Morgunblaðið - 07.02.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 43
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Spænska kl. 10–11.30,
postulínsmálun kl. 13, hjá Sheenu
lestrarhópur kl. 13.30, vinnustofa frá
kl. 9–16.30. Farið verður í versl-
unarferð í Hagkaup, Skeifunni, miðv. 8.
febrúar kl. 10 frá Grandavegi og Afla-
granda.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handavinna
kl. 9-16.30. Smíði/útskurður kl. 9-
16.30. Leikfimi kl. 9. Boccia kl. 9.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
sund, vefnaður, línudans, boccia, fóta-
aðgerð.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópur kl. 10–
11. Mæting fyrir framan Bessann og
kaffisopi þar eftir göngu. Allir eldri
borgarar velkomnir í hópinn, bara
mæta. Nánari upplýsingar gefur Guð-
rún í síma 565 1831.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Skráning fer nú fram vegna
sæludaga á Hótel Örk vikuna 26.–31.
mars nk. Listar eru á upplýs-
ingatöflum félagsmiðstöðvanna Gjá-
bakka og Gullsmára. Hægt er að skrá
sig á skrifstofu FEBK í Gullsmára 9 á
skrifstofutíma. Takmarkaður fjöldi
gistinga í boði. Fyrstur kemur – fyrstur
fær. Ferðanefndin.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
í dag kl. 13. Framsagnarnámskeið hefst
í dag kl. 16.30. Leiðbeinandi Bjarni
Ingvarsson. Félagsvist kl. 20. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar ganga frá
Stangarhyl 4, kl. 10.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf sem öllum hentar í Ármúlaskóla
kl. 16.20–18.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.05 og
kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl. 10 handavinna, kl.
10.50 rólegar æfingar, kl. 13 tréskurð-
ur, kl. 13.30 Alkort, kl. 14 ganga.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínsmálun kl. 9. Jóga kl. 10, laus
pláss. Leikfimi kl. 12.15, laus pláss. Rit-
höfundurinn Sjón (Sigurjón B. Sigurðs-
son), sem hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlanda 2005, verður gestahöf-
undur Leshóps FEBK í Gullsmára
þriðjudaginn 7. febrúar milli kl. 20 og
21.30. Allir eldri borgarar velkomnir.
Aðgangur ókeypis. Leshópurinn.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi 9.45 og karlaleikfimi kl.
13.15 í Mýri. Línudans kl. 13 og trésmíði
kl. 13.30 í Kirkjuhvoli. Opið hús í Safn-
aðarheimilinu á vegum kirkjunnar kl.
13 og kóræfing Garðakórsins kl. 17.
Lokað í Garðabergi e.h. á þriðjudögum.
Opið hús í safnaðarheimilinu á vegum
kirkjunnar kl. 13. Leshringur bóka-
safnsins kl. 10.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 9.45 er lagt af
stað í heimsókn á Þjóðminjasafnið
með leikskólabörnum frá Hraunborg.
Kl. 10 létt ganga um nágrennið. Kl. 13
postulínsnámskeið, umsjón Sigurbjörg
Sigurjónsdóttir. Allar uppl. á staðnum.
Strætó S4 og 12 stansa við Gerðu-
berg. wwwgerduberg.is
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
aðstoð við böðun, bókband. Kl. 13 spil-
að og kl. 15 kaffiveitingar.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, glerskurður, 9 kaffi, spjall, dag-
blöðin, hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11
leikfimi. Kl. 11 spurt og spjallað. Kl. 12
hádegismatur. Kl. 12.15 ferð í Bónus.
Kl. 13 myndlist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Myndment kl. 10. Leikfimi kl. 11.30.
Myndment kl. 13. Brids kl. 13. Gler-
skurður kl. 13.
Hvassaleiti 56–58 | Bútasaumur kl.
9–13. Boccia kl. 9.30–10.30. Banka-
þjónusta kl. 9.45. Helgistund kl. 13.30.
Námskeið í myndlist kl. 13.30–16.30.
Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir
588 2320. Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Alltaf eitthvað um að vera;
tölvuhópur, skáldahópur, framsagn-
arhópur, myndlistarhópur, sönghópur,
tréútskurður, postulín, handverk, gler-
skurður, gönguhópur o.s.frv. Jón Yngvi
Jóhannsson bókmenntafræðingur er
gestur í bókmenntahóp miðvikudags-
kvöld kl. 20. Sími 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Gaman saman
á Korpúlfsstöðum á morgun miðviku-
dag kl. 13.30.
Kvenfélag Garðabæjar | Aðalfundur
Kvenfélags Garðabæjar verður hald-
inn á Garðaholti í kvöld kl. 20. Gestur
fundarins verður Árelía Eydís Guð-
mundsdóttir lektor.
Kvenfélagið Hringurinn | Aðalfundur
Kvenfélagsins Hringsins verður 9. feb.
kl. 20 í Hringshúsinu, Suðurgötu,
Hafnarfirði.
Kvenfélag Kópavogs | Kvöldverður og
félagsfundur miðvikudaginn 15. febr-
úar í sal félagsins, Hamraborg 10, 2.
hæð, kl. 20. Verð 1.000 kr. Þátttaka til-
kynnist í síma 554 3299 (Svana) og
554 4382 (Helga).
Laugardalshópurinn Blik,
Laugardalshöll | Leikfimi fyrir eldri
borgara í Laugardalshöll kl. 11.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10.30
upplestur, kl. 13–16.30 opin vinnustofa,
kl. 9 opin fótaaðgerðastofan, sími
568 3838.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9,
perlusaumur kl. 9, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10, handmennt al-
menn kl. 13, félagsvist kl. 14. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 2).
Árbæjarkirkja | Foreldramorgnar
kl.10–12 í safnaðarheimili kirkjunnar.
Fræðsla, spjall og veitingar.
Áskirkja | Opið hús kl. 10–14. Kaffi og
spjall. Hádegisbæn kl. 12. Boðið upp á
hádegisverð.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta
kl. 18.30. Alfa-námskeið kl. 19.
Bústaðakirkja | TTT-fundirnir eru á
þriðjudögum kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Sjáumst hress. Sjá: www.kirkja.is
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Kl
12 léttur málsverður, helgistund í
umsjá sr. Sigfúsar Kristjánssonar, kaffi.
10–12 ára starf KFUM&K kl. 17–18.15.
Húsið opnað kl. 16.30. www.digra-
neskirkja.is
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstundir
kl. 12. Orgelleikur, íhugun og bæn. Eftir
stundina er hægt að kaupa súpu og
brauð á vægu verði. Allir velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju kl. 13 til 16. Við púttum,
spilum lomber, vist og bridge. Röbbum
saman og njótum samfélags við hvert
annað. Kaffi og meðlæti kl. 14.30.
Helgistund í kirkjunni kl. 16. Akstur fyr-
ir þá sem vilja, upplýsingar í síma
895 0169.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. TTT fyrir börn 10–12 ára á
þriðjudögum í Engjaskóla, kl. 17.30–
18.30 Æskulýðsfélag fyrir unglinga í
8.–10. bekk á þriðjudögum kl. 20 í
Grafarvogskirkju.
Hafnarfjarðarkirkja | TTT-starf fyrir
krakka á aldrinum 10–12 ára er alla
þriðjudaga í Hafnarfjarðarkirkju milli
klukkan 17 og 18.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Starf með eldri borgurum alla þriðju-
daga og föstudaga kl. 11–14. Leikfimi,
súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Á morgun kl. 11 fyrirbænastund í kirkj-
unni. Súpa kl. 12. Brids kl. 13. Kaffi kl.
15. Allir velkomnir.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur
presta kl. 9.15–10.30 í umsjá sr. Sig-
urjóns Árna Eyjólfssonar héraðs-
prests. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
Holtavegi þriðjudaginn 7. feb. kl. 20.
Sr. Íris Kristjánsdóttir fjallar um Sam-
úelsbók. Kaffi. Allar konur eru vel-
komnar.
KFUM og KFUK | Hátíðarfundur í AD
KFUM Holtavegi 28 fimmtudag 9. feb.
kl. 19 í umsjá stjórnar KFUM og KFUK.
Nýir félagar boðnir velkomnir. Fund-
urinn hefst með kvöldverði, verð
2.900 kr. Skráning á skrifstofu KFUM
og KFUK til 8. feb. sími 588 8899.
Allir karlmenn eru velkomnir
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58–60, miðvikudaginn 8. feb. kl. 20.
„Nærri lá að fætur mínir hrösuðu“.
Ræðumaður er Guðlaugur Gunn-
arsson. Nokkur orð: Baldvin Stein-
dórsson. Kaffi eftir samkomuna.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
| Aðalfundur Kvenfélags Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði verður haldinn þriðjudag-
inn 7. febrúar nk. kl. 20.30 í safn-
aðarheimilinu.
Laugarneskirkja | Kl. 20 Kvöldsöngur.
Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn
við undirleik Gunnars Gunnarssonar.
Sóknarprestur flytur Guðsorð og bæn.
Kl. 20.30 er allra síðasti kynning-
arfundur á 12 spora starfi safnaðarins
áður en hópar verða formlega stofn-
aðir. Allt áhugasamt fólk velkomið.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bágstöddum.
Einnig tekið við bænarefnum. Kaffi-
sopi að lokinni athöfninni.
Fundirnir eru ætlaðir fólki sem vill koma
saman og ræða tilfinningar og líðan.
Nánari upplýsingar veitir Ólafía í síma
568 9399.
ReykjavíkurAkademían | Myndlistaskól-
inn í Reykjavík og ReykjavíkurAkademí-
an halda fyrirlestur 8. feb. kl. 12.15, á
Hringbraut 121, 4. hæð. Margrét Sigrún
Sigurðardóttir heldur erindi er nefnist:
Samþætting hagrænna og listrænna
markmiða í skapandi atvinnugreinum.
Safnaðarheimili Breiðholts | Aðalfundur
Kvenfélags Breiðholts verður 14. febrúar
kl. 20. Matur og aðalfundarstörf.
Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju |
Kvenfélagið Fjallkonurnar fundar kl. 20.
Handavinna og spjall.
Seðlabanki Íslands | Málstofa verður kl.
15, í fundarsal Seðlabankans. Málshefj-
andi er Ásdís Kristinsdóttir og ber erindi
hennar heitið: Samspil gæðaþátta og
fasteignaverðs.
Seljakirkja | Kvenfélag Seljasóknar held-
ur aðalfund kl. 19.30. Gestur fundarins,
Halldóra Arnórsdóttir, kynnir silki-
bandasaum.
Þjóðminjasafn Íslands | Jón Karl Helga-
son heldur erindi í fundaröð Sagnfræð-
ingafélags Íslands, kl. 12.10–13. Erindið
nefnist: Útrás/innrás. Myndmál í við-
skiptafréttum. Jón Karl mun greina goð-
söguna um umsvif íslenskra fyrirtækja
erlendis í ljósi hugmynda franska fræði-
mannsins Roland Barthes.
Fréttir og tilkynningar
Fólkvangur, Kjalarnesi | Opinn fundur kl.
20. Efni fundarins verður lagning Sunda-
brautar og umferðaröryggi á Vest-
urlandsvegi að Hvalfjarðargöngum. Er-
indi flytja Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
ÍSLENSKA óperan og MasterCard
ætla að sameinast um að bjóða
Regnbogabörnum á sýningu á
Öskubusku í óperunni. MasterCard
hefur verið aðalkostunaraðili há-
degistónleika Íslensku óperunnar
undanfarin ár og var samningur
um áframhaldandi samstarf vegna
þessa undirritaður í desember sl.
Óperan og MasterCard hafa
ákveðið að fara í frekara samstarf
í tengslum við sýningar Íslensku
óperunnar á óperunni Öskubusku
eftir Rossini sem var frumsýnd 5.
febrúar. Bjarni Daníelsson óp-
erustjóri, Ragnar Önundarson,
framkvæmdastjóri MasterCard, og
Ragnheiður Arngrímsdóttir,
stjórnarmaður hjá Regnbogabörn-
um, hafa undirritað samstarfs-
samning sem felur í sér að hópi af
börnum frá samtökunum Regn-
bogabörnum verður boðið á sýn-
ingu á óperunni Öskubusku í mars.
Regnbogabörn eru fjöldasamtök
áhugafólks um eineltismál. Mark-
mið samtakanna er meðal annars
að gera börnum kleift að lifa án
félagslegs áreitis og ofbeldis frá
jafningjum sínum. Söguþráður óp-
erunnar Öskubusku er byggður á
ævintýrinu velþekkta með sama
nafni, sem í reynd snýst um ein-
elti.
Bjarni Daníelsson óperustjóri
segir að boðskapur sögunnar eigi
svo sannarlega við á okkar tímum.
„Það er eins í Öskubusku og svo
mörgum öðrum góðum ævintýrum
að boðskapurinn er sígildur og
skýr: Dramb og illgirni skapar
óhamingju og verður að lokum
gerandanum að falli, en góð-
mennska og hreint hjartalag getur
fært manni ást og hamingju. Boð-
skapurinn í Öskubusku á vissulega
samleið með boðskap Regnboga-
barna sem vilja stemma stigu við
einelti og ofbeldi gegn börnum á
heimilum, í skólum og í samfélag-
inu öllu.“
Samstarf um að bjóða Regn-
bogabörnum á Öskubusku
Morgunblaðið/Kristinn
Bjarni Daníelsson, Ragnheiður Arngrímsdóttir og Ragnar Önundarson við undirritun samningsins.
ÞAÐ er hátíð í bæ, þar sem
söngvasveigur Schuberts, Vetr-
arferðin, er fluttur á vandaðan og
áhrifamikinn hátt.
Það er hátíð í lífi hvers ljóða-
söngvara að hafa flutt þennan 24
söngva ljóðaflokk á tónleikum.
Það er hátíð fyrir hann að hafa
fengið að taka með sér hrifinn hóp
áheyrenda í þrautagönguna sem
ljóðin fjalla um og fá þá til að
upplifa gleðina í þrautinni, og
snilld Schuberts í að láta „orðin
syngja og tónana tala“
(Grillparzer).
Það var hátíð í mínum sál-
arranni er ég hreifst með göngu-
fólki á Vetrar-ferðinni í „leiðsöng“
Michaels Jóns og snjöllum „leið-
arleik“ Richards Simms.
Helga Kvam gerði gönguna
áhrifameiri með ljósmyndum sem
hún hafði tekið, tengdum Vetr-
arferðinni, og varpaði upp á tjald
samhliða flutningnum.
Strax í fyrstu orðunum „Fremd
bin ich eingezogen …“ heyrði
maður að þarna féll björt bari-
tónrödd Michaels einkar vel að
efninu og að þýski textinn komst
ágætlega til skila, þó fannst mér
styrkleikabreytingar mættu vera
meiri í fyrsta ljóðinu og ennþá
harðari framburður á „knurren“,
sem þýðir urr.
En frá og með þriðja ljóði,
„Gefror’ne Tränen“, var ég mjög
sáttur og þótti ljóðin Wasserflut
nr. 6, Auf den Fluß nr. 7, Rück-
blick nr. 8, Frühlingstraum nr. 11,
Letzte Hoffnung nr. 16, Das Wirt-
haus nr. 21 og svo lokalögin Die
Nebensonne og Der Leiermann
glæsilega flutt.
Vetrarferðin, þessi þjáning-
arganga ungs manns á vit dauð-
ans, er á einhvern hátt ægifögur.
Við upplifum umkomuleysið og
þegar þriðja sólin sést sem tákn
dauðans í næstsíðasta ljóði verður
hinn makalausi söngur um líru-
kassaöldunginn, sem elíft snýr
sveif hljóðfærisins með stirðn-
uðum fingrum, fullkominn endir.
Einhvern veginn er hver söng-
ur, hvert ljóð á sínum stað til að
magna þessi heildaráhrif. Auk
þess vega stöðugt salt treginn og
gleðin, sbr. ljóðið Hvíld, með dúr-
og moll-skiptum og tvöfalt boð í
póstinum, sem er gleðiefni, en
breytist í trega af því hann flytur
þér ekki bréfið.
Krákan er hressilegur fugl en
verður það ekki þegar hún bíður
eftir að kroppa í þig dáinn!
Schubert á að hafa sagt vantrúa
vinum sínum að Vetrarferðin inni-
héldi sína bestu söngva.
Ég tel að margir séu honum
sammála í dag og jafnvel svo að
vart verði saminn fullkomnari
ljóðasöngur en „Der Leiermann“.
Í þessu sambandi má ekki
gleymast að söngvararnir eru
tveir og svo sannarlega lét Rich-
ard Simm tóna sína á píanóið tala
og í samstarfi við Michael sungu
orðin mjög fallega.
Sérstakt ánægjuefni er að sjá
hve góð aðsókn er á tónleika í
Tónlistarhúsinu Laugarborg og
hve vel hefur tekist til með val
tónleika á vetrinum og gott að vita
til þess að framhald verði þar á.
Orðin
syngja
og tónar
tala
Jón Hlöðver Áskelsson
TÓNLIST
Laugarborg
Michael Jón Clarke barítón og Richard
Simm píanóleikari fluttu Vetrarferðina,
lög eftir Franz Schubert (1797–1828)
við samnefndan ljóðaflokk Wilhelms
Müllers. Höfundur ljósmynda á tjaldi var
Helga Kvam.
Sunnuudag 5. febrúar kl. 15.
Ljóðatónleikar