Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 69. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
frá
aðra leið
Reykjavík Oslo
Kr. 8.000
www.flysas.is
Aðrir áfangastaðir í Noregi einnig á frábæru verði!
Skattar og flugvallargjöld innifalin. Flug hefst 27. mars.
Sími fjarsölu: 588 3600.
frá
aðra leið
Reykjavík Bergen
Kr. 9.500
Ferill Erlings
spannar 60 ár
Spilaði fjögurra ára á fyrstu
tónleikunum | Menning og Lesbók
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Um ljóð Gyrðis Elíassonar Um tvítyngi og blendingsmál
Börn | Sniðugar systur Teikningar Verðlaunaleikur Uppáhaldsísinn
Íþróttir | Klinsmann með eigin áætlanir Markakóngurinn styður Arsenal
EF nýsköpunarfyrirtækjum eins og CCP væri
boðið upp á sams konar skattaafslætti og kjör
og stóriðjunni væri ekkert því til fyrirstöðu að
CCP starfaði á Sauðárkróki eða þess vegna
Húsavík. Þetta kom fram í máli Reynis Harð-
arsonar, sköpunarstjórnanda og eins stofn-
enda fyrirtækisins CCP, sem framleiðir EVE-
Online tölvuleikinn. Sagði Reynir stóriðju-
stefnu stjórnvalda kosta fyrirtæki sitt um-
talsverðar tekjur, en kostnaður þess væri allur
innlendur og tekjurnar nær allar erlendis frá,
í dollurum og evrum. | 6
Morgunblaðið/RAX
Gætu starfað á Sauðárkróki eða Húsavík
Bangkok. AP. | Thaksin
Shinawatra, forsætis-
ráðherra Taílands, hef-
ur átt undir högg að
sækja upp á síðkastið,
hann hefur verið sak-
aður um spillingu og af-
sagnar hans verið kraf-
ist. Ástandið í taílensk-
um stjórnmálum tók
hins vegar á sig glæ-
nýja mynd í gær þegar
Thaksin, sem rauf nýverið þing og boðaði
til kosninga, sakaði andstæðinga sína um
að beita yfirnáttúrulegum kröftum til að
skaða hann.
„Þeir hafa beitt öllum brögðum til að
fella mig, þ.m.t. svartagaldri og hinu yf-
irnáttúrulega,“ sagði Thaksin á fundi með
embættismönnum í forsætisráðuneytinu.
Telur hann stjórnarandstæðinga nú hafa
gengið of langt. Fullyrti Thaksin að helstu
andstæðingar hans hefðu m.a. notað ljós-
myndir af honum og vúdú-dúkkur, í því
skyni að hneppa hann í álög og valda hon-
um óláni.
Thaksin, sem sjálfur er í hópi þeirra
fjölmörgu Taílendinga sem mikla trú hafa
á stjörnuspeki og yfirnáttúrulegum kröft-
um ýmiss konar, var þó hvergi banginn.
„Hafið ekki áhyggjur,“ sagði hann við
undirmenn sína, „ég er vel birgur af töfra-
gripum og ýmsum búdda-verndargripum
sem verja mig fyrir galdri þeirra.“
Thaksin
Shinawatra
Segir and-
stæðinga beita
svartagaldri
Washington. AFP. |
George W. Bush Banda-
ríkjaforseti harmaði í
gær að ríkisfyrirtæki í
Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, Dubai
Ports World, skyldi hafa
neyðst til að segja sig frá
rekstri hafna í Banda-
ríkjunum, sem fyrirtæk-
ið hafði tekið yfir með
kaupum á bresku fyrirtæki. Sagði hann að
niðurstaðan í þessu máli sendi röng skila-
boð til bandalagsþjóða Bandaríkjanna.
DP World greindi frá því í fyrrakvöld að
fyrirtækið myndi ekki taka yfir rekstur
hafna í sex borgum í Bandaríkjunum í kjöl-
far þess að þingmenn snerust gegn sam-
komulagi þar að lútandi á þeirri forsendu að
það kynni að ógna öryggi Bandaríkjanna.
Bush Bandaríkjaforseti hafði lagt bless-
un sína yfir samkomulagið, sagði það enga
hættu skapa, en í vikunni varð ljóst að þing-
ið ætlaði ekki að gefa sig í þessu máli.
„Ég hef áhyggjur af því hvers konar
skilaboð þetta sendir til vina okkar og
bandamanna í heiminum, einkum og sér í
lagi í Mið-Austurlöndum,“ sagði Bush í
gær. „Til að sigra í hryðjuverkastríðinu
verðum við að efla samband okkar og
styrkja vináttu okkar við hófsöm arabaríki í
Mið-Austurlöndum.“
Kallaði Bush Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin „staðfastan bandamann í hryðju-
verkastríðinu“ og benti á að í Dubai væru
þjónustuð fleiri bandarísk herskip en nokk-
urs staðar annars staðar, þ.e. utan Banda-
ríkjanna.
Sendir vina-
þjóðum röng
skilaboð
George W. Bush
SKOÐA þarf hvort og þá að hvaða
marki einstaklingum verði heimilt
að greiða aukalega til að fá fyrr
þjónustu eða viðbótarþjónustu inn-
an heilbrigðiskerfisins, án þess að
slíkt leiði til lakari þjónustu fyrir
aðra. Þetta er ein þeirra leiða sem
kanna þarf til að mæta vaxandi
fjárþörf heilbrigðiskerfisins og
fjallað er um í skýrslu nefndar heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
um endurskilgreiningu verksviða
innan heilbrigðisþjónustunnar.
„Við þurfum að horfa til aukinn-
ar fjárþarfar sem allir sjá að verður
í heilbrigðiskerfinu,“ segir Jónína
Bjartmarz, formaður nefndarinn-
ar. „Ætlum við að greiða hana með
hærri þjónustugjöldum, ætlum við
að hækka framlög ríkisins eða ætl-
um við að leita annarra leiða til að
ná fjármagni frá þeim sem geta
fullkomlega borgað fullt verð fyrir
þjónustuna? [...] Ef það kemur ekki
niður á öðrum, að þeir fái ekki lak-
ari þjónustu, eigum við að huga að
þessu.“
Skýrslan var kynnt á fjölmennu
málþingi í gær ásamt drögum að
frumvarpi til nýrra laga um heil-
brigðisþjónustu þar sem m.a. er
lagt til að landinu verði skipt í heil-
brigðisumdæmi, mun stærri en nú
er, og hlutverk heilbrigðisstofnana
og samstarf þeirra á milli skil-
greint. Siv Friðleifsdóttir heil-
brigðisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að hún teldi ákjós-
anlegt að frumvarpið yrði lagt fram
til skoðunar á yfirstandandi þingi.
Breyta fjármögnun í áföngum
Í skýrslunni Hver gerir hvað í
heilbrigðisþjónustunni? er lagt til
að fjármögnun sjúkrahúsþjónustu
verði breytt í áföngum. Greiðslur
verði að hluta til í formi fastra fjár-
veitinga og að hluta til verktengdar
og tengdar gæðum. Nefndin legg-
ur til að samningar um kaup á allri
heilbrigðisþjónustu verði á einni
hendi innan stjórnsýslunnar og að
hlutverk kaupanda og seljanda
verði aðskilið. Jónína segir að t.d.
megi hugsa sér að samninganefnd
heilbrigðisráðuneytisins fái meira
sjálfstæði og sjái um alla samn-
ingsgerð fyrir hönd ráðuneytisins.
Þá leggur nefndin til að þverfag-
leg nefnd eða stofnun óháðra aðila,
verði stofnuð, kaupanda heilbrigð-
isþjónustunnar og öðrum til ráð-
gjafar.
Hærri gjöld eða auka-
greiðsla fyrir forgang?
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Skoða þarf allar leiðir til að mæta vaxandi fjárþörf í heilbrigðisþjónustu
Nauðsynlegt að skoða | 38
ÖRN Arnarson verður meðal keppenda á heims-
meistaramótinu í sundi í 25 metra laug, sem
fram fer í Sjanghæ í Kína í byrjun apríl, aðeins
tæpum fimm mánuðum eftir að hann hneig nið-
ur eftir keppni í Laugardalslauginni. Þá upp-
götvaðist meðfæddur hjartagalli og Örn fór í
aðgerð sem að hans sögn heppnaðist afar vel.
Hann verður eini keppandi Íslands á mótinu
en ákveður eftir Íslandsmeistaramótið, sem
fram fer um aðra helgi, í hvaða greinum hann
keppir í Sjanghæ. Sundsamband Íslands tekur
ekki þátt í kostnaði Arnar við þátttöku í mótinu, sem nemur um 400
þúsund krónum, en Sundfélag Hafnarfjarðar sér um að útvega fjár-
muni til fararinnar. | Íþróttir
Örn keppir í Sjanghæ
Örn Arnarson
♦♦♦