Morgunblaðið - 07.02.2006, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VINSÆLA hádegistónleikaröðin í
Hafnarborg hefur lengst af sérblínt á
hina ekki síður vinsælu grein ein-
söngslags með píanó, með þýzku
óperettuna sem aðalaukabúgrein.
Hvað sú grein
getur verið fjörug
hefur kannski far-
ið fram hjá sum-
um, en hér stað-
festist það svo
ekki varð um
villzt í seinni laga-
þrennu af tveim-
ur, þegar tvær
blóðheitar lista-
konur frá sjálfu
kjarnasvæði óperettunnar áttu í hlut.
Fyrri þrennan var öll eftir stór-
afmælisbarn ársins. Ljóðsönginn
Der Zauberer (Ihr Mädchen, flieht,
K472) samdi Mozart í maí 1786, sama
mánuð og Brúðkaup Fígarós var
frumsýnt í Burgtheater, og fylgdu
passlega í kjölfarið tvær aríur þaðan,
Voi che sapete fyrir buxnahlutverk
Cherúbínós og Deh vieni non tardar
fyrir súbrettu Súsönnu.
E.t.v. var það sumpart fyrir litla
upphitun, sumpart fyrir enn ekki
fullmótaða óperurödd (maður þorir
varla að nefna til viðbótar spengileg-
an vöxt) – en miðað við eldfjöruga
frammistöðuna í óperettuaríunum á
eftir var alltjent eins og söngkonan
unga hefði ekki alveg þá raddfyllingu
til að bera sem þyrfti í Mozart, þó að
andstutt ákefðin hæfði prýðisvel
fyrstu ástargrillum unglingsins
Cherúbínós í garð greifynjunnar.
Úthald og kraftur jukust þó til
muna í seinni hlutanum þar sem hin
austurríska Katharina Th. Guð-
mundsson var greinilega í essinu
sínu. Madjörsk munúð ólgaði ómæld
í Meine Lippen küssen so heiß eftir
Franz [Ferenc] Lehár, og ekki flugu
ástríðuminni púsztrar um loft í sí-
gaunadillu Roberts Stolz, Spiel auf
deiner Geige. Hvað þá úr þrætuþorpi
hinnar (með kynningarorðum Anton-
íu) „frekar lauslátu“ daðurdrósar í
Messze a nagy erdö (Hör ich Cym-
bal[cimbalom?]klänge) eftir Lehár,
er sungið var á óaðfinnanlegri ung-
versku.
Þessi eldheitu lög frá balkönsku
sléttunni gáfu glimrandi tækifæri til
að tjalda dreyraystandi toppnótum,
og náði hæst í síðasta laginu á smell-
andi háu d’’’ eða því sem næst. Spillti
fráleitt fyrir glaðkímið fas söngkon-
unnar og tápmeiri sviðsútgeislun en
lengi hefur sézt hér síðan Manúela
Wiesler skartaði sinni flottustu
flautufimi.
Heitar undirtektir áheyrenda köll-
uðu auðvitað á aukalag – Mein Herr
Marquis (Hláturvalsinn) úr Leð-
urblöku Joh. Strauss yngri, er borið
var fram með viðeigandi ertniglans-
andi glensi. Antonía Hevesí var
sömuleiðis í fínu formi við slaghörp-
una, og tendraði samstillt framlag
þeirra stallna hlustendum kær-
komna upplífgun úr grámósku mið-
vetrar.
Tælandi söngleikssúbretta
TÓNLIST
Hafnarborg
Söngverk eftir Mozart, Lehár og Stolz.
Katharina Th. Guðmundsson sópran, Ant-
onía Hevesi píanó. Fimmtudaginn 2. febr-
úar kl. 12.
Hádegistónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Katharina Th.
Guðmundsson
Stóra svið
SALKA VALKA
Fi 16/2 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING!.
WOYZECK
AUKASÝNINGAR
Lau 11/2 kl. 20 Su 12/2 kl. 20
Fö 17/2 kl. 20 Lau 18/2 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
SÍÐUSTU AUKASÝNINGAR UM PÁSKANA!
CARMEN
Fö 10/2 kl. 20S Su 19/2 kl. 20
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Fö 3/3 kl. 20
Lau 11/3 kl. 20 Su 12/3 kl. 20
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 11/2 kl. 14 FORSÝNING UPPSELT
Su 12/2 kl. 14 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 18/2 kl. 14 Su 19/2 kl. 14
Lau 26/2 kl. 14 Lau 4/3 kl. 14
Su 5/3 kl. 14 Lau 11/3 kl. 14
Nýja svið / Litla svið
MANNTAFL
Mi 22/2 kl. 20 AUKASÝNING
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 16/2 kl. 20 UPPS. Fö 17/2 kl. 20 UPPS.
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Su 26/2 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Fi 9/2 kl. 20 UPPS. Fö 10/2 kl. 20 UPPS.
Lau 11/2 kl. 20 UPPS. Lau 18/2 kl. 20
Su 19/2 kl. 20 Fi 23/2 kl. 20
Fö 24/2 kl. 20 Lau 4/3 kl. 40
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Su 12/2 kl. 20 Mi 1/3 kl. 20
NAGLINN
Lau 11/2 kl. 20 UPPS. Su 12/2 kl. 20
Su 19/2 kl. 20 UPPS. Lau 25/2 kl. 20
HUNGUR
FORSÝNINGAR, MIÐAV. 1.200- Kr.
Þr 14/2 kl. 20 Mi 15/2 kl. 20
Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 20
Lau 18/2 FRUMSÝNING UPPSELT
Sýnt á NASA við Austurvöll
Fimmtudagur 9. febrúar Örfá sæti laus
Föstudagur 10. febrúar Sjallinn Akureyri
Föstudagur 17. febrúar Sæti laus
Föstudagur 24. febrúar Sæti laus
Laugardagur 25. febrúar Sæti laus
Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30
Miðasala í verslunum Skífunnar,
www.midi.is og í síma: 575 1550
! "
# $ #
%
& # $ # ' $ #
( # $ # ( #) $ #
***
+
! "# $ %& '& ( )
* &)+,)+- & ! # #)
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELAWW G.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Fullkomið brúðkaup
Fös. 10. feb. kl. 20 Örfá sæti laus
Fös. 10. feb. kl. 23 AUKASÝNING
Lau. 11. feb. kl. 19 Örfá sæti laus
Lau. 11. feb. kl. 22 AUKASÝNING
Fös. 17. feb kl. 19 AUKASÝNING
Lau. 17. feb kl. 22 AUKASÝNING
Lau. 18. feb kl. 20 UPPSELT
Lau. 18. feb kl. 22 UPPSELT - Síðasta sýning!
Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu.
Maríubjallan
Mið. 15. feb. kl. 20 FORSÝNING
Fim. 16. feb. kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT
Sun. 19. feb. kl. 20 2.kortas
Fim. 23. feb kl. 20 3.kortas
Fös. 24. feb. kl. 19 4.kortas
Lau. 25. feb. kl. 19 5.kortas
Lau. 25. feb. kl. 22 AUKASÝNING
Fim. 2. mars kl. 20 6.kortas
3/3, 4/4, 10/4, 11/4, 17/4, 18/4
Brúð-
kaupið
kveður!
Ný íslensk tónlist
og ungir einleikarar
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikarar ::: Auður Hafsteinsdóttir,
Bryndís Halla Gylfadóttir og Örn Magnússon
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikarar ::: Júlía Mogensen
Jóhann Már Nardeau
Gunnhildur Daðadóttir
Guðný Jónasdóttir
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson ::: Sjö byltur svefnleysingjans
Þorkell Sigurbjörnsson ::: Þrenjar
Eiríkur Árni Sigtryggsson ::: Stjöstirni
Þorsteinn Hauksson ::: Sinfónía eitt
FIMMTUDAGINN 9. FEBRÚAR KL. 19.30
myrkir músikdagar í háskólabíói
LAUGARDAGINN 11. FEBRÚAR KL. 17.00
ungir einleikarar í háskólabíói
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Camille Saint-Säens ::: Sellókonsert nr. 1
Johann Nepomuk Hummel ::: Trompetkonsert
Alexander Glazúnov ::: Fiðlukonsert í a-moll, op. 82
Edward Elgar ::: Sellókonsert í e-moll, op. 85
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður þér nú afar góðan og
spennandi kost: Þú greiðir fyrir eina tónleika en færð miða
á tvenna. Þannig gefst þér bæði kostur á að hlusta á verk
íslenskra tónskálda á Myrkum músíkdögum og heyra
unga einleikara þreyta frumraun sína með hljómsveitinni.
NÚ stendur yfir í Þjóðarbókhlöðu
sýning á ýmsum útgáfum af Pass-
íusálmum Hallgríms Péturssonar,
allt frá eiginhandaruppskrift
skáldsins frá 1659.
Árið 1877 var keypt til Lands-
bókasafns mikið handritasafn í eigu
Jóns Sigurðssonar, og var það af-
hent að honum
látnum á árunum
eftir 1879. Í safni
Jóns var að finna
það handrit sem
hefur verið talið
einn mesti dýr-
gripur safnsins
og jafnframt
þessarar þjóðar
frá síðari öldum,
eiginhandarrit
séra Hallgríms Péturssonar af Pass-
íusálmunum með ártalinu 1659.
Þjóðin lærði snemma að meta
Passíusálmana. Voru þeir fyrst
prentaðir árið 1666, og reyndar
tvisvar á meðan Hallgrímur lifði, en
alls 5 sinnum á 17. öld. Á 18. öld
komu síðan út 16 útgáfur og á 19.
öld 19 útgáfur, en samtals eru þær
nú orðnar 83 að tölu – það er heild-
arútgáfur sálmanna. Eru þetta
margfalt fleiri útgáfur en komið
hafa út af nokkurri annarri bók hér
á landi.
Þrátt fyrir svo margar útgáfur
Passíusálmanna og sjálfsagt margar
í tiltölulega stóru upplagi, miðað við
sinn tíma, er frá því að segja að
einnig eru varðveittar yfir 30 upp-
skriftir eða handrit af sálmunum
eftir hinum prentuðu bókum, sem
flestöll eru rituð af ónafngreindum
mönnum. Er þetta margfalt met – ef
svo má að orði komast – þótt fleiri
dæmi séu um uppskriftir á prentuðu
efni – og undirstrikar enn og aftur
ást þessarar þjóðar á sálmunum.
Margar uppskriftanna eru óvenju
fallegar, með stafaskreytingum sem
lýsa alúð skrifaranna við viðfangs-
efni sitt.
Sýningin stendur til 30. apríl.
Passíusálmarnir
í Þjóðarbókhlöðu
Hallgrímur
Pétursson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn