Morgunblaðið - 24.02.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Stuttbuxur
Kvartbuxur – Síðbuxur
Bolir og vesti
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Stakir jakkar
str. 36-56
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Mikið úrval af
samfellum
Ný sending
Veitingahúsið Perlan - S: 562 0200 - Fax: 562 0207
Netfang: perlan@perlan.is - Heimasí›a: www.perlan.is
MICHELIN STJARNA
Í PERLUNNI!
Markus WinkelmannMichelin-Chef
· Jörg Müller á eyjunni Sylt - * Michelin.
· Le Val d’Or í Stromburg - ** Michelin.
· Marcobrunn Rheingau - ** Michelin.
FRAMLENGT TIL 8. MARS!
EXCEL Airways, dótturfélag Avion
Group, gekk í gær frá samningi við
General Electric Capital Aviation
Services um leigu á tveimur nýjum
Boeing 737-900ER vélum, en um er
að ræða tegund véla sem sett verður
á markað af Boeing á næsta ári, og
tveimur 737-800 vélum sem verða af-
hentar á öðrum ársfjórðungi 2007.
Var samningurinn undirritaður í
höfuðstöðvum Excel við Gatwick
flugvöll í Lundúnum af Magnúsi
Þorsteinssyni, stjórnarformanni
Avion Group, Michael O’Shea, fram-
kvæmdastjóra GECAS, og Marlin
B. Daily sölustjóra Boeing í Evrópu.
Halldór Ásgrímsson, forsætisráð-
herra var viðstaddur undirritunina
ásamt eiginkonu sinni, Sigurjónu
Sigurðardóttur.
Þá hefur verið gengið frá samn-
ingum um afhendingu fjögurra
Boeing 737-800 véla á fyrstu sex
mánuðum ársins 2007. Er um að
ræða hluta af endurnýjun flugflota
Avion Group. Leiguupphæðin er
trúnaðarmál, en til samanburðar má
nefna að listaverð vélanna fjögurra
er um 530 milljónir bandaríkjadala,
eða um 37 milljarðar íslenskra
króna.
Gömlum vélum verður
skipt út fyrir nýjar
Boeing 737-900ER vélarnar verða
afhentar Excel Airways í maí 2008,
en þær munu passa vel við núver-
andi 737-800 flota félagsins þar sem
meðal annars er hægt að samnýta
98% af öllum varahlutum í flugvél-
arnar. Excel Airways hefur verið að
skipta út 757-200 vélum sínum, sem
þykja óhagkvæmari en þær nýju.
Magnús Þorsteinsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að mikilvægt
væri fyrir flugfélag sem Excel að
hugsa fram í tímann og horfa til þess
að eldsneytisverð mun að öllum lík-
indum haldast hátt og jafnvel
hækka. Því skipti miklu máli að flug-
vélarnar séu eins sparneytnar og
mögulegt er. „Þá er mjög jákvætt að
geta boðið farþegum okkar upp á
nýjustu gerð véla með nýjum inn-
réttingum og betri aðstöðu,“ sagði
Magnús og bætti við að Boeing 737-
900ER vélarnar væru mjög hag-
kvæmar og bættu enn frekar þjón-
ustu Excel við viðskiptavini sína.
„Það gleður okkur að geta boðið
upp á góða þjónustu í nýjum vélum,“
sagði Magnús.
Áfangastaður um 50 talsins
Excel Airways mun nota nýju vél-
arnar á flugleiðum félagsins frá Gat-
wick og Manchester flugvöllunum til
áfangastaða á Kanaríeyjum, Suður-
Evrópu og við Miðjarðarhafið.
Áfangastaðir félagsins eru nú í
kringum 50 í Evrópu og Mið-Austur-
löndum og voru farþegar félagsins
ríflega þrjár milljónir á síðasta ári.
Við sama tækifæri vígði forsætis-
ráðherra nýjar skrifstofur Travel
City, dótturfélags Excel Airways.
Travel City sérhæfir sig í sölu
pakkaferða til Flórída og er stærsti
einstaki viðskiptavinur Disney fyrir
utan Bandaríkin.Til stóð að for-
sætisráðherra og föruneyti heim-
sækti höfuðstöðvar Bakkavarar
Group í Bretlandi en heimsókninni
var aflýst í gær vegna óhagstæðs
flugveðurs. Halldór skoðaði í gær-
kvöldi sýninguna Pure Iceland í Vís-
indasafninu í London og í dag heim-
sækir hann starfsstöðvar Íslands-
banka og Landsbanka í borginni,
auk þess að vígja nýjar skrifstofur
Icelandair.
Heimsókn Halldórs Ásgrímssonar
til Bretlands lýkur síðdegis í dag.
Flugfloti Excel Airways
stækkar um átta vélar
Samningur Excel Airways og Boeing undirritaður að viðstöddum Halldóri
Ásgrímssyni forsætisráðherra. Við hlið hans er Magnús Þorsteinsson,
stjórnarformaður Avion Group, og fulltrúar GECAS og Boeing.
Samningur
undirritaður
í London í gær
að viðstöddum
forsætisráðherra
Eftir Bjarna Ólafsson í London
bjarni@mbl.is
Með aðstoð Magnúsar klippti
Halldór á borðann við opnun
nýrrar skrifstofu Travel City,
dótturfélags Excel Airways.
Innihaldið skiptir máli
BANDARÍSKUR hermaður,
Calvin Eugene Hill, hefur verið
ákærður fyrir morð á tvítugri
bandarískri samstarfskonu sinni í
varnarstöðinni á Keflavíkurflug-
velli hinn 14. ágúst sl. Er hann
ákærður fyrir morð að yfirlögðu
ráði en stungusár voru á konunni
ásamt áverkum sem bentu til að
átök hefðu átt sér stað. Konan
var með lífsmarki þegar hún
fannst í svefnskála fyrir ein-
hleypa varnarliðsmenn en var úr-
skurðuð látin við komuna á
sjúkrahús.
Hill, sem er á þrítugsaldri, er
grunaður um að hafa framið
morðið til að koma í veg fyrir að
konan bæri vitni gegn honum fyr-
ir herrétti. Upphaf málsins er
rakið til þess að Hill var grunaður
um að hafa stolið peningum frá
konunni með því að nota banka-
kort hennar til að taka út úr hrað-
bönkum. Í kjölfar þess var hann
ákærður en málið hafði ekki verið
tekið fyrir hjá herrétti þegar
morðið var framið.
Hill sætir jafnframt ákæru fyr-
ir fleiri brot, svo sem að yfirgefa
varnarstöðina á Keflavíkurflug-
velli án leyfis og að hindra fram-
gang réttvísinnar. Hann var flutt-
ur í bandaríska herstöð í kjölfarið
þar sem hann situr nú í varðhaldi.
Getur átt yfir höfði
sér dauðarefsingu
Verði Hill fundinn sekur um
morð að yfirlögðu ráði getur hann
átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Í
varnarsamningnum milli Íslands
og Bandaríkjanna segir að her-
yfirvöld Bandaríkjanna hafi
heimild til að fara með á Íslandi
hvers konar lögsögu og eftirlit
sem lög Bandaríkjanna veita
þeim, yfir þeim mönnum sem lúta
herlögum Bandaríkjanna.
Ekki hefur verið ákveðið hve-
nær aðalmeðferð málsins fer
fram.
Varnarliðsmaður
ákærður fyrir morð
að yfirlögðu ráði
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar slas-
aðist lítillega eftir að hann missti
stjórn á bíl sínum sem ekið var
Flatahraun, í átt að Garðabæ, í
Hafnarfirði um hádegið í gær.
Stjórnleysið olli því að bíllinn fór út
af veginum og utan í fimm bíla-
leigubíla á bílastæði við veginn.
Ökumaður var einn í bílnum og
var fluttur á slysadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss þar sem hann
gekkst undir læknisskoðun en var í
kjölfarið útskrifaður. Nokkrar
skemmdir urðu á öllum bílunum.
Hafnaði á fimm
bílaleigubílum
LÖGREGLAN í Keflavík gerði upp-
tæk fjögur grömm af hassi sem
fundust í bifreið ungs pars sem var
á leið frá Reykjavík í fyrrakvöld.
Eftir að bifreiðin var stöðvuð við
hefðbundið umferðareftirlit við
Vogastapa á Reykjanesbraut vakn-
aði grunur um að þau hefðu óhreint
mjöl í pokahorninu, en bæði hafa
þau komið við sögu lögreglunnar
áður. Við leit í bifreiðinni fannst
fyrrnefnt hass en auk þess var leit-
að á heimili þeirra, án árangurs.
Fólkinu var sleppt að skýrslutöku
lokinni og telst málið upplýst.
Ungt par tekið
með fíkniefni