Morgunblaðið - 07.02.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 41
DAGBÓK
Neyðarlínan 1-1-2 er 10 ára í ár. Af þvítilefni verður haldin ráðstefna umhlutverk 1-1-2 og þróun neyðarþjón-ustu á Íslandi.
Þórhallur Ólafsson er framkvæmdastjóri Neyð-
arlínunnar: „Ráðstefnan fjallar um hlutverk og
skyldur 1-1-2 við almenning og viðbragðsaðila. Við
ætlum að fara í gegnum það hvernig síðustu 10 ár
hafa verið, hvað hefur breyst, hvar við stöndum í
dag og hvað er framundan,“ segir Þórhallur.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra setur ráð-
stefnuna en að því búnu verður tilkynnt val á
skyndihjálparmanni ársins. „Síðan munu fulltrúar
frá embætti Ríkislögreglustjóra, Landlækni,
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Slysavarna-
félaginu Landsbjörg halda erindi um reynslu
þeirra af 1-1-2 og hvernig þeir sjá stöðu mála í dag
og þróun í framtíðinni,“ segir Þórhallur.
„Auk þess höfum við fengið framkvæmdastjóra
finnsku 1-1-2 neyðarlínunnar, Jyrki Landstedt til
ráðstefnunnar, en Finnar eru taldir einna lengst
komnir í heiminum varðandi þróun samræmds
neyðarnúmers, 1-1-2. Þess má geta að 1-1-2 er það
neyðarnúmer sem notað er í öllum Evrópusam-
bandsríkjunum.“
Ráðstefnan er haldin í tengslum við 1-1-2-
daginn sem er 11. febrúar ár hvert, eða 11/2, og er
sá dagur í flestum Evrópulöndum helgaður kynn-
ingu á þjónustu neyðarnúmersins.
Þórhallur segir reynsluna af 1-1-2 hafa verið
góða á þeim tíu árum sem liðin eru frá því þjón-
ustan var tekin í gagnið: „Á þessum árum hefur
orðið gríðarleg þróun í neyðarþjónustu á landinu
og hún hefur orðið til þess að stytta viðbragðs-
tíma, og þar með auka líkur á því að mannslífum
sé bjargað. Í dag berast um 300 þús. símtöl Neyð-
arlínunni á ári, og þar af eru 126 þús. atvik sem
skráð eru í málaskrá.“
Í skoðanakönnun sem gerð var hjá almenningi
um ánægju með störf neyðarlínunnar svöruðu
96% að þeir væru ánægðir eða mjög ánægðir en
0,5% voru óánægðir. „Almenningur hefur aug-
ljóslega kunnað að meta þessa þjónustu, og verð-
um við vör við það. Störf Neyðarlínunnar eru þó
erfið og reyna á starfsfólk okkar, en við höfum
verið afskaplega heppin með starfsmenn og bygg-
ist árangur neyðarlínunnar að miklu leyti á því
góða fólki sem þar starfar,“ segir Þórhallur.
Ráðstefnan „1-1-2 í tíu ár – hvað hefur breyst;
hvað er framundan?“ er sem fyrr segir haldin 10.
febrúar, á Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 13. Ráð-
stefnan er öllum opin en þátttakendur eru beðnir
að skrá sig í síma 570 2000 eða með tölvupósti á
112@112.is.
Ráðstefna | Fjallað um stöðu og þróun Neyðarlínunnar 1-1-2
Hlutverk og framtíð 1-1-2
Þórhallur Ólafsson er
fæddur í Reykjavík
1952. Hann lauk námi í
tæknifræði frá Köben-
havns Teknikum 1979
og stundaði nám við
University of Colorado í
Boulder 1986. Þórhall-
ur var umdæmistækni-
fræðingur á Austur-
landi og síðar
Suðurlandi frá 1980 til
1995, aðstoðarmaður dóms- og kirkju-
málaráðherra 1995–1999 en var þá ráðinn
framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar.
Þórhallur hefur sinnt ýmsum félags- og nefnd-
arstörfum, m.a. formaður Umferðarráðs 1991–
2001. Þórhallur er kvæntur Gróu Dagmar
Gunnarsdóttur og eiga þau tvo syni.
Þakkir til Klöru á Kanarí
VIÐ hjónin vorum stödd á Kan-
aríeyjum milli 21. des. og 18. jan.
og er það ekki í frásögur færandi
eitt og sér.
En málið er að ég þarf súrefni
allan sólarhringinn og kemst
ekki lönd né strönd án súrefnis.
Að komast í svona loftslag, í
þennan hita og þetta mjúka loft,
er ómetanlegt fyrir sálartetrið
og jákvætt hugarfar. Maður fær
ekki gigt í sálina þegar maður
dvelur á svona stað.
En þarna á eyjunni er kona
sem heitir Klara Baldursdóttir
og er kennd við Klörubar eða
Cosmos. Er hún tengiliður fyrir
Borgarsjúkrahúsið í Reykjavík.
Án hennar aðstoðar og hennar
hjálpsemi hefði þessi ferð ekki
verið farin. „Manjana“ heyrir
maður oft á Spáni en það er ekki til í
hennar orðabók. Hún afgreiðir hlut-
ina núna. Við erum Klöru þakklát.
Gunnar Guðnason,
Erla Jósepsdóttir,
Vesturgötu 2, Keflavík.
Glæpatíðni vex á Karíbahafi
SÚ var tíðin að Karíbahafið var róm-
að og viðmót fólks víðast hvar eft-
irminnilegt. Sennilega er það þannig
enn, á flestum stöðum.
Það fylgdu þó alltaf einhverjar
viðvaranir til fólks sem kom sem far-
þegar á farþegaskipum, eða dvaldi
um hríð. Venjulega vissi fólk hvernig
var í Kingston á Jamaica, sömuleiðis
í Port au Prince á Haítí og fáeinum
öðrum stöðum.
Nú ber svo við að glæpatíðni hefur
aukist undanfarin ár og er svo komið
að Trínidad og Tóbagó trónir þar
efst á lista og hefur slegið Jamaica
við hvað það snertir. Fréttir hafa
borist af voðaverkum í Trínidad þar
sem 36 líflát skráðust á 28 dögum og
er talið að her og lögregla hafi þar
átt stóran þátt.
Ég hef verið í áraraðir á Kar-
íbahafi við vinnu og sem ferðamaður
og leyfi mér að róma flesta þá staði
sem ég hef haft viðkomu á eða dvalið
á misjafnlega lengi. Fátækt er víða
ríkjandi, misjafnlega mikil, almennt
var kaup innfæddra um 1 dollari á
dag fyrir 8 tíma vinnu, hefur þó
lagast eitthvað, en atvinnuleysi er
mikið.
Að mæla með einhverjum sér-
stökum stað á Karíbahafi er ansi erf-
itt. Þeir sem yrðu fyrir valinu hjá
mér væru Antigua, St. Lucia, Dom.
Republic, Beguia og Guadeloupe og
fleiri mætti nefna.
Svanur Jóhannsson.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0–0 b5 6. Bb3 Bb7 7. d3 Bc5 8.
Rc3 d6 9. a4 Ra5 10. Ba2 b4 11. Re2
Bc8 12. c3 bxc3 13. bxc3 Bb6 14. Rg3
Be6 15. d4 Bxa2 16. Hxa2 0–0 17.
Bg5 exd4 18. Rh5 dxc3
Staðan kom upp í B-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Undrabarnið norska, hinn 15 ára
Magnus Carlsen (2.625) hafði hvítt
gegn hinum margreynda ofurst-
órmeistara Alexander Beljavsky
(2.626). 19. Rh4! Kh8 20. Rf5! og
svartur kaus að leggja niður vopnin
þar sem eftir t.d. 20. … Hg8 21.
Rfxg7 er staða hans gjörtöpuð.
Magnus mun tefla á Reykjavík-
urskákmótinu sem hefst 6. mars
næstkomandi og verður spennandi
að sjá hvernig honum muni vegna á
því sterka móti.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Alslemma grátin.
Norður
♠753
♥108 A/Allir
♦ÁD532
♣D108
Suður
♠Á104
♥ÁKDG93
♦K1086
♣–
Sjö tíglar er glæsilegur samn-
ingur, en suður lét hjartað ráða
för og niðurstaðan varð sex
hjörtu:
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 spaði Dobl
Pass 2 tíglar 2 spaðar 4 hjörtu
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspilið er spaðatvistur.
Það er alltaf hætta á því að tapa
einbeitingunni við slíkar aðstæður,
því sagnhafi sér um leið og blindur
birtist að sjö tíglar eru nánast á
borðinu. En þó að það sé sárt að
missa alslemmu er enn verra að
fara niður á hálfslemmu.
Hér er raunveruleg hætta á
ferðum, því tígullinn stíflast í 3-1
legunni (nema gosinn sé blankur).
Reyndur sagnhafi bíður með að
syrgja alslemmuna og einbeitir sér
að því að hreinsa tígulstífluna.
Norður
♠753
♥108
♦ÁD532
♣D108
Vestur Austur
♠2 ♠KDG986
♥652 ♥74
♦G74 ♦9
♣G96543 ♣ÁK72
Suður
♠Á104
♥ÁKDG93
♦K1086
♣ –
Sagnhafi tekur á spaðaás, fer
inn í borð á hjartaáttu og spilar
laufáttu úr borði. Væntanlega
hoppar austur upp með kónginn,
sem suður trompar. Hann fer inn í
borð á hjartatíu og spilar nú lauf-
tíu. Austur setur lítið og suður
hendir nú tígli heima. Þá er stíflan
hreinsuð og síðar má henda tveim-
ur spöðum niður í tígul.
Þetta er hættulítið því sagnir og
útspil vesturs sanna að spaðinn er
6-1.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
ÞAÐ er ljúft að falla í freistni sem pí-
anóunnandi og fara að hlýða á Helgu
Bryndísi leika á tónleikum og freist-
ingin enn stærri þegar jafnmikið pí-
anóstykki er í boði og Fantasían
op.17 eftir Schumann. Að venju var
innifalinn málsverður lagaður af Ein-
ari veitingamanni á Karólínu og hann
ásamt Tónlistarfélaginu á Akureyri
voru enn að sýna og sanna að þetta
tónleikaform hentar ýmsum vel.
Fyrir alla sem hrífast af róm-
antískri píanótónlist þá er þessi Fant-
asía Schumanns eftirsóknarverð. Það
er varla hægt að nefna verk sem er
dæmigerðara fyrir hið rómantíska
flæði tilfinninga og þá miklu viðleitni
rómantísku tónskáldanna að orðgera
tónana, „ljóð án orða“, og í verki
Schumanns eru heimildir sem bein-
línis staðfesta það.
Tónskáldið ætlaði upphaflega að
semja píanósónötu, en fantasían sem
úr því varð var samin undir áhrifum
ljóðsins Runnarnir eftir þýska ljóð-
skáldið Friedrich von Schlegel.
Ljóðið var birt í efnisskránni í þýð-
ingu Reynis Axelssonar og býr
áheyrendur mjög vel undir að sökkva
sér dýpra í verkið.
Í lokaerindinu segir: „… í litríkum
draumi jarðarinnar hljómar einn lág-
vær tónn fyrir þann sem hlustar eins-
lega“.
Þar sem verkið er tileinkað ástinni
hans stærstu, henni sem var á þeim
tíma í fremstu röð píanóleikara í
Þýskalandi, þá er freistandi að vitna í
bréf sem Schumann skrifaði 1836
þjáður af óbærilegum en tímabundn-
um aðskilnaði. Þar segir m.a. „Ert þú
ekki leynilegi tónninn sem hljómar í
gegnum verkið? Ég held að svo sé.“
Einnig er í fyrsta þætti vitnað í
söngvasveig Beethovens „An die
ferne Geliebte“ (Til hinnar heittelsk-
uðu í fjarskanum). Það er næsta víst
að án tilfinningalegrar nálgunar við
Fantasíuna er ekki hægt að birta
áheyrandanum þann „litríka draum“
sem í verkið er grafinn, svo ekki sé
minnst á að framsögn verksins gerir
ofurkröfur til tækni í píanóleik og út-
heimtir mikið næmi og breidd í tján-
ingu og túlkun.
Helgu Bryndísi tókst mjög vel að
birta áheyrendum litríkan draum í
heillandi vöku. Andstæðurnar sem
verkið samanstendur af málaði hún
sterkum litum.
Í öðrum kafla er geyst áfram og
skaphitinn þar gríðarlegur, en ljúfsár
stefin aldrei fjarri.
Notkun pedals er endalaust um-
ræðuefni og í hinum ríka hljómburði
fannst mér pedalinn fullmikið not-
aður.
Í síðasta þættinum þá er það hið
ljúfa sönglag sem aftur og aftur ber
manni boðin um fegurðina.
„Hinn leyndi tónn“ og tónninn
hennar Klöru var þráðurinn í flutn-
ingi Helgu Bryndísar frá byrjun til
loka og hélt verkinu saman sem sann-
færandi heild.
Í litríkum draumi
TÓNLIST
Ketilhúsið
Helga Bryndís Magnúsdóttir lék
Fantasíu í C op.17 eftir Robert Schu-
mann. Föstudag, 3. febrúar, kl. 12.15.
Einleikstónleikar
Morgunblaðið/Golli
Helga Bryndís Magnúsdóttir
Jón Hlöðver Áskelsson
Í RABINAL í Gvate-
mala hefur nú tekist
að endurvekja forn-
an helgileik Mæja-
indíána, en leik-
urinn var nánast
glataður eftir 36
ára borgarastríð í
landinu. Leikritið,
sem kallast Achi, er
talið vera frá því um 1400 og segir
frá átökum tveggja konungsvelda í
sögu Mæjanna. Sameinuðu þjóð-
irnar hafa útnefnt Achi meist-
araverk, og telja mannfræðingar
að helgileikurinn hafi verið sýndur
óslitið, kynslóð af kynslóð allt frá
15. öld. Þar með er Achi elsta
þekkta leikverk Ameríku. Grím-
urnar eru höfuðatriði í leiknum.
Grímur í
gömlum leik
Reuters
BRÖNDUKVÍSL - HÚS Á EINNI HÆÐ
Mjög fallegt einlyft einbýlishús í Kvísl-
unum í Árbænum með stórri og
gróinni lóð. Eignin skiptist í forstofu,
snyrtingu, hol, stofu, betri stofu, eld-
hús, geymslu, baðherbergi og fjögur
herbergi. Milliloft hjá holinu. Garð-
urinn er með hellulagðri verönd,
heitum potti og sturtuaðstöðu. Garð-
urinn er afgirtur með hárri girðingu.
V. 48,0 m. 5538
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali