Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÚR VERINU NAMMCO, Norður-Atlantshafs- sjávarspendýraráðið, heldur fimm- tánda ársfund sinn dagana 14. til 16. þessa mánaðar. Fundurinn verður að þessu sinni haldinn á Hótel Selfossi og setur Einar Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra samkomuna klukkan 10 á þriðjudagsmorgun. Sendinefndir frá aðildarlöndunum, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi og Noregi, munu þar fara yfir helstu verkefni ráðsins. Þau eru meðal ann- ars að vernda hvala- og selastofna í Norður-Atlantshafi og fara yfir veiði- aðferðir á þeim, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Verður þar stuðst m.a. við ráðleggingar vísindamanna. Auk aðildarlandanna verða fulltrú- ar frá ríkisstjórnum Kanada, Dan- merkur, Rússlands og Japans við- staddir auk fulltrúa ýmissa samtaka. Ársþing NAMMCO á Selfossi Grundarfjörður | Nokkur helstu sjávarútvegsfyrirtæki í Grundar- firði, Grundarfjarðarbær og Grund- arfjarðarhöfn, hafa tekið höndum saman um verkefni þar sem ætlunin er að meta stöðu og mögulegar lausnir varðandi umhverfismál fyr- irtækjanna. Meistaranemendur frá Alþjóðlegu umhverfisstofnuninni við Lundarháskóla eru nú á vorönninni að vinna verkefni með fyrirtækjun- um og munu fjórir nemendur ásamt kennara vera í Grundarfirði í lok mars. Sérstaklega er horft á fráveit- umál og lífrænan úrgang frá sjáv- arútvegsfyrirtækjunum. Þau fyrir- tæki sem aðild eiga að verkefninu eru Djúpiklettur ehf., Fisk – Seafood hf., Guðmundur Runólfsson hf., Soff- anías Cecilsson hf. og Sægarpur ehf. Ráðgjafarfyrirtækið Alta tekur þátt í mótun verkefnisins og átti að því frumkvæði. SSV þróun og ráðgjöf leggja einnig til aðstoð starfsmanns við verkefnið. Metnaður og sameiginleg sýn Að sögn Sigurborgar Kr. Hann- esdóttur starfsmanns Alta í Grund- arfirði byggist verkefnið á þeim skilningi að umhverfismálin eru sameiginlegt verkefni. Grundar- fjörður sé leiðandi byggðarlag á Vesturlandi á sviði sjávarútvegs og hafnaraðstöðu og því eigi heima- menn þá metnaðarfullu sýn að þar verði öll umgengni um auðlindir sjávar til fyrirmyndar. Sjávarútvegsfyr- irtækin vinna að umhverfismálum Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Samvinna Forystumenn fyrirtækja og stofnana eftir samningsgerð, f.v. Kristín Björg Árnadóttir, Halldóra Hreggviðsdóttir, Runólfur Guðmunds- son, Guðmundur Smári Guðundsson, Jóhann Ragnarsson, Þórður Magn- ússon, Jökull Helgason, Björg Ágústsdóttir, Sigurborg Kr. Hannesdóttir. Eftir Gunnar Kristjánsson Gleðiblús Andreu á morgun  Fyrir Andreu Gylfadóttur felst kikkið í að taka þátt í að skapa þann galdur sem tónlistin er. SKIPULAGSREGLUR eru helsta hindrunin fyrir eðlilegri samkeppni á smásölumarkaði í Bretlandi. Þær ásamt yfirburðastöðu stærstu keðj- anna á þessum markaði eru helsta áhyggjuefni Stofnunar réttlátrar verslunar (Office of Fair Traid, OFT), að því er fram kemur í breskum fjöl- miðlum. OFT er hluti af samkeppn- iseftirlitinu í Bretlandi og hefur það hlutverk að fylgjast með því að þar ríki eðlileg samkeppni. Í nóvember á síðasta ári höfðu breskir fjölmiðlar eftir Jim Dowd, þingmanni breska Verkamanna- flokksins, sem stýrði sérstakri þing- nefnd sem falið var að rannsaka stöð- una á smásölumarkaðinum þar í landi, að það þyrfti að íhuga lagasetn- ingu til að taka á yfirburðastöðu stærstu keðjanna á markaðinum. Í kjölfarið komu ýmsir fleiri fram sem tóku undir þetta sjónarmið. Þá var einnig greint frá því að OFT-stofn- unin muni íhuga hvort hún muni leggja til við Samkeppniseftirlitið í Bretlandi (Competition Commission), að rannsókn verði hafin á smásölu- markaðinum þar í landi. Það hefur OFT nú gert samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni í fyrradag. Í tilkynn- ingunni segir að OFT hafi óskað eftir því við Samkeppniseftirlitið, að rann- sókn verði hafin á smásölumarkaðin- um, með það fyrir augum að kanna hvort markaðurinn sé farinn að sýna merki um fákeppni. Fram kemur í til- kynningunni að það sé mat OFT að fyrstu merkin um fákeppni á breska smásölumarkaðinum hafi farið að koma fram á árinu 2000. Stórar keðjur hafa kvartað Í frétt á fréttavef Financial Times (FT) segir að stjórnendur smásölu- keðjanna sem hafi næstmestu og þriðju mestu markaðshlutdeildina þar í landi séu væntanlega ánægðir með fyrirhugaða rannsókn sam- keppnisyfirvalda á þessum markaði. Smásölukeðjurnar sem um ræðir eru annars vegar Asda, sem er með næstmesta markaðshlutdeild á breska smásölumarkaðinum, tæplega 17%, og Sainsbury, sem er í þriðja sæti með tæplega 16% hlutdeild. Smásölukeðjan Tesco er með mesta markaðshlutdeild, eða um 30%. Í fjórða sæti er svo Morrison með tæp- lega 12% hlutdeild. Bæði Andy Bond, forstjóri Asda, og Justin King, forstjóri Sainsbury, hafa á umliðnum mánuðum kvartað undan því að skipulagsreglur hafi hjálpað Tesco til að viðhalda yfir- burðastöðu sinni á smásölumarkaðin- um, að því er fram kemur í frétt FT. Þá segir þar að samkvæmt tilkynn- ingu OFT virðist sem stofnunin taki undir sjónarmið forstjóranna tveggja. Nýir aðilar nánast útilokaðir Breskir fjölmiðlar hafa eftir John Fingleton, forstjóra OFT, að aðal- áhyggjuefni stofnunarinnar sé að það sé nánast útilokað fyrir nýja aðila að komast inn á smásölumarkaðinn. Skipulagsreglur vegi þar þyngst, en samkvæmt þeim þurfi að sýna fram á þörfinni fyrir nýja verslun, komi óskir þar um fram. Staða hinna fjögurra stærstu sé orðin þannig að erfitt sé orðið að sýna fram á slíka þörf. Í tilkynningu OFT segir einnig að stóru keðjurnar hafi verið að sanka að sér óbyggðu landsvæði á umliðnum árum, þar sem þær geti byggt upp fleiri verslanir. Það ásamt hömlum samkvæmt skipulagsreglum virki einnig í þá áttina að minnka mögu- leika nýrra aðila til að koma inn á markaðinn. Að því er fram kemur í FT á þetta helst við um Tesco, sem hefur fjárfest mikið í lóðum allt frá miðjum síðasta áratug. Í frétt FT segir að talsmenn Tesco hafi ekki viljað tjá sig um væntanlega rannsókn samkeppnisyfirvalda. Tals- menn Asda og Sainsbury fagni henni hins vegar. Skipulagsreglur helsta hindrun fyrir samkeppni Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is Stórir Markaðshlutdeild Tesco á smásölumarkaðnum í Bretlandi er um 30% sem gerir fyrirtækið að því stærsta á sínu sviði. TOYOTA Motor Corporation (TMC), sem er móðurfyrirtæki Toyota-samsteypunnar og er í Jap- an, hefur heiðrað Toyota á Íslandi sérstaklega fyrir sölumet það sem sett var á árinu 2005. Toyota-um- boðið setti Íslandsmet í bílasölu á síðasta ári þegar seldar voru 4.697 Toyota- og Lexus-bifreiðar. Fyr- irtækið skilaði einnig sinni bestu fjárhagslegu afkomu frá upphafi. Af þessu tilefni afhentu fulltrúar Toyota í Evrópu Magnúsi Krist- inssyni, eiganda Toyota á Íslandi, forláta viðurkenningargrip fyrir hönd Katsuaki Watanabe, for- stjóra TMC í Japan, og þökkuðu á sama tíma fyrir framúrskarandi umboðsmáta fyrirtækisins fyrir Toyota- og Lexus-bifreiðar á Ís- landi. Magnús Kristinsson var að von- um ánægður með þennan heiður og hafði orð á því að þessi árangur væri að sjálfsögðu öllu starfsfólki fyrirtækisins að þakka. „Það er ekkert launungarmál að við búum yfir gríðarlega öflugum starfskosti sem veitir framúrskar- andi þjónustu og setur viðskipta- vininn ávallt í fyrsta sæti. Þessi viðurkenning frá TMC er mikilvæg staðfesting þess og hvetur okkur að sjálfsögðu til að halda áfram á sömu braut og ná jafnvel enn betri árangri en áður,“ sagði Magnús. Toyota á Íslandi heiðrað Sölumet Fulltrúar Toyota í Evrópu afhentu íslenska umboðinu viðurkenn- inguna frá móðurfélaginu, TMC, frá vinstri Axel Bervoets, Magnús Krist- insson, Guy Kerjouan og Neil Jenkins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.