Morgunblaðið - 08.02.2006, Side 18
Reykjavík | Gróður hefur tekið
við sér í hlýindunum und-
anfarnar vikur og garð-
yrkjumenn einnig. Þess hafa
víða sést merki og fólk tekið til
hendinni í einkagörðum og á
opnum svæðum. Helga Björk,
starfsmaður hjá Borgargörðum,
klippti runna í Laugardalnum.
Í gærmorgun var jörð hvít í
Reykjavík og vaxandi frost. Það
breytist þó aftur þegar líður á
vikuna og er vonandi að þetta
kuldaskot gangi ekki frá
gróskunni í flóru og mannlífi.
Morgunblaðið/Ásdís
Vorhugur þrátt fyrir kuldaskot
Gróður
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114.
Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-
dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Guðrún Gróa heiðruð | Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona var út-
nefnd íþróttamaður Ungmennasambands
Vestur-Húnvetninga 2005. Kjörið fór
fram við athöfn í
Þinghúsinu á
Hvammstanga.
Fjórir ein-
staklingar voru til-
nefndir að þessu
sinni, auk Guðrúnar
Gróu voru það þau
Aðalsteinn Ingi
Halldórsson, Fanney
Dögg Indriðadóttir
og Ólafur Einar
Skúlason
Í fréttatilkynningu
USVH er sagt að
Guðrún Gróa sé vel
að þessum sigri komin,
án þess hallað sé á
hina einstaklingana sem voru tilnefnir.
Meðal afreka Guðrúnar Gróu á árinu
2005 eru tvö Íslandsmet, í kúluvarpi inn-
anhús í flokki 15 til 16 ára og í fjölþraut,
15-16 ára inni. Hún varð Íslandsmeistari
í fjórum greinum; kúluvarpi inni, fjöl-
þraut úti og inni og í spjótkasti. Þá var
hún einnig oft á verðlaunapalli í hinum
ýmsu mótum ársins.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir
Hestamennska í fjölbraut | Stefnt er að
því að námsbraut í hestamennsku verði tek-
in upp í tilraunaskyni við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja næsta haust.
Sigurður Sigursveinsson, skólameistari,
segir á fréttavefnum sudurland.is að áhugi
sé fyrir hendi enda sé Suðurland miðstöð
hestamennsku á landinu. Á næstu vikum og
mánuðum verður unnið að skipulagningu
námsins en samstarfsaðili skólans er
Landssamband hestamannafélaga.
Austurríki opnað | Ungmennahúsið
Austurríki, sem er til húsa að Strandgötu
44 á Eskifirði, var formlega tekið í notkun
sl. föstudag. Húsið er ætlað aldurshópnum
16-25 ára og er opið á þriðjudögum,
fimmtudögum og föstudögum frá kl. 20:00-
23:00.
Fyrirtæki í Fjarðabyggð hafa styrkt hús-
ið myndarlega og er afar vel tækjum búið,
m.a. með pool-borði, góðu hljóðkerfi, tölv-
um með netaðgangi, skjávarpi og fleiru.
Verkmenntaskóli Austurlands mun verða
með hluta af sínu félagsstarfi í Austurríki
og í undirbúningi eru spennandi samstarfs-
verkefni skólans og ungmennahússins. Silja
Jóhannesdóttir hefur tekið að sér að veita
ungmennahúsinu forstöðu til að byrja með.
Bensínorkan hefur opn-að bensínstöð á Egils-stöðum og eru því
fjórar bensínstöðvar; Bensín-
orkan, Esso, Skeljungur og
svo Olís í Fellabæ, nánast í
hnapp á svæðinu. Þessi nýja
bensínstöð Bensínorkunnar á
Egilsstöðum er fyrsta lág-
verðsbensínstöðin sem opnar
á Austurlandi, en fyrirtækið
hyggst reisa aðra eins í Nes-
kaupstað.
Á opnunarhátíð Bensínork-
unnar bauð fyrirtækið til
skrúðgöngu og hét fim-
leikadeild Hattar 500 kr. á
hvern göngumann. Rúmlega
fjögurhundruð manns gengu
frá íþróttahúsinu á Egils-
stöðum og að stöð Bensínork-
unnar, þar sem boðið var upp
á veitingar á Hamborg-
arabúllunni og skemmtiatriði. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fjórða bensínstöðin á Egilsstöðum
Vignir Víkingsson áAkureyri orti umslysið sem Stein-
grímur J. Sigfússon lenti
í, en milli þeirra er góður
kunningsskapur:
Fram í sortann skimar
rauður skalli,
skelfing örðugt er að
rata veginn.
Hægri beygja honum
varð að falli,
hann er allur brotinn
vinstra megin.
Einar Kolbeinsson yrk-
ir af sama tilefni:
Steingrím kalla sterkan mann,
þó stundum útaf fari,
en vinstra megin virðist hann,
vera brothættari.
Og með vísu Einars
fylgja góðar óskir til
Steingríms:
Raunin ill þó reyni mann,
sem rifin hefur brotið,
lystisemda lífsins hann,
lengi fái notið.
Af Steingrími
pebl@mbl.is
Austur-Flói | Íbúar þriggja sveitahreppa í
austanverðum Flóa greiða atkvæði um
sameiningu sveitarfélaganna næstkom-
andi laugardag. Hrepparnir eru Gaulverja-
bæjarhreppur, Hraungerðishreppur og
Villingaholtshreppur.
Kjörfundir verða í félagsheimilum
hreppanna, Félagslundi, Þingborg og
Þjórsárveri, og standa frá kl. 12 til 21.
Talning atkvæða fer fram á kjörstað í
hverju sveitarfélagi, en niðurstöður kosn-
inga verða kynntar sameiginlega af for-
manni samstarfsnefndar, Guðmundi Stef-
ánssyni, í félagsheimilinu Þingborg þegar
úrslit liggja fyrir í öllum hreppunum. Ut-
ankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sam-
einingarkosninganna stendur yfir hjá
sýslumönnum um land allt og einnig er
hægt að greiða atkvæði utan kjörfundar
hjá sendiráðum, fastanefndum og ræðis-
mönnum Íslands erlendis.
Undanfarnar tvær vikur hafa farið fram
opnir kynningarfundir í sveitarfélögunum,
með það að markmiði að vekja umræður
um kosti og galla sameiningar. Íbúafund-
irnir voru allir mjög vel sóttir, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu samstarfs-
nefndarinnar, og er áætlað að á bilinu 60–
90 manns hafi komið á hvern fund.
Hægt er að nálgast upplýsingar um at-
kvæðagreiðsluna og upplýsingar sem tekn-
ar hafa verið saman vegna hennar á vefsíð-
unni www.floi.is.
Kosið um
sameiningu
þriggja
hreppa í Flóa
Neskaupstaður | Bæjarráð Fjarðabyggð-
ar samþykkti nýverið að leggja allt að 900
þúsund krónum í hlutafé óstofnaðs fyrir-
tækis um skemmtisiglingar í Fjarðabyggð,
eða sem nemur 10% af heildarhlutafé.
Sigla á með ferðafólk í 45 manna
skemmtiferðabát um austfirska firði. Með-
al þeirra sem kom að fyrirtækinu eru
Magni Kristjánsson í Neskaupstað, Sam-
vinnufélag útvegsmanna í Neskaupstað,
Austfjarðaleið og Sæferðir í Stykkishólmi.
Kaupa bát til
skemmtisiglinga
♦♦♦
Nýr formaður | Bárður Guðmundsson
var kjörinn formaður Golfklúbbs Selfoss
sem nýlega var haldinn. Kemur þetta fram
á fréttavefnum sudurland.is.
Aðrir í stjórn eru Guðjón Öfjörð Ein-
arsson, formaður vallarnefndar, Jens Uwe
Friðriksson, formaður mótanefndar, Jón-
björg Kjartansdóttir ritari og Pétur
Hjaltason gjaldkeri. Úr stjórn gengu
Grímur Arnarson og Sigurður Grétarsson.
♦♦♦