Morgunblaðið - 07.02.2006, Page 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
HLUTFALL erlendrar
hlutabréfaeignar Lands-
banka Íslands hefur
hækkað úr um 15% í tæp
50% á einu til tveimur
árum. Hlutabréfastaða
bankans, þ.e. hlutabréf
hans sem hlutfall af
heildareignum, hefur þó
ekki breyst og hefur í
langan tíma verið um 4%. Þetta var meðal
þess sem fram kom í máli Halldórs J. Krist-
jánssonar, bankastjóra Landsbankans, á
kynningarfundi bankans, sem haldinn var
fyrir fjárfesta í London í gær í tilefni upp-
gjörs fyrir árið 2005.
„Fjárhagsstaða bankans er meðal þess
sem best gerist og það ásamt háu eignafjár-
hlutfalli og góðri áhættudreifingu staðfestir
að Landsbankinn stendur vel undir því
lánshæfismati sem hann nú hefur.“
Arðsemi af grunnstarfsemi Landsbank-
ans fyrir skatt var 23% árið 2004 og 30% ár-
ið 2005, að því er fram kom hjá Sigurjóni Þ.
Árnasyni, bankastjóra, en þá er átt við af-
komu bankans án gengishagnaðar af hluta-
bréfum og kostnaðar vegna fjárbindingar í
hlutabréfastöðum.
Sigurjón sagði í samtali við Morgunblaðið
að góð arðsemi af grunnstarfsemi bankans
hefði vakið mikla athygli fundargesta, sem
hefðu verið vel á þriðja hundrað talsins. | 11
Fjárhagsstaða
LÍ sögð með
því besta
sem gerist
BANASLYS varð í Blesugróf í Bústaða-
hverfi síðdegis í gær þegar karlmaður varð
undir stórum aftanívagni fyrir vinnuvélar.
Maðurinn var að gera við vagninn við
heimili sitt og hafði hækkað hann upp á
stoðir en svo virðist sem vagninn hafi runn-
ið af stoðunum og maðurinn orðið undir með
fyrrgreindum afleiðingum. Slysið var til-
kynnt kl. 16.31 og var maðurinn látinn þeg-
ar að var komið. Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var kallað á vettvang með
tækjabíl ásamt Vinnueftirliti ríkisins og lög-
reglu. Nálægri götu, Stjörnugróf, var lokað
á meðan lögregla og sjúkralið vann á vett-
vangi.
Hinn látni hafði um langt árabil starfrækt
flutningabílaþjónustu sem einyrki. Ekki er
hægt að birta nafn hans að svo stöddu.
Varð undir
vagni og lést
Í TILEFNI af því að 100 ár eru liðin frá
fæðingu Einars Sigurðssonar útgerðar-
manns verður afhjúpað kl. 14 í dag í Vest-
mannaeyjum listaverk eftir Gerði Helga-
dóttur myndhöggvara.
Verkið nefnist „Í minningu foreldra
minna“ og hefur því verið valinn staður
við suðurhafnargarðinn í Vestmanna-
eyjum, norður af Skansinum. Skansinn var
á árum áður í eigu Einars, en er nú í eigu
bæjarfélagsins. Bergur Ágústsson bæjar-
stjóri og Arnar Sigurmundsson, formaður
bæjarráðs, veita verkinu viðtöku.
Verkið er gefið af afkomendum Einars
og Svövu Ágústsdóttur, konu hans, í minn-
ingu þeirra hjóna. En Einar ásamt öðrum
forystumönnum í SH og Ólafi Þórðarsyni í
Jöklum styrktu Gerði til náms í Frakk-
landi á sínum tíma.
„Einar Sigurðsson var einn af öflugustu
mönnum í atvinnulífi Eyjanna um langt
skeið og bera fyrirtækin sem hann stóð að
merki þess stórhugar sem hann var ávallt
þekktur fyrir,“ segir Arnar. | 30
Listaverk í
minningu Einars
og Svövu í Eyjum
FLUTNINGASKIP lagðist að
bryggju gömlu Áburðarverksmiðj-
unnar í Gufunesi í síðasta skipti í
gærkvöldi en um eitt ár er liðið síð-
an skip lagðist þar að síðast.
Bryggjan þjónaði á sínum tíma
Áburðarverksmiðjunni en fram-
leiðsla áburðar hefur lagst af hér á
landi og er eingöngu fluttur inn.
Eftir brotthvarf Áburðarverk-
smiðjunnar hefur önnur starfsemi
tekið við á svæðinu en síðustu 6 ár
hefur Íslenska gámaþjónustan haft
starfsemi sína þar. Undanþága var
veitt fyrirtækinu til að nota
bryggjuna í gærkvöldi, en hún
hafði verið formlega lögð af. Skip-
ið, sem er finnskt, flutti um 400
nýja ruslagáma, þar af 150 flokk-
unargáma fyrir dagblöð og mjólk-
urfernur.
Að sögn Jörgens Þráinssonar,
markaðsstjóra Íslenska gáma-
félagsins, er mikil starfsemi á
svæðinu en um 150 manns starfa
hjá fyrirtækinu. Skemmur gömlu
verksmiðjunnar séu nýttar undir
starfsemina auk þess sem skrif-
stofur félagsins eru þar. Einnig
hafi svæðið nýst til kvikmynda-
gerðar að undanförnu en atriði úr
nýjustu mynd Baltasars Kormáks,
A little Trip to Heaven, voru tekin
þar upp auk atriða úr nýjustu
kvikmynd Stuðmanna, Í takt við
tímann.
Morgunblaðið/ÞÖK
Bryggjan í Gufunesi notuð í síðasta skiptið
STÓRA amfetamínmálið sem kom upp í
Leifsstöð á föstudag er komið í rannsókn hjá
lögreglunni í Reykjavík en lögreglan verst
frétta af gangi rannsóknarinnar. Karl og
kona, bæði Íslendingar, sitja í gæsluvarð-
haldi vegna málsins, grunuð um tilraun til
smygls á tæpum 4 kg af amfetamíni sem tek-
ið var af þeim við komuna til landsins frá
París.
Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns
fíkniefnadeildar lögreglunnar, er málið ný-
komið til rannsóknar hjá lögreglunni en ekki
fæst upplýst á þessari stundu hvort hin
grunuðu voru burðardýr fyrir aðra eða hvort
þau fjármögnuðu fíkniefnakaupin sjálf. Þá
fást ekki staðfestar fregnir af því hvort ann-
að þeirra eða bæði hafi komið við sögu vegna
afbrota áður og enn fremur tjáir lögreglan
sig ekki um hvort rannsóknin beinist að
hugsanlegum vitorðsmönnum.
Flestir á örvandi efnum
Amfetamín er mjög örvandi efni og nú er
svo komið að flestir þeirra sem fara í með-
ferð hjá SÁÁ eru háðir örvandi fíkniefnum.
Amfetamínið er það efni sem með réttu
mætti kallast harðasta efni Íslendinga að
sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á
Vogi. Amfetamín hefur hækkað stöðugt í
verði frá því í apríl 2005 samkvæmt verð-
könnun SÁÁ á ólöglegum fíkniefnum og kost-
ar grammið nú 4.700 krónur, en var á 3.800
fyrir 10 mánuðum.
Að sögn Þórarins hefur neysla örvandi
fíkniefna aukist stöðugt undanfarin ár, hvort
heldur er um að ræða kókaín, amfetamín eða
e-töflur. „Sérstaklega er um að ræða fólk á
milli tvítugs og þrítugs,“ segir hann. „Yfir
60% þeirra sem koma á Vog eru háðir örv-
andi efnum. Fyrsta örvandi efnið á Íslandi
hefur verið amfetamín og það er það efni sem
fólk byrjar að sprauta í æð. Amfetamín er
okkar harðasta efni og er engu betra en kók-
aín nema síður sé og það er margt sem bend-
ir til þess að það sé verra.“
Þótt Þórarinn segist ekki merkja jafnmikla
neysluaukningu og var á árunum 1996–1998
sé staðan samt sú að stöðugt er verið að
vinna með sjúklinga sem eru verulega illa
staddir vegna amfetamínneyslu. „Við erum
að vinna með afleiðingar þessarar miklu
aukningar sem var en stór hluti fólks situr
eftir, illa skaðað og á erfitt.“
Örvandi fíkniefni og
harkalegra ofbeldi
Skemmst er að minnast nýlegs samtals við
Ásgeir Karlsson í Morgunblaðinu þar sem
hann gat þess að svo virtist sem fólki þætti
ekkert tiltökumál að fá sér örvandi efni af og
til sem hluta af skemmtanamynstrinu. Hark-
an í ofbeldinu hefði um leið aukist, sem dæmi
um það væri mönnum ekki hlíft þótt þeir
hefðu fallið í götuna eða á gólfið. Jafnvel væri
ráðist fyrirvaralaust á fólk og af engu tilefni.
Þá hafa starfsmenn á slysa- og bráðadeild
Landspítalans í Fossvogi orðið oftar en áður
fyrir ógnunum og árásum af hálfu þeirra sem
þangað leita. Í vaxandi mæli er um að ræða
menn sem koma á slysadeildina um helgar
undir áhrifum örvandi fíkniefna og fjölgar
þessum mönnum eftir því sem lengra líður á
nóttina.
Kristín Sigurðardóttir, læknir á slysadeild,
sagði í sama viðtali að starfsfólk á slysadeild-
inni hefði orðið illyrmislega vart við aukna
fíkniefnaneyslu og undir það tók Hlynur Þor-
steinsson, sérfræðilæknir á slysadeild.
Amfetamín hækkar stöðugt í verði og ofbeldi eykst í takt við neysluna
Yfir 60% þeirra sem koma
á Vog háð örvandi efnum
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
♦♦♦
♦♦♦