Morgunblaðið - 07.02.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
SBV bo›a til hádegisver›arfundar fimmtudaginn 9. febrúar
kl. 12.00 – 13.30 í Skipagötu 14, Akureyri.
Sta›a íslensks fjármálamarka›ar
í evrópsku samhengi
Ræ›umenn:
Hrei›ar Már Sigur›sson, forma›ur stjórnar SBV
mun fjalla um stö›u íslensks fjármálamarka›ar.
Manfred Weber, framkvæmdastjóri fl‡sku bankasamtakanna
mun fjalla um fjármálamarka›inn í fi‡skalandi, stö›u og framtí›
evrópsks fjármálamarka›ar og mikilvægi skilvirkra leikreglna
á EES svæ›inu.
Fundarstjóri:
Gu›jón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SBV
Fundarsta›ur og fundargjald:
Veitingahúsi› Striki›, Skipagötu 14, Akureyri b‡›ur upp á
hádegisver› a› hætti hússins á kr. 1.500,-
Teki› er á móti skráningum á fundinn í síma 460 4700
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
39
1.
0
0
0
Fréttir í tölvupósti
AFKOMA leikfangaverslanakeðj-
unnar Hamleys í Bretlandi var nei-
kvæð um 3,6 milljónir punda, 400
milljónir króna, yfir tólf mánuði fram
að 26. mars á síðasta ári. Frá þessu er
greint í breska blaðinu The Sunday
Times um helgina en þar segir jafn-
framt að Baugur, sem er eigandi
Hamleys, hafi lánað félaginu 3 millj-
ónir punda. Upplýsingarnar mun
blaðið hafa frá Corporal, móðurfélagi
Hamleys.
Í blaðinu er það sagt áhyggjuefni
að fyrirtæki á borð við Hamleys, sem
er í eigu einkahlutafélags, Baugs,
skuli skila svo lélegri afkomu.
„Þetta vekur frekari áhyggjur
vegna fjárhagslegs styrks félaga sem
hafa einkahlutafélög sem bakhjarla
enda eru þessi félög oft mjög skuld-
sett. Á síðustu fimm árum hafa
hundruð fyrirtækja verið keypt af
einkahlutafélögum og fimmtungur
mannafla á vinnumarkaði í einkageir-
anum starfar nú hjá fyrirtækjum
sem eru í eigu einkahlutafélaga,“
segir enn fremur í The Sunday Tim-
es.
„Það er mjög auðvelt að komast að
rangri niðurstöðu við lestur reikn-
inga óskráðra félaga sem nýlega hafa
gengið í gegnum yfirtöku. Eins og
gjarnan er með slíkar yfirtökur, þá er
stórum hluta hlutafjár fjárfest sem
vaxtaberandi hluthafalánum og því
fjármagnskostnaður hærri en ella.
Þar að auki er um að ræða afskriftir
óefnislegra eigna þannig að reiknuð
niðurstaða verður talsvert frábrugð-
in raunverulegu sjóðsstreymi sem er
sá mælikvarði sem bankar og hlut-
hafar hafa meiri áhuga á,“ segir
Gunnar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri fjárfestinga Baugs í Bretlandi
þegar Morgunblaðið innti hann eftir
viðbrögðum við málinu í gær.
Afkoma Hamleys neikvæð
um 400 milljónir króna
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
DAGSBRÚN hf. hefur skrifað undir
samning um kaup á öllu hlutafé
Senu, með fyrirvara um samþykki
samkeppnisyfirvalda, að því er segir
í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Sena er hluti af Degi Group og
með kaupunum fylgir tónlistarút-
gáfa, umboð fyrir tölvuleiki, tónlist
og kvikmyndir, bíórekstur, hljóðver,
tónlistarveitan tónlist.is og allur
annar rekstur Dags Group sem
heyrir undir afþreyingarsvið.
Greitt verður fyrir kaupin annars
vegar með 1.600 milljónum króna í
reiðufé og hins vegar með hlutafé í
Dagsbrún að nafnvirði um 267 millj-
ónir króna. Í tilkynningunni segir að
verði gengi Dagsbrúnar hærra en
7,5 í lok árs 2006 verði ekki um frek-
ari greiðslur að ræða. Verði gengi
Dagsbrúnar lægra en 7,5 kemur til
viðbótargreiðslu sem getur þó aldrei
orðið hærri en 400 milljónir króna og
lækkar hlutfallslega frá genginu 6.
Áætluð velta Senu á árinu 2006 er
2.650 til 2.850 milljónir króna.
Dagsbrún kaupir Senu