Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 65
Askja - náttúrufræðahús HÍ | Fulltrúa- fundur skógræktarfélaganna verður kl. 10– 12 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Ís- lands, sal N-132. Inngangur gegnt Norræna húsinu. Opin ráðstefna, Skógar í þágu lýð- heilsu, hefst í framhaldinu kl. 13 á sama stað. Bókasafn Kópavogs | Félagar úr Ásatrúar- félaginu verða með erindi um ásatrú í Bókasafni Kópavogs, einnig fyrirspurnir og umræður. Fer fram 15. mars kl. 17.15–18.15. Þetta er hluti erindaraðar um trúarbrögð. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur. Félag bókagerðarmanna | Aðalfundur AFS verður haldin að Hverfisgötu 21 kl. 13. „For- skot til framtíðar“ er heiti málþingsins sem hefst kl. 14.30. Gestur fundarins verður m.a. Tachi Cazal, forseti alþjóðasamtaka AFS. Kvenfélag Breiðholts | Kvenfélagið heldur félagsfund 14. mars kl. 20 í safnaðarheimili Breiðholtskirkju (gengið inn um suðurdyr). Umræðuefni: Samskipti ólíkra menningar- heima. Kaffiveitingar. Maður lifandi | Þorvaldur Þorsteinsson heldur fyrirlestur fyrir alla sem halda að þeir séu eitthvað. Hann fjallar um þá hug- myndakreppu sem einkennir menntun okk- ar og veltir fyrir sér hvort við séum ef til vill að misskilja hlutverk okkar í lífinu. Fyrirlest- urinn fer fram 14. mars kl. 18–19. Oddi - félagsvísindahús HÍ | Dr. Michael Rubin, fræðimaður við American Enterpr- ise Institute og ritstjóri Middle East Quar- terly, ræðir stefnu Bandaríkjastjórnar í Mið- Austurlöndum á vegum Alþjóðamálastofn- unar Háskóla Íslands á opnum fyrirlestri 13. mars kl. 12.15 í stofu 101 í Odda í HÍ. ReykjavíkurAkademían | Hallfríður Þór- arinsdóttir heldur fyrirlestur kl. 12–14: Er rými í þjóðarsálinni fyrir fólk sem talar ís- lensku með hreim? Í hverju felst íslenskt þjóðerni? Geta innflytjendur orðið alvöru Íslendingar? Er íslenskukennslu fyrir inn- flytjendur nægjanlega sinnt? Salur FÍ | Ferðafélag Íslands og umhverfis- og náttúrverndarsamtök landsins halda ráðstefnu til að heiðurs Hjörleifi Guttorms- syni sem nýlega varð sjötugur. Þar verður fjallað um óbyggðir Íslands, alþjóðlegt sam- starf og náttúruvernd á Norðurskautinu. Ráðstefnan verður 25. mars kl. 13–17. Styrkur | Fundur í Skógarhlíð 8 þann 14. mars kl. 20. Dagskrá: Reykingar og lungna- krabbamein. Sigríður Ólína Haraldsdóttir lungnalæknir ræðir um reykingar og Halla Skúladóttir krabbameinslæknir ræðir um lungnakrabbamein. Kaffi. Fréttir og tilkynningar Ferðafélagið Útivist | Jeppaferð á Eyja- fjallajökul – Mýrdalsjökul verður 11.–12. mars, brottför frá Hvolsvelli kl. 10. Þátttaka er háð samþykki fararstjóra. VHF-talstöð er skilyrði í allar vetrarferðir. Félagsmenn geta fengið Útivistarrásina. Einnig er hægt að leigja talstöðvar á skrifstofunni. GA-fundir| Er spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstandendur? Hægt er að hringja í GA- samtökin (Gamblers Anonymous) í síma 698 3888. Samtök sykursjúkra | Samtök sykursjúkra halda fræðslufund fyrir sykursjúka og að- standendur þeirra kl. 14 í fundarsal Heil- brigðisstofnunar Austurlands (HSA), Laug- arási 17, Egilsstöðum. Gengið inn hjá sjúkraþjálfun. Allir velkomnir. Frístundir og námskeið Mímir - símenntun ehf. | Námskeið um Kenýa í samvinnu Mímis og Úrvals-Útsýnar verður haldið 15. og 22. mars kl. 20–22. Á námskeiðinu verður fjallað um menningu, sögu og dýralíf Kenýa. Umsjón með nám- skeiðinu hafa Elín Þorgeirsdóttir og Borgar Þorsteinsson. Skráning í s. 580 1800 eða á www.mimir.is. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 65 MENNING Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Bergmál líknar- og vinafélag | Berg- mál verður með opið hús í Blindra- heimilinu Hamrahlíð 17, 2. hæð, 12. mars kl. 16. Gestir koma í heimsókn, m.a. sr. Sigfús B. Ingvason og Bar- dukha. Sigmundur Júlíusson leikur undir fjöldasöng. Matur að hætti Bergmáls, veislustjóri verður Kolbrún Karlsdóttir. Tilkynna þarf þátttöku hjá eftirtöldum: Karl Vignir s. 552 1567, 864 4070 og Hólmfríður 862 8487. Félag eldri borgara, Reykjavík | Snúður og Snælda sýnir leikritið „Glæpi og góðverk“ í Iðnó 12. mars kl. 14. Miðapantanir í Iðnó s. 572 9700. Einnig eru seldir miðar við inngang- inn. Með þessari leiksýningu hefst af- mælisvika Félags eldri borgara í Reykjavík. Dansleikur sunnudags- kvöld kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gönguhópur byrjar í dag, lagt af stað frá Kirkjuhvolskjallaranum kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Opnar list- sýningar Judithar Júlíusd. og Sigrún- ar Björgvins, listakonurnar kl. 13–16. Strætó S4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg. SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verður í Ásgarði Stangarhyl 4. Spila- mennskan hefst kl. 20. Kiddi Bjarna leikur fyrir dansi fram eftir nóttu. Vesturgata 7 | Farið verður á leik- sýningu hjá leikfélaginu Snúði og Snældu í Iðnó að sjá leikritið Glæpir og góðverk 15. mars kl. 13.30. Skrán- ing í síma 535 2740. Kirkjustarf Áskirkja | Safnaðarfélagið býður til kaffihlaðborðs kl. 15, til eflingar safn- aðarstarfi eftir guðsþjónustu sem hefst kl. 14. Kirkjubíllinn ekur: Klepps- veg, Dalbraut, Brúnaveg v/Hrafnistu, Norðurbrún og Austurbrún. Grensáskirkja | Aðalfundur Kven- félagsins verður haldinn í safn- aðarheimilinu 13. mars kl. 20. Léttur málsverður og venjuleg aðalfund- arstörf. KFUM og KFUK | Samkoma kl. 20.30. „Verið ætíð reiðubúin að svara hverjum manni.“ Ræðumaður er Ragnar Gunnarsson. Vitnisburð hefur Þráinn Haraldsson. „Trú Dase- netsmanna“, kristniboðsþáttur. Keith Reed syngur. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs heldur tónleika í Háskólabíói sunnudaginn 12. mars kl. 14. Þetta eru umfangsmestu tón- leikar hljómsveitarinnar á starfs- árinu þar sem um 140 ungmenni koma fram og sýna afrakstur vinnu sinnar í vetur. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning tón- leikanna með vikulegum æfingum ásamt æfingabúðaferðum enda mikill metnaður í unga fólkinu að standa sig vel þegar á hólminn er komið. Ýmis skemmtileg tónverk verða á efnisskrá tónleikanna og allir geta þar fundið eitthvað við sitt hæfi. Flutt verður tónlist úr kvikmyndum á borð við Star Wars og Pirates Of The Caribbean, hefðbundin lúðrasveitatónlist eins og Pomp and Circumstance og English Folk Song Suite, innlend og erlend þjóðlög og klassískar perlur eins og Karnival dýranna. Á sunnudaginn koma krakkarnir fram í þremur hljómsveitum sem skipt er í eftir aldri og getu, þeir yngstu eru 9 ára gamlir en þeir elstu komnir um tvítugt. Skólahljómsveit Kópavogs er ein virkasta skólalúðrasveit lands- ins og heldur árlega um 80–90 tónleika við hin ýmsu tækifæri, auk þess að fara í tónleikaferðir bæði innanlands og utan. Síðasta sumar fór elsta sveitin í tónleika- ferð til Noregs og Svíþjóðar og kórónaði góða frammistöðu þar með því að vinna frækinn sigur í norrænni hljómsveitakeppni í Gautaborg. Eftir tónleikana munu sveitirnar fara í hljóðver og taka upp efni af tónleikunum fyrir geisladisk sem gefinn verður út á næsta ári, á 40 ára afmæli hljómsveitarinnar. Stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs er Össur Geirsson. Morgunblaðið/Golli Um 140 krakkar koma fram á vortónleikum Skólahljómsveitar Kópavogs. Blásið í lúðra Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT unga fólksins heldur tónleika í Kirkju- lundi í Keflavík á morgun, sunnu- daginn 12. mars, kl. 17 og í Nes- kirkju mánudagskvöld 13. mars kl. 20. Á efnisskránni eru Langnætti eftir Jón Nordal, hornkonsert nr. 1 í Es-dúr eftir Richard Strauss og sinfónía nr. 7 eftir Ludwig van Beethoven. Einleikari með hljómsveitinni er Sturlaugur Jón Björnsson en hann hefur nýlokið meistaranámi í horn- leik í Boston. Hljómsveitin leikur undir stjórn Gunnsteins Ólafs- sonar. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins er skipuð úrvals nemendum af höf- uðborgarsvæðinu. Hún var stofnuð haustið 2004 og eru tónleikarnir nú fimmta verkefni hennar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sinfóníuhljómsveit unga fólksins er skipuð úrvalsnemendum og leikur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Ungfónían í Keflavík og í Neskirkju SVEINBJÖRG Hallgrímsdóttir sýnir nú nokkurn fjölda stórra tré- rista í baksalnum hjá Gallerí Fold, sömuleiðis má sjá tréristur af sama toga í Gallerí Svartfugli sem hún starfrækir á Akureyri. Myndefni sitt sækir hún að nokkru leyti til náttúr- unnar, fuglar og tré eru þar fyr- irferðarmest og litirnir vetrarlegir, gráir og bláir með nokkrum und- antekningum. Nafngiftirnar segja til um stemningu þessara verka, Vetr- arsinfónía, Vængjuð nótt, Vetrartár. Heildaryfirbragð þeirra er þokka- fullt og mýktin ráðandi í línum og lit- um. Sveinbjörg sækir til náttúrunn- ar en þó er ekki raunsæi ríkjandi í línum, formum eða litum heldur er líkast því að táknmyndir fugla, trjáa, snjókorna og gróðurs séu notuð til að skapa náttúrustemningar. Inn á milli lifna þó línurnar og teikningin nær að gæða myndirnar lífi sem snertir áhorfandann dýpra en ella. Sveinbjörg hefur ágæt tök á fíngerð- ari þáttum mynda sinna en ekki myndi saka að skapa aukna spennu með meiri breidd bæði í heild- arnálgun við myndefni og í vinnu- brögðum innan hverrar myndar. Litróf hennar er mjög varkárt en þar sem gulir og appelsínugulir litir gægjast inn sést að opnara litróf er ekki slæmur kostur fyrir þessi verk. Sveinbjörg nær einnig að skapa áferðarfallega hrynjandi og hreyf- ingu í myndunum. Það dugar þó tæpast til að skapa sterka og per- sónulega sýningu, bæði vinnuaðferð, myndmál og myndefni eru of kunn- ugleg til þess. Aukin áhersla á teikn- inguna sjálfa og undursamleg og dásamlega flókin og fjölbreytt form náttúrunnar gæti að mínu mati skapað áhugaverðari og sjónrænt meira spennandi verk. Sveinbjörg býr augljóslega yfir hæfileikum sem óhætt er að virkja enn frekar og gera meiri kröfur til. En tréristan er þakklátur miðill í sjálfu sér og býr yfir hlýju og lífi sem myndir Svein- bjargar njóta góðs af. Stærð þeirra gæðir þær meiri krafti en annars, það er ánægjulegt að sjá verk unnin í þennan miðil og forvitnilegt að sjá frekara framhald á tréristunni hjá Sveinbjörgu. Fuglar í tré Eitt verka Sveinbjargar Hallgríms- dóttur í Galleríi Fold. MYNDLIST Gallerí Fold Til 12. mars. Opið á verslunartíma. Tréristur, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir Ragna Sigurðardóttir SÝNINGIN Náttúruafl hefur verið opnuð í Listasafni Reykja- nesbæjar. Náttúra Íslands hef- ur verið viðfangsefni margra listamanna í íslenskri myndlist á 20. öld. Hún hefur verið upp- spretta mismunandi tjáning- arforms innan myndlistarinnar og hefur átt ríkan þátt í að skapa viss einkenni innan ís- lenskrar listasögu. Á sýning- unni getur að líta marga ólíka tjáningarmiðla, málverk og skúlptúra, vefnað og graf- íkmyndir eftir íslenskar konur, þær Ásgerði Búadóttur, Bryn- hildi Þorgeirsdóttur, Guðmundu Andrésdóttur, Hafdísi Ólafs- dóttur, Hildi Hákonardóttur, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Ragnheiði Jóns- dóttur Ream, Sigrid Valt- ingojer, Valgerði Hauksdóttur og Þorbjörgu Höskuldsdóttur. Verkin á sýningunni eru öll unnin á seinni hluta 20. aldar og er ætlunin með þessari sýningu að miðla náttúruhrifum og kröftum íslenskrar náttúru. Verkin eru í eigu Listasafns Ís- lands og sýningarstjóri er Harpa Þórsdóttir. Sýningin er í sýningarsal Listasafns Reykja- nesbæjar í Duushúsum. Hún er opin alla daga frá 13 til 17.30 og stendur til 23. apríl. Guðmunda Andrésdóttir: Glæður. Náttúruafl íslenskra kvenna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.