Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 32
HVERFIÐ 101 í Reykjavík er m.a. þekkt fyrir djamm á kvöldin og tal- að er um að borgin vakni jafnvel ekki til lífsins fyrr en eftir miðnætti þegar skemmtanafíklar fara á stjá. En það er líka líf í borginni á dag- inn þrátt fyrir lárétta rigningu, haglél og rok. Mannlífið er fjöl- skrúðugt og gaman er að fara niður í bæ, skoða fólkið og sjá þá í leið- inni hverju það klæðist. Hettupeysur og stuttir jakkar Götutískan í Reykjavík er svo sannarlega margbreytileg og ljóst er að Íslendingar eru ekk- ert endilega allir undir sama hatti. Þegar rölt er um götur Reykjavíkur sést að Íslend- ingar eru sjálfstæðir í hugsun en fylgjast samt með hvað er í gangi í tískuheiminum. Hjá strákum í 101 eru það að- allega frekar víðar og þægi- legar gallabuxur en hjá stelpum má ýmist sjá þess háttar snið eða þá alveg þröngar gallabuxur sem er troðið ofan í stígvél, hvort sem þau eru háhæluð eða flat- botna. Einstaka stelpa er þó líka í pilsi og eru það þá hnésíð og eilítið víð pils og helst með ein- hverju mynstri. Strigaskór eru áberandi en þó líka gönguskór og hefur veðráttan ábyggilega einhver áhrif á það. Talandi um hana þá eru slæður, treflar, húfur, vettlingar og eyrnabönd líka mjög vinsæl en þá helst í skærum litum eins og græn- um og appelsínugulum og eru þeir þá notaðir til að flikka upp á heild- arsettið. En þessir litir ásamt rauð- um, bláum og svörtum eru litirnir sem virðast hvað vinsælastir en þeir eru líka meðal tískulitanna í vetur. Við afslappað útlit bæði stráka og stelpna eru hettupeysur innanundir stuttum jökkum mjög vinsælar og sjást strákar líka oft með stórar sendlatöskur. Stelpur eru líka með hliðartöskur sem eru í stærra lagi og eru þær aðallega úr taui eða mjúku leðri. Strákarnir eru flestir í leðurjökkum sem ná niður að mjaðmabeini eða þá í vindjökkum. En þó má sjá einstaka stráka í síð- ari jökkum sem eru þá í hern- aðarstíl. Stelpur eru hins vegar með meiri breidd í jakkavali. Sjást þær í stuttum vindjökkum eða leð- urjökkum, mjaðmasíðum jökkum, eða kápum sem ná niður fyrir rass. Stuttu jakkarnir eru í þrengri kant- inum en misjafnt snið er á kápunum og síðu jökkunum þó að þröngt snið virðist vera hvað vinsælast. Loks eru pelsar áberandi og jakkar með loðkraga. Íslensku þröngu lopapeysurnar eru enn vin- sælar og fer maður ekki inn á kaffi- hús án þess að sjá eina slíka. En einnig sjást einlitar peysur, þá sér- staklega í björtum litum eins og rauðum eða grænum eða þá þver- röndóttar þægilegar peysur, bæði í skærum litum og eilítið muskaðar. 101 týpan virðist ekki vera vöru- merkjatrygg heldur röltir hún frek- ar um og skoðar hvað sé í boði í hverri búð. Helst verslar hún þó í búðum með notuð föt eins og hjálp- ræðishernum, kolaportinu eða á E- bay. Allt gert til að minni líkur séu á að einhver annar eigi sams konar sett af fötum. CAT-kassinn er kennsluefni í hug- rænni tilfinningalegri þjálfun fyrir börn og unglinga með röskun á ein- hverfurófi og þá sem eiga í erf- iðleikum með að tjá sig. Kassinn er sérstaklega þróaður til að auðvelda og styðja samræður á einfaldan og myndrænan hátt. „Þetta er lífsleikniefni, sem þrír þekktir sálfræðingar hafa unnið og þróað undanfarin ár í Danmörku og reyndar er efnið í stöðugri þróun,“ segir Ásgerður Ólafsdóttir sérkenn- ari, en hún og Sigrún Hjartardóttir leikskólasérkennari, sem reka Ein- hverfuráðgjöfina Ás hafa þýtt efnið á íslensku. Þetta er stór mappa með handbók og kennslugögnum og hafa milli 40 og 50 íslenskir skólar og stofnanir þegar keypt kassa. Að skilja tilfinningar „Það hefur verið skortur á góðu kennsluefni fyrir börn sem eiga í erfiðleikum með að skilja og tjá til- finningar sínar,“ segir Sigrún. „Við kynntumst kassanum fyrir nokkr- um árum og sáum strax að þarna var komið mjög gagnlegt tæki til kennslu.“ Kassinn kom fyrst út á dönsku ár- ið 2002 og þegar ákveðið var að gefa hann út á fleiri tungumálum fékk íslenska að fljóta með. Þær Ásgerður og Sigrún hafa haldið námskeið og kynnt efnið fyr- ir fagfólki og foreldrum og segir Ásgerður að áhuginn sé mikill. Kassinn er hugsaður fyrir foreldra sem þurfa á nákvæmum og einföld- um verkfærum að halda í samræð- um við barnið. Hann er einnig ætlaður kennurum og öðru fagfólki sem vill byggja sam- tölin upp af fagmennsku og gera þau markvissari, ýmist til að leysa úr erfiðum að- stæðum eða til að kenna börn- unum að tjá hugsanir og til- finningar. Ekki fyrir alla Sigrún bendir á að CAT- kassinn henti ekki öllum nem- endum með raskanir á ein- hverfurófi. Börn frá fjögurra til fimm ára sem búa yfir tal- máli geta nýtt sér hann og Ás- gerður segist hafa reynt hann við kennslu unglinga á aldr- inum 16 til 20 ára, sem eru með einhverfu auk þess að vera þroskaheft. „Þetta efni hefur haft ótrúleg áhrif og hjálpað þeim mikið,“ segir hún. „Kassinn styður við samtöl og kennir þeim að skilja tilfinn- ingar. Hugmyndafræðin að baki CAT- kassanum er hugræn atferl- ismeðferð ásamt hugmyndafræði skipulagðrar kennslu,“ segir Ás- gerður og dregur fram blað með mynd af stórum hitamæli. Blaðið er notað þegar rætt er um liðna at- burði, til dæmis afmæli, skólann eða  NÁM | CAT-kassinn fyrir hugræna tilfinningalega þjálfun Morgunblaðið/Sverrir Ásgerður Ólafsdóttir sérkennari og Sig- rún Hjartardóttir leikskólasérkennari eru þýðendur kennsluefnisins CAT-kassans. Eftir Kristínu Gunnarsdóttur krgu@mbl.is Óþarfi að reiðast upp í tíu mars Daglegtlíf Trefillinn setur svip á klæðnað þessarar ungu konu. Frumleg miðbæjartíska   Hettupeysur, gallabuxur og vind- jakkar er hefðbund- inn klæðnaður hjá strákum og húfur eyrnabönd og vett- lingar í skærum lit- um lífga upp á heild- armynd stelpnanna. Stuttir jakkar, gallabuxur og hettupeysur.  GÖTUTÍSKA | 101 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.