Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR SUÐURNES ÁRBORGARSVÆÐIÐ vel og eru bara góðir,“ segir Berg- steinn og ennfremur að hljómburð- urinn í plaströradeildinni hafi komið körlunum í kórnum skemmtilega á óvart. Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra kom einnig til móttök- unnar og fór nokkrum góðum orðum um fyrirtækið, sögu þess, uppgang, framgöngu forsvarsmanna þess og góðan árangur. Á sinn einstaka hátt lýsti Guðni Bergsteini framkvæmda- stjóra í léttum dúr og tengdi hann við sinn flokk því það gengi ekki að hann hefði ekki pólitískt land að stíga á eftir að Alþýðuflokkurinn hvarf af stjórnmálasviðinu. Auðvitað fékk framkvæmdastjór- inn líka lýsingu á sér sem tónlistar- manni en Bergsteinn var liðsmaður í unglingahljómsveitinni Raflosti sem hann og félagar hans endurvöktu fyrir nokkrum árum og nú er um að ræða miðaldrahljómsveit sem hvar- vetna dregur að fjölda fólks þegar dansleikir eru haldnir, enda mikið fjör og mikil útrás sem hann og fé- lagar hans fá. Gestirnir frá Hitaveitu Suður- nesja kunnu vel að meta veitingar fyrirtækisins, orðræður Guðna og söng Karlakórsins. Það var því góð stemning í plast- röradeildinni þennan eftirmiðdag í byrjun mars. Selfoss | „Aðstaðan hjá okkur er nánast sprungin og við vinnum núna að því að færa til einingar hjá okkur og koma framleiðslunni fyrir á sem hagstæðastan hátt. Við höfum ekki fengið nógu góð tilboð varðandi lóðir hjá Árborg þannig að það henti okk- ur, þess vegna reynum við að nýta allan þann húsakost sem við höfum,“ segir Bergsteinn Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sets hf. á Selfossi, sem hefur vaxið hratt á und- anförnum árum og náð góðri fótfestu á markaðnum með framleiðslu sína á plaströrum, einangruðum hitaveit- urörum og fittings. Velta fyrirtækisins jókst um 40% á síðasta ári frá árinu á undan og nam 1.106 milljónum króna. „Við ætlum að vera hér við Eyra- veginn á Selfossi og erum að gera verulegar breytingar á skipulaginu innan fyrirtækisins, munum meðal annars taka alla starfsmannaaðstöðu vel í gegn og gera hana eins aðlað- andi og mögulegt er. Markmiðið er að fyrirtækið sé starfsmannavænt og til þess fallið að ná upp góðum liðsanda. Svo munum við flytja eina framleiðsludeild yfir í næsta hús hér við hliðina sem við eigum. Þannig munum við endurskipuleggja okkur til að nýta sem best húsakostinn. Við njótum þess að vera nálægt mark- aðnum og getum lagað okkur að ósk- um viðskiptavinanna með ýmsa sér- framleiðslu og svo erum við með góðan mannskap, samtals 60 manns, sem skiptir öllu máli,“ segir Berg- steinn þegar hann er spurður um lykilinn að velgengninni og nánustu framtíðina í starfsemi fyrirtækisins. Tónleikar í plaströradeildinni Set hefur átt mikil viðskipti við Hitaveitu Suðurnesja á und- anförnum árum vegna hitaveitu- framkvæmda og byggingar Reykja- nesvirkjunar. Það lá því vel við að bjóða starfsmönnum Hitaveitu Suð- urnesja í heimsókn í Set eins og gerðist á dögunum þegar 80 manna hópur skoðaði fyrirtækið og naut veitinga í verksmiðjusal plaströra- deildar fyrirtækisins. Þar beið þeirra Karlakór Selfoss sem söng við góðar undirtektir en kórinn var þá á leið í samsöng í Hólmaröstinni á Stokkseyri, Menningarverstöð Stokkseyringa og Árborgar. Kórinn hefur orð á sér fyrir lipurð í að koma í heimsóknir og taka lagið við ýmis tækifæri. „Svo syngja þeir svo fjandi Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gamanmál Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra talar í léttum dúr yfir Bergsteini Einarssyni, framkvæmdastjóra Set hf., að viðstöddu fjölmenni. Tónleikar og gamanmál í plaströradeildinni Eftir Sigurð Jónsson Reykjanesbær | Áætlað er að framkvæmt verði fyrir um 22 milljarða króna í Reykjanesbæ og næsta nágrenni á þessu ári. Fram kom á Fram- kvæmdaþingi Reykjanesbæjar að það er fjórum milljörðum meira en opinberir aðilar og verk- takar áætluðu á sama tíma í fyrra, fyrir það ár, og nemur aukningin fimmtungi. 83% fram- kvæmdanna er á vegum einkaaðila og hluta- félaga í eigu sveitarfélaga og ríkis en 17% eru á vegum sveitarfélagsins og annarra opinberra aðila. Þetta er þriðja árið í röð sem Reykjanesbær safnar saman á framkvæmdaþingi upplýsingum um helstu framkvæmdir á árinu. Fjölmenna starfsmenn verktaka og aðrir áhugamenn á þingið og hlýða á samantektir fulltrúa stofnana og fyrirtækja. Þróa nýja 8.000 manna byggð Reykjanesbær leggur rúman milljarð kr. í nýbyggingu gatna í nýjum hverfum og viðhald. Er það talsvert meira en á síðustu árum enda er verið að byggja upp stór ný byggingasvæði. Fram kom hjá Sigríði Jónu Jóhannesdóttur, hjá þróunarsviði umhverfis- og skipulagssviðs bæj- arins, að húsbyggingar eru hafnar á flestum lóð- anna í Tjarnahverfi en þar á að byggja 550 íbúð- ir og búið er að úthluta lóðum fyrir 130 íbúðir í Ásahverfi og fyrir 500 íbúðir í Dalshverfi I og verða þessar lóðir byggingarhæfar í vor og fram á haust. Þá stendur fyrir dyrum að úthluta lóð- um fyrir 170 íbúðir í Dalshverfi II og verið að undirbúa næsta hverfi, Stapahverfi, með 1200 íbúðum. Jafnframt hefur miðjan við Reykjanes- höll verið skipulögð og verið að huga að lóðum fyrir verslunar- og þjónustubyggingar við Reykjanesbraut. Loks er verið að úthluta at- vinnulóðum í Helguvík. Fram kom hjá Sigríði Jónu að alls er verið að þróa 8.000 manna byggð á sjö til tíu árum. Fasteign hf. byggir og rekur fasteignir fyrir Reykjanesbæ. Jónas Þór Jónasson, hjá þróun- arsviði fyrirtækisins, gerði grein fyrir helstu framkvæmdum þess á árinu. Stærsta einstaka framkvæmdin er bygging 50 metra keppnis- laugar og sundagarðs við Sundmiðstöðina við Sunnubraut. Framkvæmdum er að ljúka og er áætlað að taka mannvirkið í notkun í apríl. Verið er að undirbúa annan áfanga Akurskóla í Tjarnahverfi, en það er íþróttahús og sundlaug. Fyrirhugað er að hefjast handa með vorinu. Þá er verið að undirbúa byggingu sex deilda leik- skóla í Tjarnahverfi og hefst jarðvinna í næsta mánuði og einnig er verið að athuga með stækk- un þeirra leikskóla sem fyrir eru. Ýmis önnur verkefni eru í þróun hjá Fasteign og Reykjanesbæ. Jónas nefndi félagsaðstöðu fyrir Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, íþróttasvæði vestan Reykjaneshallar, fé- lagsþjónustumiðstöð fyrir eldri borgara og byggingu tónlistarmiðstöðvar við félagsheimilið Stapa. Heildarkostnaður við framkvæmdir í Reykjanesbæ í ár er áætlaður 0,9 til 1,1 millj- arður kr. Undirbúa álver og raforkuver Hitaveita Suðurnesja er á lokasprettinum með byggingu Reykjanesvirkjunar og er jafn- framt að hefja byggingu nýs orkuvers í Svarts- engi, rannsaka möguleika á orkuöflun fyrir ál- ver í Helguvík og að leggja hita og rafmagn á nýjum byggingasvæðum á orkuveitusvæði sínu sem nær yfir Suðurnes, Hafnarfjörð og hluta Suðurlands. Júlíus Jónsson framkvæmdastjóri áætlaði á framkvæmdaþinginu að heildarkostn- aður á árinu væri um 5 milljarðar kr., þar af 4,5 milljarðar á Suðurnesjum. Haukur Einarsson, verkfræðingur hjá HRV, sagði frá vinnu við undirbúning ákvörðunar um byggingu álvers Norðuráls í Helguvík. Áformað er að senda Skipulagsstofnun tillögu að áætlun vegna mats á umhverfisáhrifum álvers í næstu viku og að frummatsskýrsla verði lögð fyrir í vor eða sumar. Reiknað er með að niðurstaða umhverfismatsins muni liggja fyrir næsta vet- ur. Haukur sagði verktökunum að reikna mætti með því að bygging álversins yrði brotin niður í fjölda tilboðspakka, eins og gert hefði verið við byggingu álvers Norðuráls á Grundartanga, til að auðvelda innlendum verktökum að koma að framkvæmdinni. Nýr búsetukostur Nesvellir, fyrirtæki Húsaness, Fasteignar og Klasa, undirbýr uppbyggingu í þágu eldri borg- ara á íþróttavöllum Njarðvíkinga. Sigurður Garðarsson verkefnisstjóri sagði að þar yrði byggður upp meginhlutinn af þeirri aðstöðu sem eldri borgarar þyrftu á að halda. Byggðar verða hátækniíbúðir fyrir eldri íbúa, hjúkrunar- heimili, öryggisíbúðir og íbúðir í fjölbýlishúsum og raðhúsum. Einnig þjónustu- og félagsað- staða og útivistarsvæði. Fyrirhugað er að hefj- ast handa við fyrsta áfanga hjúkrunarheimilis í ár, þjónustu- og félagsaðstöðuna sem og fyrsta hluta öryggisíbúða og raðhúsa. Talaði Sigurður um þetta svæði sem nýjan valkost í búsetumál- um eldra fólks. Í þetta verða lagðar 1,2 til 1,4 milljarðar kr. í ár. Miklar framkvæmdir eru á Keflavíkurflug- velli, aðallega á vegum Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar. Stefán Jónsson, forstöðumaður fast- eignasviðs FLE, gerði grein fyrir þeim. Framkvæmt verður fyrir 3,7 milljarða kr. í ár, aðallega í breytingum og stækkun á núverandi flugstöðvarbyggingu. Þeim miklu framkvæmd- um á að ljúka eftir ár. Stefán boðaði að ekki yrði staldrað mikið við eftir það, eðli starfseminnar væri þannig að halda þyrfti áfram. Spáði hann því að í framhaldinu yrði ráðist í stækkun land- gönguhliða flugstöðvarinnar. Á vegum Flugmálastjórnar verður fragtflug- hlaðið við Flugstöðina tvöfaldað. Þá kom fram hjá Ómari Ingvarssyni, af áætlunar- og þróun- arsviði Flugmálastjórnar, að hafnar væru fram- kvæmdir við aðstöðuhús fyrir tvær bílaleigur og þjónustubyggingu á vegum Sverris Sverrisson- ar ehf. á nýju þjónustusvæði utan flugvallar- girðingar. Jónas Snæbjörnsson, umdæmisstjóri Vega- gerðarinnar, sagði frá helstu vegaframkvæmd- um á Suðurnesjum. Þar ber hæst annan áfanga tvöföldunar Reykjanesbrautar. Þá kom fram hjá honum að von væri til þess að Borgavegur, nýr stofnvegur inn í Reykjanesbæ, yrði boðinn út á næstu mánuðum. 700–800 byggingaleyfi í ár Verktakar standa í miklum framkvæmdum, bæði í nýjum hverfum Reykjanesbæjar og í gamla bænum. Fram kom hjá Sigríði Jónu Jó- hannesdóttur hjá Reykjanesbæ að á síðasta ári hefðu verið gefin út 486 byggingaleyfi, á móti 83 á árinu 2004 og 53 á árinu 2003. Fyrstu tvo mán- uði þessa árs hefur bærinn gefið út 120 bygg- ingaleyfi og taldi Sigríður Jóna að með sama áframhaldi yrðu 700 til 800 byggingaleyfi gefin út á þessu ári. Hér að framan er sagt frá framkvæmdum í nýju hverfunum. Í gamla bænum er það helst að við Keflavíkurhöfn eru fyrstu turnarnir risnir í fyrirhugaðri háhýsabyggð og fleiri á leiðinni og verið að deiliskipuleggja Vatnsnesið. Verið er að skipuleggja Hlíðahverfi á Neðra-Nikkelsvæði í Njarðvík og strandbyggð í Innri-Njarðvík. Einar Guðberg hjá Meistarahúsum og Hall- dór Ragnarsson hjá Húsanesi sögðu frá fram- kvæmdum á vegum fyrirtækjanna sem eru stórtæk í uppbyggingunni í Reykjanesbæ. Smáragarður ehf., sem er í eigu sömu aðila og Rúmfatalagerinn, undirbýr byggingu stórrar verslunarmiðstöðvar á landi sem fyrirtækið hef- ur keypt í Innri-Njarðvík. Er það svæðið við Reykjanesbraut þar sem nú er körtubraut Reis- bíla. Áætlanir gera ráð fyrir byggingu 23.500 fermetra verslunarhúss, auk 1.000 fermetra húss fyrir veitingastaði og 1.500 fermetra fyrir bensínstöð. Til samanburðar má geta þess að húsið er tvöfalt stærra en Glerártorg á Akur- eyri sem Smáragarður reisti. Agnes Geirsdótt- ir, framkvæmdastjóri Smáragarðs, segir að unnið sé að undirbúningi. Í húsinu verði stór- verslanir, meðal annars verslun Rúmfatalagers- ins, einnig matvöruverslun, heimilisverslun, fatabúð og fleira. Stefnt er að því að fram- kvæmdir hefjist á næsta ári og ljúki á árinu 2008. Árni Sigfússon bæjarstjóri tók saman niður- stöðurnar í lok framkvæmdaþings. Hann lagði áherslu á hversu ánægjulegt það væri að stór hluti framkvæmdanna væri á vegum einkafyr- irtækja og hlutafélaga og talaði um 83% í því sambandi. Þá eru framkvæmdir á vegum Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar og Hitaveitu Suður- nesja taldar með en þetta eru félög í eigu ríkis og sveitarfélaga. „Þetta sýnir okkur glöggt hvar krafturinn liggur og hvað mikilvægt er að virkja þennan kraft,“ sagði Árni. Hann sagði ánægju- legt að finna hversu vel verktakar hefðu tekið þeim verkefnum sem sveitarfélagið hefði ýtt af stað. Á betra verði ekki kosið. „Þannig viljum við hafa þetta, þannig veit ég að við getum unnið stóra sigra,“ sagði Árni Sigfússon. Áætlanir gera ráð fyrir að framkvæmt verði fyrir 22 milljarða í Reykjanesbæ og nágrenni á árinu Meginhlutinn á vegum einkaaðila og hlutafélaga Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þing Það tók tvo tíma að segja frá þeim rúmlega tuttugu milljörðum sem varið verður í fram- kvæmdir í Reykjanesbæ og nágrenni í ár. Fjölmenni var á Framkvæmdaþinginu í ár. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.