Morgunblaðið - 07.02.2006, Blaðsíða 47
Sími - 551 9000
M YKKUR HENTAR 400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
MEMOIRS OF A GEISHA kl. 6 og 9
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
„... ástarsaga eins og þær gerast bestar -
hreinskilin, margbrotin og tilfinningarík...“
L.I.B. - Topp5.is
Golden Globe verðlaun
6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA TÓNLISTIN, JOHN WILLIAMS
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND UM ÆVI JOHNNY CASH.
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM!
THE
FOG
N ý t t í b í ó
Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is
„...falleg og skemmtileg
fjölskyldumynd...“
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og
Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper.
DÖJ, Kvikmyndir.com
VJV, Topp5.is
H.J. MBL
Sýnd kl. 6
F
U
N
Sýnd kl. 6, 8 og 10
STÓRKOSTLEG SAGA UM ÁSTIR OG
ÁTÖK BYGGÐ Á HINNI ÓGLEYMANLEGU
METSÖLUBÓK EFTIR ARTHUR GOLDEN
BESTA TÓNLISTIN,
JOHN WILLIAMS
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Rolling Stone
Topp5.is
Sýnd kl. 5 og 8
VINSÆLASTA MYNDIN
á Íslandi í dag! 6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Rolling Stone
Topp5.is
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 47
Auglýsendur!
Þið eigið stefnumót við áhugavert fólk - lesendur Tímarits
Morgunblaðsins.
Tímarit Morgunblaðsins er mest lesna tímaritið í áskrift á
Íslandi. Því er dreift í 60 þúsund eintökum með
sunnudagsblaði Morgunblaðsins til lesenda um land allt.
Allar nánari upplýsingar veita Sigrún Sigurðardóttir í síma
569 1378 eða sigruns@mbl.is, og Bylgja Björk Sigþórsdóttir
í síma 569 1142 eða bylgjabjork@mbl.is
MIÐASALA á tónleika
bandaríska djasstríós-
ins The Bad Plus hefst
í fyrramálið kl. 10 en
tónleikarnir fara fram
á NASA næstkomandi
sunnudag. The Bad
Plus hefur vakið gríð-
arlega athygli um all-
an heim fyrir frumleg
tök sín á djasstónlist-
inni en þar hefur
sveitin blandað saman
ólíkum stefnum á borð
við raftónlist, grug-
grokk, popp og djass.
Þá hefur The Bad Plus
einnig vakið mikla at-
hygli fyrir tónleika
sína og vilja margir
meina að hér sé á ferð-
inni eitt þéttasta tón-
leikaband heims um
þessar mundir.
Miðasala fer fram í
verslunum Skífunnar í
Reykjavík, verslunum
BT á Akureyri og Sel-
fossi og á www.event-
.is. Miðaverð er 3.300
krónur auk mið-
agjalda.
Eingöngu 550 miðar eru í boði.
Eins og áður sagði fara tónleikarn-
ir fram sunnudaginn 12. mars á
Nasa og hefjast þeir klukkan 20 en
húsið verður opnað klukkan 19.
Tónlist | Miðasala á The Bad Plus hefst á morgun
www.event.is
Einungis 550 miðar í boði
The Bad Plus leika á NASA
næstkomandi sunnudag.
SPENNUTRYLLIRINN Út af
sporinu (Derailed) gefur ágætis
fyrirheit, þ.e. þegar maður hefur
ekki séð hana. Um er að ræða
fyrsta Hollywood-verkefni sænska
leikstjórans Mikaels Hafström sem
vakti m.a. mikla athygli fyrir kvik-
myndina Illska (Ondskan) en verk-
efnið vinnur hann jafnframt undir
framleiðsluhatti Miramax-
forkólfanna Bobs og Harveys
Weinstein. Myndin skartar áhuga-
verðum leikurum, þeim Clive
Owen, Jennifer Aniston og Vincent
Cassel í aðahlutverkum og er
fyrsta kvikmyndin sem hið nýja
óháða fyrirtæki Weinstein-bræðra
sendir frá sér eftir skilnaðinn við
Disney-samsteypuna.
Um er að ræða spennutrylli, þar
sem áhersla er lögð á persónusköp-
un og uppbyggingu fléttu, auk þess
sem framleiðslustaðallinn er á háu
plani.
Enda fer myndin vel af stað.
Hún býður fyrst í stað af sér þokka
vandaðs spennutryllis, og fer ró-
lega í uppbyggingu spennuflétt-
unnar. Þar segir af Charles Schine,
sem er í góðri stöðu hjá stórri aug-
lýsingastofu í Chicago. Hann er
hamingjusamlega giftur, og vinna
þau hjónin hörðum höndum að því
að safna í sjúkrasjóð fyrir dóttur
sína sem þjáist af sykursýki á háu
stigi og bíður eftir að komast í
kostnaðarsama nýrnaígræðsluað-
gerð. Charles er leiður í starfi,
enda hætti hann sem kennari til
þess að geta þénað meira í auglýs-
ingabransanum, en þau hjónin eru
skuldsett í topp til þess að eiga fyr-
ir sjúkrakostnaði dótturinnar.
Hjónabandið er sömuleiðis komið
upp í vana og er Owen því veikur
fyrir þegar hann kynnist hinni gull-
fallegu Lucindu Harris (Jennifer
Aniston) sem einnig er gift og á
kafi í vinnu í fjármálageiranum.
Þau Charles og Lucinda fara að
spjalla í lestinni á leið í vinnuna, og
eru brátt farin að leggja á ráðin
um framhjáhald. Þau leigja sér
herbergi á vafasömu hóteli þar sem
ástarævintýri þeirra fær snöggan
endi og snýst upp í martröð er þau
lenda þau í klónum á harðsvíruðum
fjárkúgara.
Út af sporinu getur seint talist
til frumlegra spennusagna, og ekki
bætir úr skák að henni mistekst
fremur illilega að fylgja því yf-
irlýsta markmiði að vera ávallt
tveimur skrefum á undan áhorfand-
anum við uppbyggingu ráðgát-
unnar. Þrátt fyrir vandaða tilburði
við uppbyggingu sögunnar kemur
fljótlega í ljós að hér er unnið með
kattar-og-músar-frásögn á klúð-
urslegan máta. Í fyrstu fylgjumst
við með ömurlegum aðstæðum
þeirra Lucindu og Charles eftir að
glæponinn nær tangarhaldi á þeim,
nauðgar Lucindu og nýtir sér síðan
sektarkennd Charles til að hafa út
úr honum sjúkrasjóðinn sem ætl-
aður var dóttur hans. Þessi kafli
myndarinar verður fremur dap-
urlegur en spennandi, og er það
ekki fyrr en seint og um síðir að
söguhetjan tekur málin í sínar
hendur og breytist í harðsvíraða
mús sem leikur á köttinn. Hér fara
persónurnar að gerast mótsagna-
kenndar í ljósi persónusköpunar-
innar í fyrri hlutanum og sagan
tapar öllum trúverðugleika, hrapar
smám saman niður í mótsagna-
kennda dellu eftir því sem á líður.
Spennuflétta á villigötum
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Mikael Hafström. Aðal-
hlutverk. Clive Owen, Jennifer Aniston,
Vincent Cassel og Melissa George.
Bandaríkin, 107 mín.
Út af sporinu / Derailed
„Þrátt fyrir vandaða tilburði við uppbyggingu sögunnar kemur fljótlega í ljós að hér er unnið með kattar og mús-
ar frásögn á klúðurslegan máta,“ segir m.a. í dómi.
Heiða Jóhannsdóttir