Morgunblaðið - 24.02.2006, Síða 52
Sýni tekin úr álftum
ÁLFTIR sáust á flugi yfir Höfn,
við Djúpavog og á Mýrum í
Hornafirði í fyrradag, greinilega
nýkomnar til landsins.
Sýni verða tekin úr álftunum
sem koma hingað til lands á
næstu dögum, en það er liður í
skimunum samkvæmt aðgerða-
áætlun vegna fuglaflensu. Að
sögn Jarle Reiersen, dýralæknis
alifuglasjúkdóma, virðist sem
þau afbrigði fuglaflensuveir-
unnar sem nú geisi í Evrópu leiti
sérstaklega í álftir. „Í áætl-
anagerðinni sem við erum með
vegna skimunar á villtum fuglum
eru votlendisfuglar inni í þeim
dæmum, þá eru endur, gæsir og
álftir meðal helstu fugla sem við
skimum,“ segir Jarle.
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Mundu eftir Skólaostinum!
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
LANDSSAMBAND slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna vísaði í gær kjaradeilu sam-
bandsins við Launanefnd sveitarfélaganna
(LN) til ríkissáttasemjara með formlegum
hætti. Vernharð Guðnason, formaður sam-
bandsins, segir að enginn vilji sé til þess hjá
LN að taka á lélegum kjörum slökkviliðsmanna
og því stefni allt í verkfall. Undirbúningur að
verkfalli sé hafinn og það gæti hafist um miðjan
mars takist ekki að semja.
Launanefndin lagði í gær fram tilboð um 28%
launahækkun á þremur árum. Slökkviliðsmenn
höfnuðu því og þar með var viðræðum slitið.
Slökkviliðsmenn vísuðu síðan deilunni formlega
til sáttasemjara, en forsenda fyrir því að hægt
sé að boða verkfall er að hann sé kominn með
deiluna og hafi gert sáttatilraun. Ríkissátta-
semjari hefur boðað til samningafundar í dag.
Vernharð segir að hafa verði í huga að laun
slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna séu mjög
lág. Menntaður slökkviliðsmaður sé með 135
þúsund krónur í mánaðarlaun eftir þriggja ára
starf. Byrjunarlaunin séu 105 þúsund krónur.
„Slökkviliðsmenn ætla að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að fá leiðréttingu á sín-
um launum. Þeir ætla ekki að fórna lífi og lim-
um fyrir skítalaun. Þeir eru búnir að fá nóg af
því,“ sagði Vernharð.
Aðspurður sagði Vernharð að slökkviliðs-
menn krefðust þess að slökkviliðsmaður með
þriggja ára starfsreynslu fengi 250 þúsund
krónur í laun á mánuði. Hann sagðist telja
þetta sanngjarna kröfu en þetta væri vissulega
mikil hækkun ef horft væri á prósentur. Taxt-
arnir væru hins vegar svo lágir og á því yrði að
taka.
Víðtæk áhrif af verkfalli
Vernharð sagði að kæmi til verkfalls myndi
starfsemi eldvarnaeftirlits falla niður, engar út-
tektir yrðu gerðar og allt eftirlit með bygginga-
framkvæmdum myndi stöðvast. Verkfall gæti
haft áhrif á rekstur Reykjavíkurflugvallar. Þá
myndu allir almennir sjúkraflutningar leggjast
af. En allri neyðarþjónustu yrði sinnt.
Slökkviliðsmenn vísa kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara
Morgunblaðið/Ómar
Slökkviliðsmenn fjölmenntu á fund í gærkvöldi, þar sem einróma niðurstaða varð að ganga í að undirbúa atkvæðagreiðslu um verkfall.
Undirbúa verkfall sem
hæfist um miðjan mars
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
SIGURÐUR Tómas Magnússon,
settur ríkissaksóknari í Baugsmál-
inu, sagði við flutning málsins fyrir
héraðsdómi í gær að því er varðar
ákæru fyrir brot gegn almennum
hegningarlögum og lögum um árs-
reikninga, að tveim fyrrverandi end-
urskoðendum Baugs, sem sæta
ákæru, hefði borið að spyrna við fót-
um sem sérfræðingar vegna um-
deildra lána til félaga tengdra Baugi,
þ.e. Gaums og Fjárfars, stjórnar-
manna og fleiri.
Ákærðu Jón Ásgeir Jóhannesson
og Tryggvi Jónsson hefðu vísvitandi
fært lán til félaga, sem voru tengd
Baugi, ranglega í ársreikningi og
leynt þeim fyrir stjórn Baugs. Lánin
hefðu verið falin undir liðnum aðrar
skammtímakröfur án viðunandi skýr-
inga.
Sækjandi sagði að endurskoðend-
urnir hefðu átt að gera athugasemdir
um að skýringar vegna lánanna
þyrftu að koma fram samkvæmt árs-
reikningslögum. Þeir ættu að endur-
skoða reikninga félagsins en ekki
taka við fyrirmælum frá yfirmönnum
þess. Hins vegar hefði upplýsingum
vísvitandi verið haldið leyndum. End-
urskoðendurnir hefðu nánast verið
framlenging á bókhaldsdeild Baugs,
misst hlutleysi sitt og e.t.v. verið háð-
ir vilja stjórnenda. Sagði sækjandinn
að engu varðaði hvort tjón hefði orðið
vegna þessara lánaviðskipta, skulda-
staða Gaums og Fjárfars hefði verið
sveipuð leynd sem væri refsivert. Tók
hann fram að refsing vegna brotanna
gæti numið allt að sex ára fangelsi.
Ósmekkleg athugasemd
Verjendur ákærðu höfnuðu því
með öllu að endurskoðendurnir hefðu
verið háðir Baugi, og sagði Þórunn
Guðmundsdóttir, verjandi endur-
skoðendanna, að athugasemd sak-
sóknara hefði verið ósmekkleg og
með henni væri vegið að starfsheiðri
þeirra.
Verjendur vísuðu til skýrslu sem
endurskoðunarfyrirtækið Price-
waterhouseCoopers vann fyrir þá og
sögðu að samkvæmt því sem þar
kæmi fram hefði ekkert verið gert við
vinnslu ársreikninga Baugs sem ekki
samrýmdist góðri endurskoðunar-
venju.
Endurskoðendurnir hefðu
átt að spyrna við fótum
AÐALMEÐFERÐ Baugsmálsins,
sem hófst á mánudag, lauk í gær-
kvöldi. Fjölmörg vitni voru leidd fyr-
ir dóminn og verjendur, saksóknari
og dómarar sátu við frá morgni og
oft langt fram eftir degi. Við upphaf
þinghalds í gær tók Pétur Guð-
geirsson héraðsdómari fram að mál-
flutningur Sigurðar Tómasar Magn-
ússonar, setts saksóknara í málinu,
yrði tekinn upp þar sem dómarar
væru orðnir þreyttir. Upptakan
myndi tryggja að allt sem fram
kæmi væri tiltækt. Málflutningur
Sigurðar tók tæpar þrjár klukku-
stundir. Málflutningur verjendanna
stóð yfir á fimmtu klukkustund.
Dómarar þreyttir
87 MILLJÓNUM kr. verður varið í aukið
umferðareftirlit lögreglu á þjóðvegum
landsins í ár samkvæmt nýjum samningi
samgönguráðuneytis, Umferðarstofu og
Ríkislögreglustjóra. Í samningnum er m.a.
kveðið á um aukið eftirlit lögreglu með
hraðakstri, bílbeltanotkun, akstri undir
áhrifum áfengis og fíkniefna. Mun aukið
umferðareftirlit lögreglunnar verða á þjóð-
vegum landsins og ná yfir tímabilið frá maí
fram í september, en áfengiseftirlitið mun
fara fram allt árið, hvar sem er á landinu.
Í fyrrasumar var gerður samskonar
samningur milli Umferðarstofu og Ríkis-
lögreglustjóra sem þótt hefur gefa það góða
raun að ástæða sé til að halda samstarfinu
áfram. | 26
87 milljónum
varið í aukið
eftirlit á vegum
STÚLKAN sem varð fyrir bíl á Bæjarbraut
í Garðabæ hinn 15. febrúar lést í gær á gjör-
gæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir
átta daga legu. Hafði henni verið haldið sof-
andi í öndunarvél að loknum aðgerðum eftir
slysið. Stúlkan, sem var fimmtán ára gömul,
var fótgangandi á leið yfir götuna á gang-
braut þegar ekið var á hana.
Ekki er hægt að birta nafn hinnar látnu
að svo stöddu.
Látin eftir slys
á Bæjarbraut
LÖGREGLAN í Reykjavík lagði í gærdag
hald á umtalsvert magn fíkniefna sem fund-
ust falin í nágrenni höfuðborgarinnar. Að
sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkni-
efnadeildar lögreglunnar, er málið nýtil-
komið, á viðkvæmu stigi og því ekki hægt að
veita neinar upplýsingar á þessari stundu.
Hann segir rannsókn standa yfir en getur
ekki staðfest að einhver liggi undir grun.
Ljóst er að enginn hefur verið handtekinn í
tengslum við fundinn, enn sem komið er.
Ekki liggur fyrir hvers konar efni um ræðir
né hvert heildarmagnið er.
Fíkniefni fundust
í nágrenni
Reykjavíkur
♦♦♦
♦♦♦
Baugsmálið | 10 – 11