki til tónlistarnáms erlendis. Einn eða fleiri styrkir veittir. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform sendist fyrir 25. febrúar nk. til: Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar b.t. Haukur Björnsson Flyðrugranda 8-A2 107 Reykjavík Umsóknum fylgi hljóðritanir og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Endurnýja skal eldri umsóknir. Tilboð/Útboð Útboð Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í uppsteypu og fullnaðarfrágang á Sala- skóla V. áfanga Um er að ræða steinsteypta byggingu á tveim- ur hæðum einangraða og klædda að utan. Í verkinu felst að steypa upp húsið og fullgera það að utan og innan ásamt þeim innréttingum og búnaði sem upp eru talin í útboðsgögnum. Lokið er við að steypa undirstöður og botn- plötu byggingarinnar. Helstu magntölur eru: Flatarmál (heildar grunnflötur) 930 m² Mótaflötur 3.600 m² Steypa 450 m³ Steypustyrktarjárn. 30 tonn Lokið skal við fyrri hluta verksins 20. desember 2006 og verður sá hluti þess þá tekinn í notkun. Verkinu skal að fullu lokið 1. mars 2007. Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000 á Tækni- deild Kópavogs, Fannborg 2, lll hæð, frá og með miðvikudeginum 8. febrúar nk. Tilboðum skal skilað á sama stað þriðjudaginn 21. febrúar 2006 fyrir kl. 11:00 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda er þar mæta. Framkvæmdadeild Kópavogs. Félagslíf I.O.O.F. Rb. 4  155278 EI*  HLÍN 6006020719 VI  Hamar 6006020719 I Þorraf.  FJÖLNIR 6006020719 II Félagsfundur í kvöld Í kvöld, þriðjudaginn 7. febrúar. verður haldinn félagsfundur Lífssýnar í Bolholti 4, 4. hæð. Hringborðsumræðan verður um „frelsi“. Frummælendur eru þeir Ólafur Pétursson og Ámundi Sigurðsson. Fundurinn er opinn öllum og er aðgangseyrir 500. Stjórnin.  EDDA 6006020719 III Í dag er tengdamóð- ir okkar Magdalena Ólafsdóttir Thoroddsen áttræð. Það er okkur kært tilefni að stinga niður penna og árna henni heilla í tilefni dagsins, um leið og við þökkum henni hina bestu viðkynningu þá áratugi sem við höfum átt því láni að fagna að eiga samleið með henni. Magdalena er Barð- strendingur að ætt og uppruna, fædd í Vatns- dal í Rauðasandshreppi. Þar ólst hún upp, næstyngst í hópi 14 systk- ina, við árvökul kærleiksaugu for- eldra sinna, hjónanna Ólínu Andr- ésdóttur og Ólafs Einarssonar Thor- oddsen, skipstjóra, kennara og bónda. Í Vatnsdal stóð menningarheimilið föstum fótum. Þar var jafnan margt um manninn og oft á tíð- um mikill gestagang- ur og þó munnar væru margir til að metta var ætíð nóg til að víkja að þeim sem minna máttu sín. Eins og að líkum læt- ur þurftu allir að vinna, börn jafnt sem fullorðnir. Samheldnin var mikil og eldri systkinin hlúðu jafnan að þeim yngri. Foreldrar þeirra Vatnsdals- systkina lögðu áherslu á að veita þeim hina bestu menntun heima fyrir. Þetta þótti jafn sjálfsagt og að kenna þeim að ganga og tala. Hinn félagslegi þáttur mannlífsins var heldur ekki afræktur. Fjöl- skyldan öll söngvin, ljóðelsk og skáldmælt. Þeim varð ekki skota- skuld úr því að koma saman kvið- lingum og vísum, jafnvel var stíl- vopninu beitt til leikritsgerðar. Þá var æfður söngur og systkinin mynduðu raddaðan kór. Í öllu þessu tók móðirin virkan þátt og kenndi meðal annars öllum hópnum að dansa. Lífsgleði og trú voru samofin heild sem kom fram í leik og starfi í dagsins önn. Fyrir daga útvarpsins voru lesnir húslestrar og passíusálmarnir ævinlega sungnir á föstunni. Allt heimilis- fólkið tók þátt í þeirri helgistund. Þannig má segja að guðsótti og góðir siðir hafi mótað daglegt líf Vatnsdalsheimilisins. Veganesti mótað á traustum grunni, sem í meðlæti og mótlæti veitti styrk og festu um langa og farsæla ævi. Á unglingsárum fluttist Magda- lena til Reykjavíkur þegar foreldr- ar hennar brugðu búi. Hún settist í Húsmæðraskóla Reykjavíkur einn vetur og nokkru síðar sigldi hún til Svíþjóðar til náms í blaðamanna- skóla í Stokkhólmi og útskrifaðist þaðan. Heimkomin var hún ein af fyrstu konunum hér á landi sem lögðu fyrir sig blaðamennsku. Starfaði hún bæði á Tímanum og Morgunblaðinu. Leiðir lífsförunautar hennar og eiginmanns Þorvarðar Kjerúlfs Þorsteinssonar lágu saman um þetta leyti og gengu þau í hjóna- band 4. janúar 1958. Dætur þeirra eru tvær, Ólína, skólameistari á Ísafirði og Halldóra, prófastur í Rangárvallaprófastsdæmi. Þor- varður var deildarstjóri í sam- gönguráðuneytinu, en tók við emb- ætti sýslumanns og bæjarfógeta á Ísafirði árið 1973 og fluttist þá fjöl- skyldan vestur. Magdalena tókst nú á við nýtt hlutverk, sem fór henni afar vel úr hendi, eins og við var að búast. Rausnarskapur og gestrisni einkenndi sýslumanns- heimilið og þar stjórnaði húsfreyj- an innan dyra af skörungsskap. Þar var gestkvæmt: vinir og ætt- ingjar, sýslungar og lengra að komnir stóðu við í kaffi, mat eða til gistingar. Sumir í kurteisiserind- um, aðrir í erindum embætta og starfa og enn aðrir í erindisleysu eða jafnvel í vanda staddir. Öllum var heimilið opið, enginn fór bón- leiður af tröppunum í Hrannargötu 4. Þar var ekki farið í manngrein- arálit. Húsmóðirin mat mannkosti framar mannvirðingum og innræti framar umgjörð. Allir fengu sömu trakteringar, að höfðingja sið, og áttu þá færi á að sýna sinn rétta mann. En færi svo að yfirgangur og hroki læddist inn fyrir hennar þröskuld var því mætt með vel völdum vestfirskum orðaforða og kannski Thoroddsen-fasi, ef annað dugði ekki. Ævinlega var þó sátta og viðreisnar von ef menn sáu að MAGDALENA THORODDSEN AFMÆLI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.