Morgunblaðið - 07.02.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 11
FRÉTTIR
RÉTT rúmlega helmingur af
hlutabréfaáhættu Landsbanka Ís-
lands er í íslenskum hlutabréfum, en
bankinn hefur á síðustu misserum
einkum fjárfest í erlendum hluta-
bréfum fyrir eigin reikning.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í máli Halldórs J. Kristjánsson-
ar, bankastjóra Landsbanka Íslands,
á kynningarfundi bankans, sem
haldinn var fyrir fjárfesta í London í
gær í tilefni aðalfundar og útkomu á
ársskýrslu bankans.
Hann sagði á fundinum að hlutfall
erlendrar hlutabréfaeignar bankans
hefði hækkað úr um 15% í tæp 50% á
einu til tveimur árum. Hlutabréfa-
staða bankans, þ.e. hlutabréf hans
sem hlutfall af heildareignum, hafi
þó ekki breyst og hafi í langan tíma
verið um 4%. Þá sé áhættudreifing í
rekstri betri nú, en Landsbankinn er
nú með rekstur í 12 löndum saman-
borið við þrjú lönd fyrir rúmu ári.
„Fjárhagsstaða bankans er meðal
þess sem best gerist og það ásamt
háu eignafjárhlutfalli og góðri
áhættudreifingu staðfestir að
Landsbankinn stendur vel undir því
lánshæfismati sem hann nú hefur.“
Fjölþættar fjármögnunarleiðir
Bankastjórar Landsbankans, þeir
Halldór og Sigurjón Þ. Árnason,
gerðu grein fyrir starfsemi bankans
á kynningarfundinum í gær auk þess
sem Halldór fór yfir helstu stærðir í
efnahagslífinu á Íslandi.
Halldór vék í máli sínu á fundinum
að nýlegum greiningum erlendra
aðila á íslenskum fjármálamarkaði,
og sagði að þar hafi ekki verið tekið
nægilegt tillit til ýmissa jákvæðra
þátta sem hefðu verið að gerast í ís-
lenska fjármálakerfinu. Sumt hafi og
verið byggt á misskilningi.
Hann sagði það vera rétt sem fram
hefði komið, að allir bankarnir á Ís-
landi hefðu fjármagnað tiltölulega
hátt hlutfall heildarumsvifa sinna
með skuldabréfaútgáfu á alþjóðleg-
um mörkuðum.
„Landsbankinn hefur stöðugt
hugað að sem fjölþættustu fjár-
mögnunarleiðum og hóf m.a. töku
innlána í London fyrir um þremur
árum. Nú er svo komið að um 2/3 um-
svifa bankans í Bretlandi, þ.e. öll
starfsemi Heritable Bank og helm-
ingur af útlánum útibús Landsbank-
ans í London, eru fjármögnuð með
innlánum. Þá hefur bankinn stuðst
við verðbréfun, þ.e. sölu eignasafna,
sem fjármögnunaraðferð í hluta
bresku starfseminnar og mun þessi
þáttur verða aukinn verulega og
verðbréfun þróuð sem ný stoð fjár-
mögnunar.“
Halldór greindi frá því að mikill
vöxtur í útlánum Landsbankans að
undanförnu hefði í raun aukið gæði
útlánasafns bankans mikið. Um 35%
af aukningu útlánanna sé til stærstu
fyrirtækjanna á Íslandi, um 40% af
aukningunni séu til traustra er-
lendra aðila og íbúðalán, bæði á Ís-
landi og í Bretlandi, standi undir
25% af aukningunni. Útlánavöxtur-
inn hafi því verið í mjög öruggum út-
lánum.
Í stakk búinn til að
mæta áföllum
Landsbankinn er vel í stakk búinn
til að mæta utanaðkomandi áföllum,
ef þau skyldu koma upp, að sögn
Halldórs. Hann sagði á fundinum að
samkvæmt álagsprófi, þar sem gert
er ráð fyrir 25% lækkun á hluta-
bréfaverði, 20% lækkun á verðgildi
fullnustueigna, 7% lækkun á verð-
lagningu á skuldabréfum og 25%
lækkun á gengi íslensku krónunnar,
allt á sama tíma, þá myndi CAD-
hlutfall bankans aðeins lækka um
2,5%. Þrátt fyrir þá lækkun myndi
hlutfallið engu að síður vera 2,6% yf-
ir lögbundnu lágmarki, sem er 8,0%.
Þar fyrir utan sé meirihluti við-
skiptavina bankans, sem hafa tekið
lán í erlendri mynt, með greiðslu-
flæði í erlendri mynt. Staða bankans
sé því í alla staði mjög góð.
Halldór sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, í tilefni af umfjöllun
hans um ímynduð óvænt áföll á fund-
inum, að ljóst væri að stoðir bankans
eru mun styrkari og fjölþættari en
áður. Einnig sé mikilvægt að benda á
að geta ríkisins til að mæta áföllum
og til að styðja atvinnulífið, ef þau
yrðu, sé mikil gagnstætt því sem
ýmsir erlendir aðilar hafi verið að
halda fram. Það stafi m.a. af styrkum
stoðum ríkissjóðs og lágri skuldsetn-
ingu. Landfræðileg og atvinnugreina
þátttaka bankans sé hins vegar það
dreifð að hverfandi líkur séu á að á
slíkt muni reyna.
Engin verðbóla á
hlutabréfamarkaði
Í umfjöllun sinni um efnahagslífið
á Íslandi sagði Halldór að engin
merki séu um að verðbóla hafi mynd-
ast á íslenskum hlutabréfamarkaði
þrátt fyrir að Úrvalsvísitala aðallista
Kauphallar Íslands hafi hækkað um
tæp 65% á síðasta ári. Í yfirliti sem
hann sýndi á fundinum kemur fram
að þrátt fyrir að svonefnt V/H-hlut-
fall fyrir félögin sem skráð eru í
Kauphöllinni sé í efri mörkum, þá sé
það þó í megindráttum í samræmi
við þetta hlutfallið á hlutabréfamörk-
uðum í helstu nágrannalöndum.
V/H-hlutfall er hlutfallið á milli
markaðsverðs félags og hagnaðar
þess. Í erindi Halldórs kom fram að
V/H-hlutfallið fyrir félögin í Kaup-
höll Íslands sé 15,9. Hlutfallið sé það
sama í Svíþjóð en það sé hærra bæði
í Finnlandi og á Írlandi, þar sem það
er 16,2. Hins vegar sé hlutfallið
hærra hér á landi en í Þýskalandi,
þar sem það er 14,6, í Frakklandi,
13,7 og í Bretlandi 13,4.
Góð arðsemi vakti athygli
Sigurjón Þ. Árnason gerði grein
fyrir rekstri bankans á kynningar-
fundinum í gær og greindi einnig frá
því að grunnafkoma bankans hefði
styrkst verulega að undanförnu.
„Arðsemi af grunnstarfsemi bank-
ans fyrir skatt var 23% árið 2004 og
30% árið 2005,“ sagði Sigurjón, en þá
er átt við afkomu bankans án geng-
ishagnaðar af hlutabréfum og kostn-
aðar vegna fjárbindingar í hluta-
bréfastöðum.
Sigurjón sagði í samtali við Morg-
unblaðið að góð arðsemi af grunn-
starfsemi bankans hefði vakið mikla
athygli meðal fundargesta, sem
hefðu verið vel á þriðja hundrað tals-
ins. Hann sagði það vera nýtt fyr-
irkomulag hjá bankanum að reikna
sérstaklega út afkomuna af grunn-
starfseminni, þ.e. hagnað án geng-
ishagnaðar. Hér eftir verði þessa
sérstaklega getið í uppgjörum bank-
ans.
Erlend hluta-
bréfaeign tæp-
ur helmingur
Morgunblaðið/Sverrir
Bankastjórar Landsbanka Íslands, þeir Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, fóru yfir stöðu bankans.
Bankastjórar Landsbankans fóru yfir
stöðu bankans á kynningarfundi fyrir
fjárfesta í London í gær
ÞRÖSTUR Harðarson hefur starfað í mötu-
neytum skóla frá árinu 1998 og haustið
2004 tók hann við nýju mötuneyti í ungl-
ingaskólanum Hagaskóla í vesturbæ
Reykjavíkur. Hann vann náið með for-
manni fræðsluráðs Reykjavíkurborgar og
fræðslustjóra í eldhús- og matarmálum á
árunum 2001–2003 og hefur sterkar skoð-
anir á því hvernig starfsemi skólamöt-
uneyta skuli háttað.
„Mér finnst að það eigi að þjónusta börn-
in eins vel og hægt er og vera með meira
en einn rétt í boði hverju sinni,“ segir
Þröstur. „Ég held að það sé vandamál að
vera bara með einn rétt í boði og fer oft þá
leið að vera með tvíréttað og jafnvel þrí-
réttað.“
Þröstur þvertekur fyrir að aukinn kostn-
aður fylgi þessari þjónustu við börnin og
er alveg sama þótt vinnan verði meiri fyrir
vikið. Hann segist hafa heimsótt mötuneyti
á Keflavíkurflugvelli á síðasta ári og þar
hafi verið boðið upp á nokkra rétti og allir
fengið eitthvað við sitt hæfi.
Verðið ekki aðalástæðan
„Matvendni og ofnæmi hafa verið nefnd
sem ástæður fyrir því að foreldrar kaupi
ekki mat en það eru ekki mjög margir með
ofnæmi og ég er sjálfur í persónulegu sam-
bandi við þá krakka í mínum skóla,“ segir
Þröstur. „Krakkar geta verið mjög mat-
vandir en ég held líka að foreldrarnir séu
seinir til að skrá þá í mötuneytin. Það get-
ur líka verið að þeim sé skammtaður of
naumur tími til að borða, þau nenni ekki
að hanga í röð eftir matnum o.s.frv. Svo
eru þau með peninga á sér og fara mörg
bara út í næstu sjoppu. Svo fara sum heim
í mat í hádeginu.“
Þröstur segist viss um að verðið sé ekki
höfuðástæða þess að nær þriðjungur nem-
enda nýtir sér ekki þjónustu mötuneytanna
og að mikilvægara sé að reyna að höfða til
krakkanna sjálfra svo þau vilji borða heita
matinn í skólunum.
„Þegar börn eru í fyrsta til sjöunda bekk
eru það klárlega foreldrarnir sem ákveða
hvort þau eru í mat eða ekki en þegar þau
eru í 8. til 10. bekk eru þau sjálfráðari.
Þess vegna dettur prósentutalan svona
mikið niður. Í Hagaskóla er prósentan 55–
60% þegar mest er og svo geta þau keypt
stakar máltíðir hjá mér fyrir pening ef þau
dreplangar í það sem er í boði,“ segir
Þröstur. „Verðið er ekki ástæðan og fé-
lagsþjónustan veitir líka styrki vegna
þessa. Ég veit hver réttindi fólksins eru í
landinu og það getur hver sem er, ef þann-
ig er ástatt fyrir honum, sótt um styrk til
að greiða mat eða annað í skólanum. Í
Hagaskóla kostar maturinn 270 krónur
sem er auðvitað mjög lítið miðað við magn-
ið af mat sem krakkarnir fá.“
Þröstur segir ómögulegt að neyða alla til
að nýta sér mötuneytin en leggur áherslu á
mikilvægi heitrar máltíðar í hádeginu.
„Ég held nú að flestir vilji að börnin
þeirra borði heitan mat í hádeginu, sér-
staklega á unglingastiginu,“ segir hann.
„Þetta eru krakkar sem eru að vaxa mikið
og margir þeirra eru í miklum og krefj-
andi íþróttum og listum. Þeir eru mjög
lystugir á allan mat, hvort sem um fisk eða
annað er að ræða. Þau fá ábót hjá mér ef
þau vilja og þiggja það flest. Þess vegna er
ég líka á móti því að það séu búnar til
skammtastærðir fyrir þennan aldurshóp.“
Kostnaði við hráefni og
laun blandað saman
Þröstur segir að ekki megi gleymast að
verðið eigi nú einnig að ná yfir hluta af
launakostnaði mötuneytisstarfsmanna.
„Hagaskóli ákvað að hafa verðið 270
krónur og ég hélt að það ætti að duga fyrir
mat en nú á það að duga fyrir launakostn-
aði líka að einhverjum hluta. Þetta er fá-
ránlegt. Ég vil ekki blanda launum starfs-
manna inn í hráefniskostnaðinn,“ segir
hann. „Mötuneyti í leikskólum og grunn-
skólum eru líka komin undir sama hatt og
þetta er allt orðið sami potturinn eftir því
sem ég best veit.“
Þröstur leggur mikla áherslu á að börnin
borði hollan mat og nefnir að fiskur sé
herramannsmatur sem ávallt sé í boði
ferskur og góður.
„Það var farið í að bjóða út fisk og nú
stendur til að bjóða út kjötið líka en ég er
á móti því. Ég vil að við séum sjálfráð um
það hvar við kaupum og að við kaupum
bestu fáanlegu vöruna á hverjum tíma, svo
lengi sem við höldum okkur innan pen-
ingarammans,“ segir hann.
Bjóða þarf upp á fleiri rétti í einu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þröstur Harðarson starfar í mötuneyti Hagaskóla og reynir að höfða til sem flestra með
matseld sinni. Hann vílar ekki fyrir sér að hafa tvíréttað og jafnvel þríréttað fyrir krakkana.
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is