Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 31
ÓSKAPLEGA hljóta Hafnfirðingar
að vera stoltir af tónlistarskóla sín-
um. Þeirri hugsun varð ekki varist á
tónleikum í Víðistaðakirkju á sunnu-
dagskvöld, þar sem Kammersveit
Hafnarfjarðar og Kammerkór Hafn-
arfjarðar fluttu verk eftir Mozart
undir stjórn Helga Bragasonar,
hljómborðskennara og aðstoð-
arskólastjóra við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar.
Kammerkórinn er skipaður ungu
söngfólki, sem margt hefur sungið
undir stjórn Helga lengi. Kamm-
ersveitin hins vegar, er að mestu
skipuð kennurum, þar með talið
skólastjóra Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar og örfáum langt komnum
nemendum skólans.
Á stærri skalanum er Hafnar-
fjörður varla meira en smáþorp, og
varla hægt að ímynda sér að nokkurs
staðar í veröldinni tækist jafn fá-
mennri byggð að efna til tónleika af
þessu tagi, hvað þá með þeim góða
brag sem var í Víðistaðakirkju á
sunnudagskvöld. Þetta voru þó ekki
fullkomnir tónleikar, og ég hef vissu-
lega heyrt kórinn syngja betur; –
sópranarnir voru daufir og ekki nógu
hreinir í köflum þar sem á reyndi.
Hins vegar voru tónleikarnir þrungn-
ir músík og gleði, og alveg merki-
legum anda, sem ég vil skrifa á það að
þarna var lítið, samheldið samfélag
tónlistarskólans virkilega að sýna
hvað í því býr.
Hljómsveitin var hreint afbragð og
valin manneskja í hverju rúmi. Ein-
leikari kvöldsins, Ármann Helgason,
lék Klarinettukonsert Mozarts og
gerði það firnavel. Þótt fyrsti þátt-
urinn væri ívið of hraður fyrir smekk
gagnrýnanda var mikil músík í flutn-
ingnum verkið á enda, fallegt legato
hjá strengjunum í hæga kaflanum og
lokakaflinn sérstaklega fjörmikill og
léttur.
Missa solemnis er ekki stórt verk
af hendi Mozarts, og Helgi gerði það
sem áður var tíðkað, að fleyga það
annars vegar með kirkjusónötu og
hins vegar með einum fallegasta söng
Mozarts, Ave verum corpus.
Kórinn söng prýðilega, en hefði
þurft að vera stærri og hljómmeiri til
jafnvægis við hljómsveitina, eða
syngja betur út í salinn. Heildar-
áhrifin voru þó þau, að þrátt fyrir svo-
litla hnökra var flutningurinn mús-
íkalskur og fullur af stemningu.
Það er ekki óalgengt að kennarar
tónlistarskóla taki sig saman um tón-
leikahald, og í Tónlistarskóla Kópa-
vogs er það til dæmis gert með reglu-
bundnum hætti. Það er hins vegar
fátítt að svo mikið sé lagt í að stærð
og umfangi. Tónlistarkennarar hafa
ekki riðið feitum hesti frá samningum
um kaup og kjör á undanförnum ár-
um og fáar aðrar stéttir myndu láta
sér lynda að geta ekki hafið dagvinnu
fyrr en eftir hádegi og vinna langt
fram á kvöld, eins og tónlistarkenn-
arar þurfa víðast hvar að gera eftir
einsetningu grunnskólans. Hending
hefur ráðið hvort aukavinna, eins og
samspil, nemendatónleikar, annar
hljóðfæraleikur og verkefni, hefur
verið greidd. Samt sem áður finnur
þetta fólk sér tíma til að setjast niður
og spila enn meira – skapa eitthvað
skemmtilegt til að gleðja okkur hin.
Ætli stjórnendur sveitarfélaganna
átti sig á gildi tónlistarskólanna sinna
fyrir samfélagið? En nóg um það.
Ágætur tónlistarmaður sagði við
mitt rétt fyrir tónleikana, að Mozart
væri lumma. Sé svo, var þessi alla
vega sæt – og með rúsínum að auki.
Mozart í Hafnarfirði
TÓNLIST
Víðistaðakirkja
Flutt voru verk eftir Wolfgang Amadeus
Mozart, Kirkjusónötur í A-dúr KV225 og
C-dúr KV329, Ave verum corpus, Klarin-
ettukonsert í A-dúr KV622 og Missa Sol-
emnis. Einleikari og leiðari í Klarinettu-
konsert var Ármann Helgason, stjórnandi
var Helgi Bragason.
Kammersveit og Kammerkór Hafn-
arfjarðar
Bergþóra Jónsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 31
MENNING
Á MORGUN, sunnudag, kl. 13–14
verða í Gerðubergi sungin lög sem
söngkonan ástsæla Ellý Vilhjálms
gerði ógleymanleg! Hver kannast
ekki við lögin „Vegir liggja til allra
átta“, „Ég vil fara upp í sveit“ og
„Heyr mína bæn“? Ingveldur Ýr
Jónsdóttir leiðir sönginn og Kjart-
an Valdimarsson leikur með á pí-
anó.
Að syngja saman er hugmynd
sem fylgir því markmiði Gerðu-
bergs að þangað komi fólk til að
taka þátt í gleðistund, og að við-
burðir séu uppbyggilegir, fræðandi
og skemmtilegir. Verkefnið er unn-
ið í samstarfi við ÍTR.
Lög Ellýjar í Gerðubergi
Á MORGUN, sunnudag, heldur Jón-
as Ingimundarson píanóleikari tón-
leika í Tónlistar-
húsinu Laugar-
borg í Eyja-
fjarðarsveit en
tónleikarnir eru
liður í vetrardag-
skrá Laugar-
borgar.
Tónleikarnir
hefjast á sónötu
eftir Mozart,
tyrkneska rondoinu. Þá leikur Jón-
as sónötu op 57, „Apassionata“ eftir
Beethoven og eftir hlé „Fiðrildin“
eftir Schumann.
Tónleikunum lýkur síðan með
hugleiðingu Brahms um stef eftir
Händel.
Tónleikarnir hefjast kl. 15.
Jónas Ingimundarson
í Laugarborg