Morgunblaðið - 24.02.2006, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Egilsstaðir | Því hefur verið varpað fram
að lítil sem engin íbúafjölgun hafi átt sér
stað á Fljótsdalshéraði nema vegna er-
lendra, tímabundinna starfsmanna við
Kárahnjúkahnjúkavirkjun og að tekju-
aukning á svæðinu sé lítil í kjölfar fram-
kvæmdanna.
Gögn úr bókhaldi Fljótsdalshéraðs
sýna að útsvarstekjur á íbúa í sveitarfé-
laginu hafa hækkað úr 151.943 kr. árið
2002 í 266.528 kr. árið 2005, eða um 75%.
Þegar tölur Hagstofunnar og búferla-
flutningur í og á milli sveitarfélaga er
skoðaður, kemur í ljós að „væntanlega
varanlegum“ íbúum á Fljótsdalshéraði
hefur fjölgað nokkuð, eða um 120 manns.
Frá öðrum sveitarfélögum á Austur-
landi voru aðfluttir umfram brottflutta
48 talsins á Fljótsdalshérað á síðasta ári
og þegar horft er til annarra sveitarfé-
laga á landinu eru aðfluttir á Hérað um-
fram brottflutta 72. Aðfluttir umfram
brottflutta erlendis frá voru 481 árið
2005. Í lok þess árs bjuggu 3.904 í sveit-
arfélaginu.
Í Fjarðabyggð voru brottfluttir um-
fram aðflutta, miðað við búferlaflutninga
innanlands, 69 talsins. Eftir er að ráða í
um 400 störf við álver Alcoa Fjarðaáls á
Reyðarfirði og munu þær ráðningar
væntanlega breyta stöðunni verulega í
Fjarðabyggð.
Viðvarandi
áhrif af virkjun
SamAust syngur | Söngkeppni
SamAust 2006 verður haldin á Seyð-
isfirði nk. laugardag. Þetta er í 5.
skipti sem þessi keppni er haldin og í
ár munu fulltrúar frá 9 félagsmið-
stöðvum flytja 14 lög. Þetta er und-
ankeppni fyrir Söngkeppni Samfés
sem haldin verður í Mosfellsbæ
fyrstu helgina í mars. Fjögur efstu
sætin í SamAust-keppninni fara
áfram í Samfés-keppnina. Búist er
við að hátt í 200 ungmenni muni
koma saman í Herðubreið á Seyð-
isfirði til þess að hvetja sitt lið áfram.
Að keppni lokinni verður slegið upp
diskóteki. Keppnin byrjar klukkan 18
og lýkur um klukkan 20 en þá hefst
diskótek sem stendur frá 20–22.30.
AUSTURLAND
AKUREYRI
Kárahnjúkavirkjun | Hljómburður í stöðvarhússhelli Kára-
hnjúkavirkjunar í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal er einstakur. Það
reyndu þeir Zicms Cinutis og Tristan Willems tónlistarmenn frá Eg-
ilsstöðum er þeir spiluðu þar klassík og jazzópusa á píanó og blást-
urshljóðfæri fyrir gesti, sem fögnuðu verkáfanga í stöðvarhúsinu.
Mönnum kom saman um að saxafónninn hefði komið einna best út og
minnti helst á tónlist Jans Gabarek, sem einmitt hefur sótt í að spila í
stórum bergmálandi hvelfingum um heim allan. Ekki verður lengi
spilandi í stöðvarhússhellinum því brátt drynja þar túrbínur og raf-
alar virkjunarinnar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gulir og glaðir Tristan Willems t.v. og Zicms Cinutis spila í stöðvarhússhelli Kárahnjúkavirkjunar.
Einstakur
hljómburður í fjallinu
Egilsstaðir | Auður Austurlands,
sýning á austfirsku handverki og
hönnun, var opnuð í Reykjavík í
gærkvöld, í tilefni af Vetrarhátíð í
Reykjavík. Á sýningunni eru fjöl-
breyttir munir frá 26 listamönn-
um og hönnuðum, unnir úr hrá-
efni sem tengist Austurlandi, s.s.
hreindýraskinni, hreindýrshorni
og -beini, lerki og líparíti. Hún er
til húsa í Aðalstræti 12, opin kl.
13–17 og stendur til 5. mars nk.
Sýningin Auður Austurlands
var fyrst opnuð á Hótel Héraði á
Egilsstöðum haustið 2005 og var
svo sett upp í ársbyrjun á Höfn í
Hornafirði. Sýningin er samstarf
Handverks og hönnunar og Menn-
ingarráðs Austurlands, í samvinnu
við Þróunarfélag Austurlands og
Markaðsstofu Austurlands.
Auður Austurlands færist næst
í Norska húsið í Stykkishólmi í
vor.
Auður Austurlands
á Vetrarhátíð
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
NÝTT NÝTT
Jakkar, peysur, pils,
stuttkápur og gallafatnaður
il
ll
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Góður próteingjafi fyrir unga sem aldna.
Wheat grass
www.expressferdir.is
Express Fer›ir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Nánar á www.expressferdir.is
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
VERÐ
69.900 kr.
INNIFALI‹:
30. MAÍ – 6. JÚNÍ
Í tilefni af fyrsta flugi Iceland Express
frá Akureyri bjó›a Express Fer›ir
upp á skemmtilega vikufer› til
Kaupmannahafnar. Fararstjóri ver›ur
fiorleifur Fri›riksson, sagnfræ›ingur.
Fer› um sögusló›ir Kaupmanna-
hafnar, dagsfer› til Odense á sló›ir
H.C. Andersen, dagsfer› til Malmö í
Svífljó› og n‡listasafni› Lousiana
sko›a›. Gist ver›ur á Square
hótelinu vi› Rá›hústorgi›.
Missið ekki af einstakri ferð.
Flug, skattar, akstur
til og frá flugvelli, lestarfargjöld,
gisting á Hótel Square í sjö
nætur me› morgunver›i.
Íslensk fararstjórn í öllum ferðum.
JÓMFRÚARFER‹
AEY–CPH
Skemmtun | Karlakór Eyjafjarðar
heldur árlega fjáröflunarskemmtun
sína á laugardagskvöld, 25. febrúar,
í Sjallanum. Þar takast á hagyrðing-
arnir Björn Ingólfsson, Einar Kol-
beinsson, Pétur Pétursson og Reyn-
ir Hjartarson. Stjórnandi er Birgir
Sveinbjörnsson. Karlakór Eyja-
fjarðar syngur, stjórnandi Petra
Björk Pálsdóttir. Daníel Þor-
steinsson leikur á píanó og Jónas
Þór Jónasson syngur einsöng.
Hvanndalsbræður flytja efni.
Hljómsveitin Sex ý sveit leikur létt
lög og Haukur Harðarson syngur.
ÞORSTEINN Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, segir að
rekstur háskólans á þessu ári, 2006,
horfi mun betur en hvað varðar liðið
ár. „Þetta lítur mun betur út núna,
en var í fyrra,“ segir hann en gera
megi ráð fyrir að halli á rekstrinum
fyrir liðið ár nemi um 70 milljónum
króna.
Nemendur Háskólans á Akureyri
efndu til mótmæla í vikunni til að
vekja athygli á því sem þeir nefndu
fjársvelti háskólans. Rektor telur
nauðsynlegt í ljósi umræðna um
hallarekstur að fram komi nú að
hann og menntamálaráðherra hafi
haft nána samvinnu um úrlausn
vandans síðustu misserin. Fjárhags-
leg vandamál háskólans eru að
mestu tilkomin vegna þess að skól-
inn hefur stækkað mjög hratt frá
árinu 2000. Námsframboð hefur
aukist verulega og nemendum hefur
fjölgað um 123% en fjárveitingar
hafa aukist um 113% á sama tíma.
„Vöxtur í starfsemi Háskólans á
Akureyri er með því mesta sem
þekkist meðal íslenskra háskóla og
ljóst er að yfirvöld menntamála hafa
sýnt í verki mikinn metnað við upp-
byggingu hans,“ segir í yfirlýsingu
sem rektor sendi frá sér í gær.
Fram kemur þar að stjórnendur
háskólans hafa gripið til aðgerða til
að hagræða og endurskipuleggja
fjölmarga þætti háskólastarfsins
með það að leiðarljósi að renna
styrkari stoðum undir áframhald-
andi uppbyggingu og hafa yfirvöld
menntamála komið til móts við þarf-
ir háskólans með viðbótarfjárveit-
ingum. Mikilvægt er að um þessar
aðgerðir ríki öll sú sátt sem mögu-
leg er innan háskólans og utan. Við-
ræður fara nú fram milli fulltrúa
menntamálaráðuneytis og stjórn-
enda háskólans um frekari aðgerðir
til að styrkja rekstrarstöðu hans.
Þær viðræður ganga vel enda eru
báðir aðilar sammála um að hin
mikla sókn Háskólans á Akureyri
hafi skilað verulegum árangri fyrir
íslenskt samfélag og að nauðsynlegt
sé að efla starfsemi hans enn frek-
ar.
Hið sama er uppi á teningnum í
tilkynningu sem menntamálaráðu-
neytið sendi frá sér í tilefni þeirrar
umræðu sem orðið hefur um mál-
efni háskólans nú. Þar kemur fram
að markmið með vinnu starfsmanna
ráðuneytis og rektors sé að finna
varanlega lausn með samstilltu
átaki, „þannig að þessi mikilvæga
stofnun geti haldið áfram að vaxa
og dafna“. Vandi háskólans stafi af
örum vexti fremur en niðurskurði
framlaga. Á sama tíma og nemend-
um skólans fjölgaði um 123% fjölg-
aði nemendum annarra háskóla að
meðaltali um 60% og fjárveitingar
til þeirra um 52% að meðaltali.
Húsaleiga á Borgum, hinu nýja
rannsóknahúsi, hefur leitt til kostn-
aðarauka í rekstri háskólans og er
hún eitt þeirra atriða sem verið er
að skoða sérstaklega í sameiginlegri
vinnu ráðuneytis og háskólans.
Rektor HA og fulltrúar ráðuneytis leita varanlegra lausna
Horfur fyrir árið mun
betri en voru fyrir liðið ár
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
BÆJARSTARFSMENN í Ólafsfirði
unnu að því í vikunni að fjarlægja
snjóruðninga víðs vegar um bæinn,
en þeir höfðu safnast saman á
mörgum stöðum eftir hretið í lið-
inni viku. Í stað þess að keyra
snjónum í sjóinn eins og oftast er
gert var hann keyrður á svæðið við
tjörnina og suður úr að enda
íþróttavallanna.
Í gær var svo verið að troða
þennan snjó og gera göngubraut,
sem e.t.v. verður grunnur að
göngubraut á Skíðamóti Íslands, en
nú er einmitt réttur mánuður þar
til það byrjar.
Ljósmynd/Gunnlaugur Ingi Haraldsson
Útbúa göngubraut
Tónleikar | Baggalútur efnir til tón-
leika á Græna hattinum í kvöld, föstu-
dagskvöldið 24. febrúar. Húsið verð-
ur opnað kl. 22, en tónleikarnir
hefjast stundvíslega kl. 23. Fram
koma Baggalútur ástamt Dan Cass-
idy, Magnúsi Einarsyni, Guðmundi
Péturssyni og Sigtryggi Baldurssyni.