Morgunblaðið - 07.02.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 17
ERLENT
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
GRUNNNÁM Í BÓKHALDI
Helstu námsgreinar:
Villt þú læra bókhald og tölvubókhald?
108 kennslustunda hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja læra
bókhald frá grunni til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum.
Námið hentar einnig einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur og
þeim sem eru að hefja rekstur og vilja geta fært bókhaldið sjálfir.
Virðisaukaskattur
- reglur, skil og öll meðferð vsk.
Tölvubókhald í Navision
- rauhæf verkefni með fylgiskjölum
Verslunarreikningur
- það helsta sem notað er við skrifstofustörf
Undirstaða bókhalds
- mikið um verklegar æfingar
Morgunnámskeið:
Námið er 108 stundir og kostar 86.450.- stgr. eða með raðgreiðslum.
Kennt mán.-, mið. og fös
kl. 8:30 til 12:30.
Frá 13. feb. til 24. mars.
Kennt á mán.- og mið kl. 18:00 - 22:00
og á laugardögum kl. 13:00 til 17:00.
Frá 13. febrúar til 25. mars.
Kvöldnámskeið:
„Með auknum umsvifum fyrirtækis okkar
fannst mér ég sitja eftir hálf bjargarlaus.
Eftir námið treysti ég mér í öll störf á
skrifstofunni og get tekið að mér fleiri og
stærri verkefni. Nú er ekki spurning um
hvort heldur hvað ég ætla að læra næst ...“
Ragnheiður Einarsdóttir
- Útgerðafyrirtækinu Pétursey
Bangkok. AFP, AP. | Thaksin Shina-
watra, forsætisráðherra Taílands,
bannaði í gær frekari mótmæli á
helsta torgi höfuðborgarinnar Bang-
kok í líkingu við þau sem haldin voru
á laugardag. Stjórnarandstaðan,
með Sondhi Limthongkul í broddi
fylkingar, sagði hins vegar að hún
myndi hunsa bannið og að fólk
myndi safnast saman á sama stað um
næstu helgi í því skyni að krefjast af-
sagnar Thaksins.
Talið er að um fimmtíu þúsund
manns hafi tekið þátt í mótmælunum
sl. laugardag en stjórnarandstæð-
ingar segja þátttökuna til marks um
að Thaksin sé að missa tökin á
stjórnartaumunum.
Segir andstæðing sinn
„gelta að tunglinu“
Thaksin ítrekaði hins vegar í gær
fyrri yfirlýsingar um að afsögn kæmi
ekki til greina.
Thaksin, sem er ríkasti maður
Taílands, hefur sætt harðri gagnrýni
í kjölfar þess að fjölskylda hans seldi
hlut sinn í Shin Corp, símarisanum
sem Thaksin sjálfur stofnaði, til fjár-
festingafyrirtækis frá Singapúr. Sal-
an fór fram 23. janúar og hagnaðist
Thaksin og fjölskylda hans gríðar-
lega á sölunni, en það sem ekki síst
vakti óánægju var sú staðreynd að
fyrirkomulag sölunnar þýddi að
Thaksin sleppur við að greiða skatt
af gróðanum, 1,9 milljörðum Banda-
ríkjadala. Þá eru margir ósáttir við
að símafyrirtækið sé nú komið í
hendur útlendinga.
Thaksin hefur hvatt landa sína til
að hunsa tilraunir Sondhis, sem áður
var stuðningsmaður forsætisráð-
herrans, til að æsa til ófriðar. „Hald-
ið ykkur heima. Ekki fara út á göt-
urnar og ganga til liðs við hann. Ekki
hlusta á þennan hrikalega lygara,“
sagði Thaksin á föstudag. „Leyfið
þessum brjálæðingi að gelta einum
að tunglinu.“
Thaksin bannar
frekari mótmæli
Vaxandi óánægja með taílenska leið-
togann vegna sölu á símafyrirtæki
Safaga. AP. | Hundruð ættingja fólks
sem drukknaði með ferjunni sem
sökk í Rauðahafið aðfaranótt föstu-
dags réðust inn á skrifstofur eigenda
ferjunnar í Egyptalandi í gærmorg-
un og helltu þar úr skálum reiði sinn-
ar vegna þess hversu illa þeim hefur
gengið að fá upplýsingar um afdrif
ástvina sinna og um tildrög slyssins.
Talið er að um eitt þúsund manns
hafi drukknað þegar ferjan sökk í
hafið fljótlega eftir að hún lagði úr
höfn í Sádi-Arabíu, en ferjan var á
leið til Egyptalands. Aðeins hafa þó
tæplega tvö hundruð lík fundist enn
þá. Fjögur hundruð var bjargað.
Ættingjar fórnarlambanna eru
óánægðir með hversu seint og illa
hafa fengist upplýsingar um það
hverju fórust og hverjir eru á lífi.
Réðust nokkur hundruð manns til
inngöngu á skrifstofur El Salam
Maritime, fyrirtækisins sem átti
ferjuna sem fórst, í hafnarborginni
Safaga í Egyptalandi í gærmorgun.
Braut fólkið rúður og henti öllu lausu
á skrifstofunni út á götu. Þá voru
ýmsar skemmdir unnar á húsnæðinu
og kveikt í munum, áður en lögregla
kom og skakkaði leikinn. Í Hurgh-
ada blossuðu einnig upp óeirðir eftir
að forráðamenn sjúkrahússins í
borginni birtu myndir af líkum fólks
sem drukknaði. Lögregla kom hins
vegar í veg fyrir að fólkið ylli
skemmdum.
Margt er enn á huldu um ferju-
slysið en svo virðist sem ferjunni hafi
verið siglt áfram þrátt fyrir að elds-
voði væri kominn upp.
Ættingjarnir
krefjast svara
Reuters
Egypti heldur á lofti mynd af ættingja sem er saknað eftir skipskaðann í
Rauðahafi sl. föstudag. Talið er víst að um 1.000 manns hafi farist.
Amiens. AP. | „Nú hef ég andlit rétt
eins og annað fólk,“ sagði Isabelle
Dinoire á fréttamannafundi í Ami-
ens í Frakklandi í gærmorgun en
Dinoire varð fyrir rúmum tveimur
mánuðum fyrst allra til að hljóta
andlitságræðslu að hluta. „Dyr að
framtíðinni hafa opnast,“ sagði
Dinoire ennfremur, en þetta var í
fyrsta sinn sem fréttamönnum
gafst tækifæri á að ræða við hana
og taka af henni ljósmyndir.
Dinoire er tæplega fertug, frá-
skilin, tveggja barna móðir. Hún
átti erfitt með tal á fundinum í gær
og virtist enn eiga erfitt með hreyf-
ingar, m.a. virtist hún eiga erfitt
með að loka munninum almenni-
lega. En hún sagðist á fundinum í
gær vera byrjuð að endurheimta
tilfinningu í andlitið. „Ég get opnað
munninn og borðað. Ég hef tilfinn-
ingu í vörunum, nefinu og munn-
inum,“ sagði hún.
Dinoire rakti fyrir fréttamönnum
í gær söguna af því er Labrador-
hundur hennar réðst á hana í fyrra
og beit af henni hluta andlitsins.
Hún sagðist hafa misst meðvitund
þegar hundurinn beit hana og hún
hefði ekki strax áttað sig á hversu
afskræmd hún var er hún vaknaði.
Það hefði verið henni mikið áfall er
hún leit í spegilinn.
Nef, varir og hluti af hökunni
voru grædd á Dinoire í aðgerðinni
fyrir tveimur mánuðum, sem var sú
fyrsta sinnar tegundar og tók um
fimmtán klukkustundir. Gjafinn
var heiladauður sjúklingur og
þakkaði Dinoire aðstandendum
mannsins fyrir að hafa gefið sér
nýja von. „Ég geri ráð fyrir að geta
á ný lifað eðlilegu lífi,“ sagði hún.
Reuters
„Nú hef ég andlit rétt
eins og annað fólk“
Virginíu. AFP. | Frakkan-
um Zacharias Moussaoui
var í gær vísað út úr rétt-
asal í Alexandríu í Virg-
iníu-ríki í Bandaríkjunum
fáeinum mínútum eftir að
réttarhöld yfir honum
hófust, en fyrir dóminum
liggur að ákveða hvort
Moussaoui hlýtur dauða-
dóm eða vægari dóm fyrir
aðild að hryðjuverkunum 11. sept-
ember 2001.
Val í kviðdóm var nýhaf-
ið í gær þegar Moussaoui
stóð upp og sagði hátt og
snjallt að lögmenn, sem
voru í salnum fyrir hans
hönd, væru ekki talsmenn
hans. „Ég er al-Qaeda
maður, þeir koma ekki
fram fyrir mína hönd.“
Bætti Moussaoui því við
að réttarhöldin væru
skrípaleikur. Vísaði dómari hon-
um þá úr salnum.
Zacarias
Moussaoui
Moussaoui
vísað úr réttarsal