Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þegar þú ert búinn að reyna allt til þess
að leysa ágreining í þínum hópi máttu
sitja hjá. Leyfðu þeim sem eru í kring-
um þig að greiða úr flækjunni sjálfir.
Ótrúlegt en satt, þeim á eftir að takast
það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautinu líður eins og það sé að elta
skottið á sjálfu sér í dag, það er ef það
hefði skott til að elta. Ef framfarir stöðv-
ast er ekki til nokkurs að reyna að berj-
ast gegn því eða ýta á eftir. Skrifaðu
hugmyndirnar niður svo þú getir farið
eftir þeim síðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hugmyndin sem tvíburinn hefur lagt á
hilluna er nú tilbúin til notkunar á ný.
Dustaðu af henni rykið, rétti tíminn er
runninn upp. Nú er við hæfi að bæta
svolitlum lit, glamúr eða almennu fjöri
við fataskápinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef krabbinn á vini tengda listum, góð-
gerðarmálum eða öðru sem tilheyrir við-
burðum er næsta víst að hann endi á ein-
hverri uppákomu. Mættu með stíl.
Ábending: Hið akademíska korter er al-
gerlega dottið úr tísku.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leikir, verðlaun eða einhvers konar
keppni kemur við sögu. Ef þú vinnur
áttu að sýna háttvísi og vera stuttorð/ur.
Hið sama á við ef þú tapar. Það má einu
gilda, því þú eignast nýjan vin eða kunn-
ingja.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fólk sem hefur þann hæfileika að koma
öðrum saman nýtur blessunar. Meyjan
er hinn mikli tengill dýrahringsins og á
að vera stolt af áhrifunum sem hún hef-
ur á líf sinna nánustu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Valkostir virðast eins og skyldur í dag.
Enda eru þeir það. En það þýðir ekki að
þú þurfir að taka allt svona hátíðlega.
Þér léttir kannski við að vita að báðir
möguleikar eiga eftir að ganga. Ef þú
velur ekkert, sérðu eftir því.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er magnaður. Áttaðu þig á
því og passaðu þig að gefa það ekki frá
þér. Ein aðferð til þess er að láta ein-
hvern annan fást við eitthvað sem þú
ættir að gera sjálfur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er enn á hinni löngu og
snúnu leið að hinni fullkomnu ást.
Óvæntar uppákomur bíða hinum megin
við blindhæðina. Búðu þig undir að finna
það sem þú ert að leita að.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Persónutöfrarnir hreinlega leka af stein-
geitinni í samskiptum við hitt kynið.
Áskorunin felst í því að nýta athyglina
með sem árangursríkustum hætti.
Leggðu sérstaklega mikið á þig fyrir vin
sem hefur stutt þig í gegnum tíðina í
kvöld.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Smáatriðin í ótilgreindu samkomulagi
eru örlítið óhagstæðari en vatnsberinn
hefði viljað. (Ok, þau eru svo miklu verri
að það er ekki einu sinni fyndið). Ekki
láta hugfallast. Samningar og óvænt
flétta er ekki óhugsandi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fólk úr fortíðinni lætur á sér kræla á ný.
Það er ekki eins og það var og hið sama
gildir um þig. Fiskurinn uppgötvar sam-
hljóm í lagi sem áður hljómaði falskt.
Haltu áfram að syngja.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í ljóni hefur sínar
eigin líflegu hugmyndir
um hvernig dagurinn á að
fara. Það ýkir aðstæður til þess að
dramatískt inntak þeirra komi í ljós. Not-
aðu tækifærið og hermdu eftir því. Ýktu
framkomuna aðeins til þess að krydda. Ef
þú tjáir þig á yfirgengilegan hátt ferðu
fram úr þér og öðrum.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 efsti hluti hús-
stafns, 4 náðhús, 7 sleif-
ar, 8 bur, 9 selshreifi, 11
autt, 13 tímabilin, 14
klakinn, 15 fjöl, 17
glyrna, 20 hávaða, 22
kjánar, 23 stoppa í, 24
auðvelda, 25 stokkur.
Lóðrétt | 1 brotnaði, 2
blómum, 3 tyrfið mál, 4
úrræði, 5 tungl, 6 magr-
an, 10 ástundunarsamur,
12 tímabil, 13 aula, 15
makk, 16 vitlaust, 18
klaufdýrið, 19 forfeð-
urna, 20 vaxa, 21 fiskar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 svakalegt, 8 eltir, 9 tyfta, 10 nýr, 11 kárna, 13
arðan, 15 fengs, 18 hafur, 21 óra, 22 panil, 23 gerði, 24
hannyrðir.
Lóðrétt: 2 votar, 3 kirna, 4 letra, 5 gáfað, 6 verk, 7 hann,
12 nóg, 14 róa, 15 fipa, 16 nenna, 17 sólin, 18 hagur, 19
ferli, 20 reið.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Einholt 6 | Tónlistaruppákoma verður kl.
21–22 í nýju Listgalleríi í Einholti 6. Íslensk
armæða verður dubbuð upp á amerískan
mæðumáta, „Mississippi style“. Hlöðver B.
Jökulsson, Tómas A. Ragnarsson og Rúnar
Þ. Þórisson munu sjá um tónlistarflutning.
Gallerí Lind | Svava K. Egilson sýnir blönd-
uð verk, málverk-textíl og vatnsliti.
Háskólabíó | Skólahljómsveit Kópavogs
heldur árlega vortónleika sína í Háskólabíói
12. mars kl. 14. Fram koma um 140 ungir
hljóðfæraleikarar.
Hellirinn í Tónlistarþróunarmiðstöðinni |
Tónleikaröð Rokk.is. Fram: Lada Sport,
Benny Crespo’s Gang, Changer, Japanese
Supershift, Denver og Levenova. Húsið
opnar kl. 19.30, frítt inn og ekkert aldurs-
takmark.
Laugarborg í Eyjafirði | Jónas Ingimund-
arson leikur verk eftir Mozart, Beethoven,
Schumann og Brahms á Ingimarsflygilinn í
Laugarborg. Tónleikarnir verða 12. mars kl.
15.
Salurinn | Danski sellósnillingurinn Erling
Blöndal Bengtsson fagnar því að 60 ár eru
frá því að hann hélt sína fyrstu tónleika.
Hann mun flytja fyrstu og síðustu einleiks-
svítu Bachs ásamt verkum eftir Atla Heimi,
tileinkuðu Erling, og danska tónskáldið
Benzon. Tónleikarnir verða kl. 16. Miðaverð
2.000/1.600 kr.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Steinunn Helgadóttir
myndlistarmaður sýnir ljósmyndir og DVD í
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Sjá nánar á
artotek.is.
Bananananas | K-298 HH-49. Myndir af
opnun í Bananananas. K-299 HH-50. Ein-
nota plastmál með skrítinni brúnni skán.
K-300 HH-51.
Einholt 6 | „Munúðarfull“ myndlistar- og
hönnunarsýning þeirra hjóna Bigga Breið-
dal og Ásu Heiðar Rúnarsdóttur myndlist-
arkonu. Opið kl. 16–18.45.
Gallerí BOX | Ásdís Spanó – Orkulindir. Op-
ið fim. og laug. kl. 14–17.
Gallerí Dvergur | Hanna Christel Sig-
urkarlsdóttir sýnir verkið „Innar“.
Gallerí Fold | Sveinbjörg Hallgrímsdóttir
sýnir handþrykktar tréristur í Baksalnum
til 12. mars.
Gallerí Humar eða frægð! | Ljósmyndir,
leikmunir, kvikmyndasýningar. Opið kl. 12–
17 laugardaga, 12–19 föstudaga og 12–18
aðra virka daga. Lokað sunnudaga.
Gallerí Sævars Karls | Hafsteinn Michael
sýnir olíumálverk og teikningar til 23. mars.
Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl.
10–16.
Grafarvogskirkja | Sýning Svövu Sigríðar í
Átthagahorni bókasafns Grafarvogs. Á sýn-
ingunni eru tólf vatnslitamyndir. Sýningin
stendur til 25. mars.
Hafnarborg | Pétur Gautur sýnir í Aðalsal
og Sigrún Harðar sýnir í Sverrissal. Sýning-
arnar standa til 27. mars og eru opnar alla
daga nema þriðjudaga kl. 11–17.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
Hrafnista Hafnarfirði | Sjö málarar frá Fé-
lagsmiðstöðinni Gerðubergi sýna í Menn-
ingarsal til 21. mars.
i8 | Tumi Magnússon sýnir til 29. apríl.
Kaffi Milanó | Sigurbjörg Gyða Tracey er
með myndlistarsýningu.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl.
Kling og Bang gallerí | Huginn Þór Arason
og Jóhann Atli Hinriksson sýna og í kjall-
aranum sýnir Sara Björnsdóttir. Opið er
fim.–sun. kl 14–18. Aðgangur er ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick –
Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfarar.
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
12–15. Nánari uppl. á www.listasafn.ak-
ureyri.is.
Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal –
Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar-
inbjarnar – Máttur litarins og spegill tím-
ans.
Laugardagsstefna, Harpa Þórsdóttir list-
fræðingur mun flytja fyrirlestur um list
Gunnlaugs Blöndals kl. 11–12. Ókeypis að-
gangur.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýningin Nátt-
úrurafl er samsýning 11 listamanna þar sem
viðfangsefnið er náttúra Íslands. Málverk,
skúlptúrar, vefnaður og grafíkmyndir. Opið
kl. 13–17.30.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Ljóð
Berglindar Gunnarsdóttur og textílverk
Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur ásamt högg-
myndum Sigurjóns Ólafssonar. Opið laug-
ardaga og sunnudaga 14–17.
Nýlistasafnið | „Er Hnattvæðingin að afmá
okkar þjóðlega og menningarlega sjálf?“
Samsýning breskra, íslenskra og finnskra
listamanna. Sýningarstjórar eru George
Doneo and Peter Lamb. Sýningin opnar kl.
16.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir 20 „minningastólpa“ unna á um-
ferðaskilti víðsvegar í Reykjavík til 28.
ágúst.
Safn | Verk Roni Horn á þremur hæðum.
Verkin eru um 20 talsins frá 1985–2004.
Saltfisksetur Íslands | Elísabet Dröfn Ást-
valdsdóttir opnar málverkasýningu í List-
sýningasal kl. 14. Sýningin stendur til 3.
apríl. Saltfisksetrið er opið alla daga kl. 11–
18. Nánari upplýsingar um sýninguna á
hronn@saltfisksetur.is.
Sjóminjasafnið | Árni Björn Guðjónsson
heldur málverkasýningu. Sýningin er opin
kl. 13–17 báða dagana. Nánari uppl. á
www.arnibjorn.com.
Skúlatún 4 | Aðstandendur Skúla sýna
ýmiss konar teikningar ásamt fjölda gesta-
listamanna. Opið kl. 15–18 fimmtudaga til
sunnudaga.
Studio 6 | Margeir „dire“ Sigurðarson sýn-
ir „semi-sjálfsportrait“ út mars.
Textílkjallarinn | 13 listakonur sem áður
ráku Listakot, sýna í Loka, Lokastíg 28, list-
muni unna í tengslum við Hallgrímskirkju
og Leif heppna. Opið kl. 14–17 dagana 11. og
12. mars.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu
kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari
hluta 19. aldar.
Rætur rúntsins er heiti á sýningu með ljós-
myndum hollenska ljósmyndarans Rob
Hornstra sem stendur í Myndasal. Mynd-
irnar eru afrakstur af ferðum Robs um Ís-
land á sl. ári.
Söfn
Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins frá
tímabilinu 1969–1979 í máli og myndum.
Opið daglega kl. 13–18.30 til 1. apríl.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Friðrik Örn
sýnir ljósmyndir.
Veiðisafnið - Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd-
um munum. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá
nánar á hunting.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið er upp á
fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Vignir Sigurþórsson úr
Borgarnesi spilar og syngur.
Klúbburinn við Gullinbrú | Dansleikur með
hljómsveitinni Smack.
Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og
hljómsveit leika frá kl. 23.
Lukku Láki | Hljómsveitin Signia spilar.
Vélsmiðjan Akureyri | Danshljómsveit
Friðjóns skemmtir. Útgáfukynning á nýjum
safndiski, 44 íslensk dans- og dægurlög
með danshljómsveit Friðjóns, verður kl. 22.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breið-
firðingabúð 12. mars kl. 14. Fjórði dagur í
fjögurra daga keppni.
Fyrirlestrar og fundir
AFS | Aðalfundur AFS verður haldin kl. 13 í
húsnæði Félags bókagerðarmanna á Hverf-
isgötu 21. Málþing sem ber yfirskriftina
„Forskot til framtíðar“ hefst kl. 14.30. Með-
al gesta verður forseti alþjóðasamtaka
AFS, Tachi Casal.