Morgunblaðið - 11.03.2006, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 9
FRÉTTIR
iðunn
tískuverslun
Ný sending
af yfirhöfnum frá
Kringlunni,
s. 588 1680
Laugavegi 40,
s. 561 1690
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Ný sending
Glæsilegur silkifatnaður
Kjólar, dragtir, skyrtur, buxur, pils
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
STAKIR JAKKAR
str. 46-56
Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Sigurstjarnan
Opið virka kl. 11-18 virka dag, kl. 11-15 laugardaga, einnig sunnudaginn 12. mars kl. 13-16
Ekta pelsar og úlpur - Stór númer
50-60% afsláttur
Allir lampar 50% - Gjafavörur 30-50% - Rúmteppi 40% -
Perlujakkar og sjöl 70% - Kjólar 50%
Risaútsalan er hafin
Mörkinni 6, sími 588 5518.
• Stuttkápur
• Leðurjakkar
• Vattjakkar
• Rúskinnsjakkar
• Heilsársúlpur
• Hattar og húfur
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 10-16
FERMINGAR-
MÖMMUR OG
ÖMMUR,
STÓRGLÆSILEGUR
VORFATNAÐUR
(DRESS) FRÁ
Taifun
FUCHS-
SMITTH
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri tók á fimmtudag
fyrstu skóflustungu að nýbygg-
ingu sunnan Egilshallar. Þar mun
Nýsir hf., eigandi hússins, hefja
framkvæmdir á næstu vikum og
er ráðgert að þeim ljúki fyrir ára-
mót. Byggð verður 10 þúsund m²
nýbygging sunnan Egilshallar
sem verður tengd höllinni. Í ný-
byggingunni verður fjögurra sala
Sambíó sem rúmar þúsund manns,
36 brauta keilusalur og í kjall-
aranum verður þemasýning sem
nefnist Auga Óðins þar sem gestir
geta upplifað norræna goðafræði.
Eftir stækkun verður lóð Egils-
hallar 94 þúsund m², gert verður
hringtorg á Víkurvegi með nýrri
aðkomu að höllinni, bílastæðum
fjölgað í tvö þúsund og gervigras-
völlur byggður norðan hall-
arinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi og formaður Fjölnis, Árni Samúelsson, forstjóri SAM-bíóanna, Steinunn
Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður Nýsis hf.
Fyrsta skóflustungan tekin
að viðbyggingu við Egilshöll
REGLULEGA gera erlendir aðilar
tilraunir til að svíkja fé út úr hér-
lendum bændum í ferðaþjónustu
með ýmsum aðferðum, en forsvars-
maður Ferðaþjónustu bænda segir
félagsmenn yfirleitt farna að átta
sig á aðferðum svindlaranna, sem
nái litlum árangri hér á landi.
Aðferðin, sem beitt er, er yfir-
leitt svipuð, pöntuð er gisting fyrir
hóp í nokkra daga, og greitt fyrir
með erlendri ávísun, segir Mar-
teinn Njálsson, formaður stjórnar
Ferðaþjónustu bænda. Það getur
tekið um tvær vikur að fá erlendri
ávísun skipt, og áður en það tekst
reyna svindlararnir að afpanta
gistinguna og fá endurgreiðslu inn
á bankareikning sinn. Í ljós kemur
svo að ávísunin er innistæðulaus
og geta því aðilar í ferðaþjónustu
tapað endurgreiðslunni.
Marteinn segir ótrúlegt að enn
sé reynt að svindla með þessari að-
ferð, og segist ekki þekkja dæmi
um að bændur hafi fallið í gildruna
á síðasta ári, þótt málið geti vissu-
lega verið feimnismál fyrir þá sem
falla fyrir bragðinu og þeir því
þagað um það. Hann segir að
gjarnan sé reynt að hafa um 100
þúsund krónur af bændunum í
hvert skipti, og gjarnan sagt að sá
sem pantar sé frá viðurkenndum
samtökum, söfnuði eða einhverju
svipuðu til að gefa pöntuninni trú-
verðugleika.
Vegna frétta af því að ein-
staklingar hafi reynt að svindla
með því að segjast vera á vegum
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, eða annarra samtaka, vill
UNICEF á Íslandi taka fram að
samtökin hafi frétt af tveimur til-
vikum þar sem nafn samtakanna
var notað við tilraun til svindls.
Allar pantanir í nafni UNICEF fari
hins vegar í gegnum skrifstofuna
hér á landi, og rétt sé að hafa sam-
band þangað reyni aðrir að panta í
nafni UNICEF.
Reglulega reynt
að svindla á ferða-
þjónustubændum
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
karlmanni á fertugsaldri fyrir
fíkniefnalaga- og vopnalagabrot á
árinu 2004. Er refsing mannsins þó
milduð um fjóra mánuði og var
hann dæmdur til tveggja ára og
sex mánaða fangelsisvistar auk
þess sem rúmar 190 þúsund krón-
ur, sem ákærði notaði til að greiða
fyrir fíkniefnin, eru gerðar upp-
tækar. Honum er jafnframt gert
skylt að greiða sakarkostnað máls-
ins í héraði og fyrir Hæstarétti, að
upphæð 716 þúsund krónur.
Ákærða var gefið að sök að hafa
í ágúst árið 2004 lagt á ráðin við
ótilgreindan mann um kaup á
fíkniefnum og innflutningi þeirra
hingað til lands í ágóðaskyni. Hann
tók síðan við fíkniefnunum mið-
vikudaginn 3. nóvember, alls um
832 grömm af hassi, en hafði þeg-
ar selt meginhluta þeirra þegar
lögregla handtók ákærða – voru
þá í vörslu hans um 212 grömm af
hassi.
Föstudaginn 12. nóvember tók
ákærði jafnframt við 235,77
grömmum af kókaíni, en lögregla
handtók hann skömmu síðar á bif-
reiðastæði. Hafði hann sama dag
greitt sendanda kókaínsins erlend-
is 200 þúsund krónur og gerði lög-
regla rúmar 191 þúsund krónur
upptækar. Við húsleit hjá ákærða
fannst einnig afsöguð haglabyssa
af óþekktri tegund sem hann hafði
í vörslu sinni án tilskilins leyfis.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Gunnlaugur Claessen, Guð-
rún Erlendsdóttir og Hrafn Braga-
son.
Kolbrún Sævarsdóttir, saksókn-
ari hjá ríkissaksóknara, flutti mál-
ið fyrir hönd ákæruvaldsins en Jó-
hannes Albert Sævarsson hrl.
varði manninn.
Fangelsi fyrir
fíkniefna-
innflutning