Morgunblaðið - 07.02.2006, Side 18
Nokkur fyrirtæki
úr söluskrá
Erum með óvenjulega góða söluskrá og mörg góð fyrirtæki til
sölu. Eins og flestir vita erum við langelsta fyrirtækjasala
landsins. Hér kemur smá sýnishorn úr söluskrá okkar.
1. Glæsilegt kaffihús í miðbæ Reykjavíkur.
2. Einn glæsilegasti matsölustaður borgarinnar.
3. Stór söluturn, tvær bílalúgur, mikil sala.
4. Sérverslun með kvenfatnað á Laugaveginum.
5. Lítil bílaleiga á besta stað.
6. Flott fataverslun í Kringlunni.
7. Hverfisveitingastaður með grill- og heimilismat.
8. Byggingaverktaki fyrir sumarhús.
9. Ein þekktasta ísbúðin í borginni.
10. Vinsæll tölvuskóli, mikið bókað fyrirfram.
11. Gamalgróin myndbandaleiga.
Þetta er aðeins smá sýnishorn. Allir velkomnir til okkar.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni ekki í síma eða á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
Skagaströnd | Í veðurblíðunni
að undanförnu hefur verið unn-
ið af fullum krafti við smíði nýju
heilsugæslunnar. Það þykja
nokkur tíðindi á Skagaströnd
að hægt sé að steypa plötu 3.
febrúar í algjöru snjóleysi og 4
stiga hita þegar venjan er að
allt sé á kafi í snjó með tölu-
verðu frosti.
Helgi Gunnarsson, verktaki
við byggingu heilsugæslunnar,
fagnar góðri tíð og segir að hún
skipti sköpum fyrir framgang
verksins. Húsið sem á að reisa
á sökklana og plötuna, sem nú
er verið að steypa, er timb-
urhús og er búið að smíða út-
veggina í hlutum. Veggina og
sperrurnar hefur Helgi látið
smíða inni á verkstæði sínu og
verður þeim síðan komið fyrir á
sínum stað þegar óhætt er að
fara að vinna á plötunni.
„Í svona fínu sumarveðri er
hægt að gera hvað sem er og
þess vegna er verkið nú þegar
komið töluvert á undan áætl-
un,“ sagði Helgi Gunnarsson
verktaki við fréttaritara.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Steypuvinna á þorra
Vorveðrið
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114.
Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-
dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi (HSB)
sem flestir kalla Héraðshælið fagnar um
þessar mundir 50 ára afmæli sínu. Þessi
stofnun hefur undangengin 50 ár verið mik-
ilvægur hornsteinn í samfélaginu og bygg-
ing sú sem starfsemina hýsir hefur sett
mikinn svip á Blönduós. Nokkuð er ég viss
um að ef spurt yrði um hvað helst kæmi upp
í hugann þegar ekið væri gegnum Blönduós
myndu margir nefna sjúkrahúsið næst á
eftir eða undan Blönduóslöggunni. Þeir
sem vilja kynna sér sögu þessarar ágætu
stofnunar geta litið inn á vefinn hsb.is.
Þorrinn er í hámarki og líður ekki helgi án
þorrablóta. Þessar skemmtanir eru oftast
átthagatengdar og þeirrar gerðar að þar
koma saman allir aldurshópar og skemmta
sér. Í flestum tilvikum er lögð mikil vinna í
þessar skemmtanir og árið gert upp í spé-
spegli og fá sumir það þvegið en aðrir
óþvegið og því óþvegnara sem það er, því
betra og sá sem fyrir barðinu verður oftast
sáttur við sinn hlut. Ekki skemmir mat-
urinn sem fram er borinn, súrt sælgæti,
pungar og sviðasultan sem Sölufélag A-
Hún. er landsþekkt fyrir.
Ekki er hægt að ganga fram hjá um-
ræðunni um hálendisveg þegar bæjarlíf á
Blönduósi er kannað. Bæjaryfirvöld eru al-
farið á móti þeirri hugmynd og hafa op-
inberað það. En engin hugmynd er svo gal-
in að ekki megi skoða hana þó ekki væri
nema með öðru auganu. Það er öllum hollt
að skoða nýjar hugmyndir og kanna sem nú
er svo vinsælt að segja „ógnanir og tæki-
færi“ Ef Blönduósingar skella skollaeyrum
í þessari umræðu er hætt við að við verðum
ekki hafðir með í ráðum ef ráðist verður í
þessa framkvæmd.
Veðrið sem af er Þorra hefur leikið við
Húnvetninga og jafnast fullkomlega á við
síðastliðna haustmánuði. Þeir sem rölta um
í blíðunni á bökkum Blöndu sér til gleði og
heilsbótar geta alltaf átt von á því að rekast
á rjúpur á vappi eða þá að selir sýni listir
sínar og hika þeir ekki við að synda allt upp
undir Blöndubrú svo sem flestir fái að njóta
nærveru þeirra. Fleiri fugla en rjúpur má
sjá og hefur stokkandafjöldinn á ánni sjald-
an verið eins mikill og í vetur. Blanda,
bakkarnir og ósinn eru eins og sjálskap-
aður húsdýragarður jaft sumar sem vetur.
Úr
bæjarlífinu
BLÖNDUÓS
EFTIR JÓN SIGURÐSSON FRÉTTARITARA
hafa nú aðeins að athvarfi
hálfbráðnaðar víðáttur
vegna hlýinda. Og hvað
er þá annað til ráða, til að
ná smávegis „fjalla- og
Nú er hlýtt í veðriaustanlands. Berþá svo við að þau
jeppatröll sem hafa verið
á snjóþungum fjöllum
torfærufílingi“ en að
þeysa upp í næsta skafl
og ímynda sér að maður
sé komin í heljarinnar
ófærur?
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Jeppatröll á smáfjalli
Þorrablót Fóst-bræðra var haldiðum helgina og er
jafnan mikið í lagt. Birgir
Ísleifur Gunnarsson
mætti í 33. skipti. Stefán
Már Halldórsson orti:
Óvenju mikil er Fóstbræðra
fórn
og flestir því vilja helst gleyma,
að Birgir er horfinn úr
bankastjórn
og blýantinn nagar nú heima.
Fóstbræður buðu
Þresti Ólafssyni, fram-
kvæmdastjóra Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á há-
tíðina. Þá rifjaðist upp að
Fóstbræðrum var ekki
boðið á tónleikana með
Bryn Terfel, stórsöngvar-
anum frá Wales. Stefán
sendi Þresti þessa kveðju:
Við töldum þig vera okkar vin,
og víst er að margur bróðir því
fagnar,
var okkur þó ekki boðið á Bryn
en boðskortin send á Ólaf
Ragnar.
Af Fóstbræðrum
pebl@mb..is
Selfoss | Stjórn Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga hefur samþykkt að skora á
samgönguráðherra og Alþingi að gera
ráð fyrir varanlegum endurbótum á leið-
inni milli Selfoss og Reykjavíkur við end-
urskoðun tólf ára samgönguáætlunar
sem fram fer á þessu ári. Vill stjórnin að
þeim verði lokið á næstu þremur árum.
Jafnframt hefur stjórnin samþykkt að
boða til opins fundar með samgönguráð-
herra um málið 16. febrúar næstkom-
andi.
Fram kemur í ályktun SASS að í ljósi
mikillar aukningar umferðar á síðustu
árum leggi hún áherslu á að byggður
verði fjögurra akreina vegur alla leiðina.
Þá er einnig lögð áhersla á að byggð
verði ný brú á Ölfusá ofan við Selfoss.
„Markmið með þessum framkvæmdum
er að vegtenging við höfuðborgarsvæðið
verði þannig að hún anni þeirri umferð
sem er til staðar og þeirri auknu umferð
sem án efa verður á næstu árum, að um-
ferðaröryggi aukist verulega og að sam-
keppnishæfni Suðurlands við önnur vaxt-
arsvæði í nágrenni höfuðborgarinnar
verði tryggð,“ segir í ályktuninni.
Fjögurra
akreina vegur
alla leið
Vestmannaeyjar | Sofnað hefur verið Fé-
lag óháðra borgara í Vestmannaeyjum.
Það stefnir að því að bjóða fram í kosning-
unum í vor, að því er fram kemur á sud-
urland.is.
Markmið félagsins er að berjast fyrir
betra og öflugra samfélagi í Vestmanna-
eyjum. Einn aðalhvatamaður að stofnun
félagsins er Sigurjón Haraldsson, fyrrum
forstöðumaður Nýsköpunarstofu í Eyjum,
og er hann í stjórn félagsins.
Óháðir hyggjast
bjóða fram
♦♦♦
Skagafjörður | Stjórn Eignasjóðs Sveitar-
félagsins Skagafjarðar hefur samþykkt að
selja húsakynni Steinsstaðaskóla í fyrrum
Lýtingsstaðahreppi fyrir 22 milljónir
króna. Auk skólahússins er selt aðstöðuhús
í landi Laugabóls.
Kaupandi eignanna er ferðaþjónusta
Steinsstaðaskóla, en ferðaþjónustan hafði
haft eignirnar á leigu frá í júlí 2004. Kemur
þetta fram á fréttavefnum skaga-
fjordur.com.
Gengið frá sölu
Steinsstaðaskóla
♦♦♦