Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 28
28 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
vel og eru bara góðir,“ segir Berg-
steinn og ennfremur að hljómburð-
urinn í plaströradeildinni hafi komið
körlunum í kórnum skemmtilega á
óvart. Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra kom einnig til móttök-
unnar og fór nokkrum góðum orðum
um fyrirtækið, sögu þess, uppgang,
framgöngu forsvarsmanna þess og
góðan árangur. Á sinn einstaka hátt
lýsti Guðni Bergsteini framkvæmda-
stjóra í léttum dúr og tengdi hann
við sinn flokk því það gengi ekki að
hann hefði ekki pólitískt land að
stíga á eftir að Alþýðuflokkurinn
hvarf af stjórnmálasviðinu.
Auðvitað fékk framkvæmdastjór-
inn líka lýsingu á sér sem tónlistar-
manni en Bergsteinn var liðsmaður í
unglingahljómsveitinni Raflosti sem
hann og félagar hans endurvöktu
fyrir nokkrum árum og nú er um að
ræða miðaldrahljómsveit sem hvar-
vetna dregur að fjölda fólks þegar
dansleikir eru haldnir, enda mikið
fjör og mikil útrás sem hann og fé-
lagar hans fá.
Gestirnir frá Hitaveitu Suður-
nesja kunnu vel að meta veitingar
fyrirtækisins, orðræður Guðna og
söng Karlakórsins.
Það var því góð stemning í plast-
röradeildinni þennan eftirmiðdag í
byrjun mars.
Selfoss | „Aðstaðan hjá okkur er
nánast sprungin og við vinnum núna
að því að færa til einingar hjá okkur
og koma framleiðslunni fyrir á sem
hagstæðastan hátt. Við höfum ekki
fengið nógu góð tilboð varðandi lóðir
hjá Árborg þannig að það henti okk-
ur, þess vegna reynum við að nýta
allan þann húsakost sem við höfum,“
segir Bergsteinn Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sets hf. á Selfossi,
sem hefur vaxið hratt á und-
anförnum árum og náð góðri fótfestu
á markaðnum með framleiðslu sína á
plaströrum, einangruðum hitaveit-
urörum og fittings.
Velta fyrirtækisins jókst um 40%
á síðasta ári frá árinu á undan og
nam 1.106 milljónum króna.
„Við ætlum að vera hér við Eyra-
veginn á Selfossi og erum að gera
verulegar breytingar á skipulaginu
innan fyrirtækisins, munum meðal
annars taka alla starfsmannaaðstöðu
vel í gegn og gera hana eins aðlað-
andi og mögulegt er. Markmiðið er
að fyrirtækið sé starfsmannavænt
og til þess fallið að ná upp góðum
liðsanda. Svo munum við flytja eina
framleiðsludeild yfir í næsta hús hér
við hliðina sem við eigum. Þannig
munum við endurskipuleggja okkur
til að nýta sem best húsakostinn. Við
njótum þess að vera nálægt mark-
aðnum og getum lagað okkur að ósk-
um viðskiptavinanna með ýmsa sér-
framleiðslu og svo erum við með
góðan mannskap, samtals 60 manns,
sem skiptir öllu máli,“ segir Berg-
steinn þegar hann er spurður um
lykilinn að velgengninni og nánustu
framtíðina í starfsemi fyrirtækisins.
Tónleikar í plaströradeildinni
Set hefur átt mikil viðskipti við
Hitaveitu Suðurnesja á und-
anförnum árum vegna hitaveitu-
framkvæmda og byggingar Reykja-
nesvirkjunar. Það lá því vel við að
bjóða starfsmönnum Hitaveitu Suð-
urnesja í heimsókn í Set eins og
gerðist á dögunum þegar 80 manna
hópur skoðaði fyrirtækið og naut
veitinga í verksmiðjusal plaströra-
deildar fyrirtækisins. Þar beið
þeirra Karlakór Selfoss sem söng við
góðar undirtektir en kórinn var þá á
leið í samsöng í Hólmaröstinni á
Stokkseyri, Menningarverstöð
Stokkseyringa og Árborgar. Kórinn
hefur orð á sér fyrir lipurð í að koma
í heimsóknir og taka lagið við ýmis
tækifæri. „Svo syngja þeir svo fjandi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gamanmál Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra talar í léttum dúr yfir
Bergsteini Einarssyni, framkvæmdastjóra Set hf., að viðstöddu fjölmenni.
Tónleikar og gamanmál í plaströradeildinni
Eftir Sigurð Jónsson
Reykjanesbær | Áætlað er að framkvæmt verði
fyrir um 22 milljarða króna í Reykjanesbæ og
næsta nágrenni á þessu ári. Fram kom á Fram-
kvæmdaþingi Reykjanesbæjar að það er fjórum
milljörðum meira en opinberir aðilar og verk-
takar áætluðu á sama tíma í fyrra, fyrir það ár,
og nemur aukningin fimmtungi. 83% fram-
kvæmdanna er á vegum einkaaðila og hluta-
félaga í eigu sveitarfélaga og ríkis en 17% eru á
vegum sveitarfélagsins og annarra opinberra
aðila.
Þetta er þriðja árið í röð sem Reykjanesbær
safnar saman á framkvæmdaþingi upplýsingum
um helstu framkvæmdir á árinu. Fjölmenna
starfsmenn verktaka og aðrir áhugamenn á
þingið og hlýða á samantektir fulltrúa stofnana
og fyrirtækja.
Þróa nýja 8.000 manna byggð
Reykjanesbær leggur rúman milljarð kr. í
nýbyggingu gatna í nýjum hverfum og viðhald.
Er það talsvert meira en á síðustu árum enda er
verið að byggja upp stór ný byggingasvæði.
Fram kom hjá Sigríði Jónu Jóhannesdóttur, hjá
þróunarsviði umhverfis- og skipulagssviðs bæj-
arins, að húsbyggingar eru hafnar á flestum lóð-
anna í Tjarnahverfi en þar á að byggja 550 íbúð-
ir og búið er að úthluta lóðum fyrir 130 íbúðir í
Ásahverfi og fyrir 500 íbúðir í Dalshverfi I og
verða þessar lóðir byggingarhæfar í vor og fram
á haust. Þá stendur fyrir dyrum að úthluta lóð-
um fyrir 170 íbúðir í Dalshverfi II og verið að
undirbúa næsta hverfi, Stapahverfi, með 1200
íbúðum. Jafnframt hefur miðjan við Reykjanes-
höll verið skipulögð og verið að huga að lóðum
fyrir verslunar- og þjónustubyggingar við
Reykjanesbraut. Loks er verið að úthluta at-
vinnulóðum í Helguvík. Fram kom hjá Sigríði
Jónu að alls er verið að þróa 8.000 manna byggð
á sjö til tíu árum.
Fasteign hf. byggir og rekur fasteignir fyrir
Reykjanesbæ. Jónas Þór Jónasson, hjá þróun-
arsviði fyrirtækisins, gerði grein fyrir helstu
framkvæmdum þess á árinu. Stærsta einstaka
framkvæmdin er bygging 50 metra keppnis-
laugar og sundagarðs við Sundmiðstöðina við
Sunnubraut. Framkvæmdum er að ljúka og er
áætlað að taka mannvirkið í notkun í apríl. Verið
er að undirbúa annan áfanga Akurskóla í
Tjarnahverfi, en það er íþróttahús og sundlaug.
Fyrirhugað er að hefjast handa með vorinu. Þá
er verið að undirbúa byggingu sex deilda leik-
skóla í Tjarnahverfi og hefst jarðvinna í næsta
mánuði og einnig er verið að athuga með stækk-
un þeirra leikskóla sem fyrir eru.
Ýmis önnur verkefni eru í þróun hjá Fasteign
og Reykjanesbæ. Jónas nefndi félagsaðstöðu
fyrir Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag,
íþróttasvæði vestan Reykjaneshallar, fé-
lagsþjónustumiðstöð fyrir eldri borgara og
byggingu tónlistarmiðstöðvar við félagsheimilið
Stapa. Heildarkostnaður við framkvæmdir í
Reykjanesbæ í ár er áætlaður 0,9 til 1,1 millj-
arður kr.
Undirbúa álver og raforkuver
Hitaveita Suðurnesja er á lokasprettinum
með byggingu Reykjanesvirkjunar og er jafn-
framt að hefja byggingu nýs orkuvers í Svarts-
engi, rannsaka möguleika á orkuöflun fyrir ál-
ver í Helguvík og að leggja hita og rafmagn á
nýjum byggingasvæðum á orkuveitusvæði sínu
sem nær yfir Suðurnes, Hafnarfjörð og hluta
Suðurlands. Júlíus Jónsson framkvæmdastjóri
áætlaði á framkvæmdaþinginu að heildarkostn-
aður á árinu væri um 5 milljarðar kr., þar af 4,5
milljarðar á Suðurnesjum.
Haukur Einarsson, verkfræðingur hjá HRV,
sagði frá vinnu við undirbúning ákvörðunar um
byggingu álvers Norðuráls í Helguvík. Áformað
er að senda Skipulagsstofnun tillögu að áætlun
vegna mats á umhverfisáhrifum álvers í næstu
viku og að frummatsskýrsla verði lögð fyrir í
vor eða sumar. Reiknað er með að niðurstaða
umhverfismatsins muni liggja fyrir næsta vet-
ur. Haukur sagði verktökunum að reikna mætti
með því að bygging álversins yrði brotin niður í
fjölda tilboðspakka, eins og gert hefði verið við
byggingu álvers Norðuráls á Grundartanga, til
að auðvelda innlendum verktökum að koma að
framkvæmdinni.
Nýr búsetukostur
Nesvellir, fyrirtæki Húsaness, Fasteignar og
Klasa, undirbýr uppbyggingu í þágu eldri borg-
ara á íþróttavöllum Njarðvíkinga. Sigurður
Garðarsson verkefnisstjóri sagði að þar yrði
byggður upp meginhlutinn af þeirri aðstöðu
sem eldri borgarar þyrftu á að halda. Byggðar
verða hátækniíbúðir fyrir eldri íbúa, hjúkrunar-
heimili, öryggisíbúðir og íbúðir í fjölbýlishúsum
og raðhúsum. Einnig þjónustu- og félagsað-
staða og útivistarsvæði. Fyrirhugað er að hefj-
ast handa við fyrsta áfanga hjúkrunarheimilis í
ár, þjónustu- og félagsaðstöðuna sem og fyrsta
hluta öryggisíbúða og raðhúsa. Talaði Sigurður
um þetta svæði sem nýjan valkost í búsetumál-
um eldra fólks. Í þetta verða lagðar 1,2 til 1,4
milljarðar kr. í ár.
Miklar framkvæmdir eru á Keflavíkurflug-
velli, aðallega á vegum Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar. Stefán Jónsson, forstöðumaður fast-
eignasviðs FLE, gerði grein fyrir þeim.
Framkvæmt verður fyrir 3,7 milljarða kr. í ár,
aðallega í breytingum og stækkun á núverandi
flugstöðvarbyggingu. Þeim miklu framkvæmd-
um á að ljúka eftir ár. Stefán boðaði að ekki yrði
staldrað mikið við eftir það, eðli starfseminnar
væri þannig að halda þyrfti áfram. Spáði hann
því að í framhaldinu yrði ráðist í stækkun land-
gönguhliða flugstöðvarinnar.
Á vegum Flugmálastjórnar verður fragtflug-
hlaðið við Flugstöðina tvöfaldað. Þá kom fram
hjá Ómari Ingvarssyni, af áætlunar- og þróun-
arsviði Flugmálastjórnar, að hafnar væru fram-
kvæmdir við aðstöðuhús fyrir tvær bílaleigur og
þjónustubyggingu á vegum Sverris Sverrisson-
ar ehf. á nýju þjónustusvæði utan flugvallar-
girðingar.
Jónas Snæbjörnsson, umdæmisstjóri Vega-
gerðarinnar, sagði frá helstu vegaframkvæmd-
um á Suðurnesjum. Þar ber hæst annan áfanga
tvöföldunar Reykjanesbrautar. Þá kom fram
hjá honum að von væri til þess að Borgavegur,
nýr stofnvegur inn í Reykjanesbæ, yrði boðinn
út á næstu mánuðum.
700–800 byggingaleyfi í ár
Verktakar standa í miklum framkvæmdum,
bæði í nýjum hverfum Reykjanesbæjar og í
gamla bænum. Fram kom hjá Sigríði Jónu Jó-
hannesdóttur hjá Reykjanesbæ að á síðasta ári
hefðu verið gefin út 486 byggingaleyfi, á móti 83
á árinu 2004 og 53 á árinu 2003. Fyrstu tvo mán-
uði þessa árs hefur bærinn gefið út 120 bygg-
ingaleyfi og taldi Sigríður Jóna að með sama
áframhaldi yrðu 700 til 800 byggingaleyfi gefin
út á þessu ári.
Hér að framan er sagt frá framkvæmdum í
nýju hverfunum. Í gamla bænum er það helst að
við Keflavíkurhöfn eru fyrstu turnarnir risnir í
fyrirhugaðri háhýsabyggð og fleiri á leiðinni og
verið að deiliskipuleggja Vatnsnesið. Verið er að
skipuleggja Hlíðahverfi á Neðra-Nikkelsvæði í
Njarðvík og strandbyggð í Innri-Njarðvík.
Einar Guðberg hjá Meistarahúsum og Hall-
dór Ragnarsson hjá Húsanesi sögðu frá fram-
kvæmdum á vegum fyrirtækjanna sem eru
stórtæk í uppbyggingunni í Reykjanesbæ.
Smáragarður ehf., sem er í eigu sömu aðila og
Rúmfatalagerinn, undirbýr byggingu stórrar
verslunarmiðstöðvar á landi sem fyrirtækið hef-
ur keypt í Innri-Njarðvík. Er það svæðið við
Reykjanesbraut þar sem nú er körtubraut Reis-
bíla. Áætlanir gera ráð fyrir byggingu 23.500
fermetra verslunarhúss, auk 1.000 fermetra
húss fyrir veitingastaði og 1.500 fermetra fyrir
bensínstöð. Til samanburðar má geta þess að
húsið er tvöfalt stærra en Glerártorg á Akur-
eyri sem Smáragarður reisti. Agnes Geirsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Smáragarðs, segir að
unnið sé að undirbúningi. Í húsinu verði stór-
verslanir, meðal annars verslun Rúmfatalagers-
ins, einnig matvöruverslun, heimilisverslun,
fatabúð og fleira. Stefnt er að því að fram-
kvæmdir hefjist á næsta ári og ljúki á árinu
2008.
Árni Sigfússon bæjarstjóri tók saman niður-
stöðurnar í lok framkvæmdaþings. Hann lagði
áherslu á hversu ánægjulegt það væri að stór
hluti framkvæmdanna væri á vegum einkafyr-
irtækja og hlutafélaga og talaði um 83% í því
sambandi. Þá eru framkvæmdir á vegum Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar og Hitaveitu Suður-
nesja taldar með en þetta eru félög í eigu ríkis
og sveitarfélaga. „Þetta sýnir okkur glöggt hvar
krafturinn liggur og hvað mikilvægt er að virkja
þennan kraft,“ sagði Árni. Hann sagði ánægju-
legt að finna hversu vel verktakar hefðu tekið
þeim verkefnum sem sveitarfélagið hefði ýtt af
stað. Á betra verði ekki kosið. „Þannig viljum
við hafa þetta, þannig veit ég að við getum unnið
stóra sigra,“ sagði Árni Sigfússon.
Áætlanir gera ráð fyrir að framkvæmt verði fyrir 22 milljarða í Reykjanesbæ og nágrenni á árinu
Meginhlutinn á
vegum einkaaðila
og hlutafélaga
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þing Það tók tvo tíma að segja frá þeim rúmlega tuttugu milljörðum sem varið verður í fram-
kvæmdir í Reykjanesbæ og nágrenni í ár. Fjölmenni var á Framkvæmdaþinginu í ár.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is