Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heppnir fá miðatil Evrópu fyrir tvo
10
Það fær enginn að vita hverju þú svarar ef þú tekur þátt í
Launakönnun VR og Fyrirtæki ársins. Niðurstöðurnar eru
hinsvegar öflugt vopn sem mun gagnast öllum félögum VR
í baráttu þeirra fyrir betri kjörum og lífsgæðum.
Þín þátttaka skiptir miklu máli.
LAUNAKÖNNUN VR og FYRIRTÆKI ÁRSINS
Skilafresturinn hefur verið framlengdur til 14. mars.
Svona Magnús minn, hérna þurfum við að hafa ,,litla manninn“, einhvern lítinn sem nær ekki að sjá
upp fyrir borðbrúnina.
Þinghaldið á Alþingiþessa vikuna hefurfarið úr skorðum
vegna deilna um frumvarp
iðnaðarráðherra til nýrra
vatnalaga. Nýir þingfundir
hafa verið settir á, þrátt
fyrir ítrekuð mótmæli
stjórnarandstöðunnar;
tveir kvöldfundir voru
haldnir í vikunni, þar sem
vatnalagafrumvarpið var
rætt, þingfundi var bætt
við dagskrá þingsins í gær
og annar þingfundur hefur
verið boðaður í dag.
Birkir J. Jónsson, þing-
maður Framsóknarflokks og for-
maður iðnaðarnefndar þingsins,
segir að stjórnarflokkarnir leggi
áherslu á að frumvarpið verði af-
greitt á þessu vorþingi. Stjórnar-
andstæðingar leggjast hins vegar
gegn því; þeir vilja að frumvarpinu
verði vísað frá. Þeir segja að vatn
sé sameiginleg auðlind. Með frum-
varpinu sé hins vegar verið að festa
í lög einkaeignarrétt á því. Stjórn-
arliðar vísa því á bug. Þeir segja að
dómaframkvæmdir staðfesti að
eignarrétturinn á vatni sé skv. nú-
gildandi lögum þegar í hendi land-
eigenda. Frumvarpið feli því ekki í
sér neina efnisbreytingu á núgild-
andi lögum; aðeins formbreytingu.
Frumvarpinu er ætlað að leysa
af hólmi vatnalög frá árinu 1923. Í
athugasemdum frumvarpsins seg-
ir að endurskoðun vatnalaganna
hafi hafist árið 2001, að frumkvæði
iðnaðarráðherra. Í fylgiskjali
frumvarpsins segir m.a. að frum-
varpið hafi það að markmiði að
setja skýrari lagaákvæði en nú
gilda um eignarhald á vatni, skyn-
samlega stjórnun vatnamála og
hagkvæma og sjálfbæra nýtingu
vatns.
Frumvarpið var fyrst lagt fram
á síðasta löggjafarþingi, en hlaut
ekki afgreiðslu. Það var svo lagt
fram að nýju, eitthvað endurbætt,
síðastliðið haust. Skömmu síðar fór
það fyrir fyrstu umræðu og að því
búnu til umfjöllunar í iðnaðarnefnd
þingsins. Nefndin klofnaði í af-
stöðu sinni til frumvarpsins; meiri-
hluti nefndarinnar mælir með því
að frumvarpið verði samþykkt með
örfáum breytingum en minnihlut-
inn leggur til að frumvarpinu verði
vísað frá.
Meirihlutinn leggur m.a. áherslu
á, í nefndaráliti sínu, að um form-
breytingu sé að ræða „en ekki efn-
islega breytingu á inntaki eignar-
ráða fasteignareigenda yfir vatni,“
eins og segir í álitinu. „Með setn-
ingu vatnalaga nr. 15/1923 var tek-
ið af skarið um það að landeigend-
ur ættu einir rétt til að hagnýta
það vatn sem á landareign þeirra
finnst eða um hana rennur, þ.m.t.
orkunýtingarrétt. Réttarfram-
kvæmdin hefur og til fulls viður-
kennt eignarrétt landeigenda að
vatnsorku, m.a. þegar vatnsföll
hafa verið tekin til virkjunar.
Vatnsréttindi eru þannig þáttur í
eignarrétti landeigenda og njóta
verndar skv. 72. gr. stjórnarskrár-
innar. Landeigendur verða því
ekki sviptir þessum rétti bóta-
laust.“
Minnihlutinn hefur hins vegar
efasemdir um að einungis sé um
formbreytingu að ræða. Hann seg-
ir m.a. í nefndaráliti sínu: „Í fyrstu
grein frumvarpsins segir: „Mark-
mið laga þessara er skýrt eignar-
hald á vatni.“ Það verður að telja
vafasamt orðaval ef hér á fyrst og
fremst að vera um formbreytingu
að ræða [...]“. Minnihlutinn segir
einnig m.a. í áliti sínu að umrædd
lagasetning, og þar með afnám
gildandi vatnalaga, sé ekki tíma-
bær á meðan ekki liggi fyrir frum-
varp um jarðrænar auðlindir og
frumvarp á grundvelli vatnatil-
skipunar Evrópusambandsins
(ESB).
Önnur umræða um frumvarpið
hófst á mánudag. Umræðan hélt
síðan áfram allan þriðjudaginn,
fram á kvöld og fram yfir miðnætti,
á miðvikudagskvöld og fram yfir
miðnætti og síðan í gær. Þegar
henni lauk um klukkan fjögur voru
fjórtán þingmenn enn á mælenda-
skrá. Henni verður framhaldið í
dag.
Forseti þingsins, Sólveig Pét-
ursdóttir, og formenn þingflokk-
anna hafa fundað nokkrum sinnum
í vikunni til að reyna að ná sátt um
framhald málsins, en án árangurs.
Sólveig hefur m.a. upplýst að hún
hafi boðist til þess að fresta um-
ræðunni um frumvarpið fram yfir
helgi, gegn því að henni ljúki á
mánudag eða þriðjudag. Stjórnar-
andstæðingar hafa ekki fallist á
það. Þeir hafa haldið fast við þá
kröfu sína að frumvarpinu verði
vísað frá. Þeir ítrekuðu þá ósk í
upphafi þingfundar á Alþingi í
gær. Þeir fóru fram á að afgreiðsla
frumvarpsins yrði að minnsta kosti
frestað þar til fyrir lægi frumvarp
sem byggðist á vatnatilskipun
ESB.
Síðarnefnda frumvarpið fjallaði
um nýtingu vatns og vatnsvernd
og því væri eðlilegra að ræða þessi
frumvörp samhliða. Með slíkri
málsmeðferð væri hægt að „ná sátt
um þetta erfiða mál“, sagði Össur
Skarphéðinsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, er hann hóf um-
ræðuna í gærmorgun. Í kjölfarið
hófust langar umræður þar sem
stjórnarliðar sökuðu stjórnarand-
stöðu um málþóf, en stjórnarand-
stæðingar sögðust þvert á móti
hafa barist gegn frumvarpinu á
málefnalegum grunni.
Fréttaskýring | Deilt um vatnalagafrumvarp
Þinghald úr
skorðum
Stjórnarandstæðingar segja að verið sé
að festa í lög einkaeignarrétt á vatni
Rætt var um frumvarpið á kvöldfundum.
Önnur umræða hefur stað-
ið yfir í 22 klukkustundir
Annarri umræðu um frum-
varp iðnaðarráðherra til nýrra
vatnalaga verður framhaldið í
dag. Þingfundur hefst kl. ellefu.
Sólveig Pétursdóttir, forseti
þingsins, sagði í gær að fyrsta
umræða um frumvarpið hefði
tekið sex klukkustundir. Önnur
umræða hefur nú staðið yfir í
u.þ.b. 22 stundir. Þegar um-
ræðunni lauk klukkan fjögur í
gær voru enn fjórtán þingmenn á
mælendaskrá. Stjórnarliðar saka
stjórnarandstöðu um málþóf.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is